Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Uppþot og afhjúpun í hópnum sem hatar konur: „Ég óð eld og brennistein fyrir SDG“

Uppþot og afhjúpun í hópnum sem hatar konur: „Ég óð eld og brennistein fyrir SDG“
Mið­flokks­menn

Sveinn Óskar Sig­urðs­son, bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins í Mos­fellsbæ, hefur und­an­farið verið iðinn við að smala með­limum Karl­mennsku­spjalls­ins í flokk­inn. Karl­mennsku­spjallið er lík­lega vafa­samasti Facebook-hópur lands­ins en flest, ef ekki öll, umræða þar snýst um kven­hatur. Frægt er þegar Kristinn Sig­ur­jóns­son, þá lektor við tækni- og verk­fræði­deild Háskól­ans í Reykja­vík, var rek­inn fyrir ummæli sem þar féllu.

Sveinn Óskar hefur deilt nokkrum færslum í hópnum. Hann býður körlunum til að mynda á fund „Mið­flokk­skvenna“ um brjósta­skimun fyrr í þess­ari viku. Í fyrra­dag fékk þó einn karl­anna nóg og skrif­aði við færslu Sveins: „Sveinn hvaða erindi á þetta hingað? Sig­mundur Davið er óþverri eins og allt hans fólk í póli­tík.“

Sveinn Óskar Sig­urðs­son, bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins í Mos­fellsbæ,

Sá heitir Gunnar Kristinn Þórð­ar­son og er fyrr­ver­andi for­maður Karla­list­ans. Hann hefur ítrekað kom­ist í fjöl­miðla vegna hinna svokölluð „Femín­sta­skjala“ en þar hafði hann safnað saman gögnum sem áttu að sýna fram á hvernig þjóð­þekktir femínistar séu að „und­ir­byggja aðför gegn nafn­greindum feðrum“. Gunnar Kristinn skrifar svo í gær langa færslu þar sem hann rekur hvernig Sig­mundur Davíð stakk hann í bakið.

„Góðan dag. Þar sem kjör­inn full­trúi Mið­flokks­ins er ítrekað að pósta á þessa síðu til að höfða til karl­manna fyrir næstu kosn­ingar vil ég skrifa hér nokkrar línur til að útskýra andúð mína á flokknum. Ég ásamt örfáum öðrum óðum eld og brenni­stein fyrir SDG þegar öll þjóðin lagð­ist á hann. Þá bauð ég mig fram fyrir xB og kom að stofnun xM og hljóp undir bagga með marg­vís­legum hætti með miklum fórn­ar­kostn­aði. Þá höfðu Aust­firð­ingar varað mig við að SDG hefði til­hneig­ingu til að „skilja menn eftir“. Mér fannst það bara töff og vísir að póli­tískum heið­ar­leika. Svo þegar ég var skil­inn eftir, varð ég fyrir von­brigðum en missti hvorki trú á SDG né heldur mál­efnin. Það kom miklu síðar,“ skrifar Gunnar Kristinn.

Hann fer svo yfir hvernig hann hafi verið ofsóttur og áður hefur verið fjallað um. „Femínista­skjölin lýsa skipu­lögðum ofsóknum áhrifa, valda og stjórn­mála­fólks til að eyði­leggja mann­orð tals­fólks for­eldra­jafn­réttis. Þar fóru mik­inn m.a. vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra í jafn­rétt­is­málum auk fjölda ann­arra. Logið var upp á flest talfsólk for­eldra­jafn­réttis hræði­legu ofbeldi, m.a. fyrr­ver­andi for­mann Félags um for­eldra­jafn­rétti, sem reyndar á prýði­legt sam­band við barns­mæður sínar og er að auki lög­heim­il­is­for­eldri barns­mæðra sinna. Þar tók prestur til máls (sem hafði þá nýlega verið sálu­sorg­ari sam­eig­in­legrar vin­konu móður minnar á dán­ar­beði) og sagði að ég hefði eytt meiri­hluta æsku­ára minna á geð­deild og verið farg á for­eldrum mínum öll mín upp­vaxt­arár. (var 2 mán­uði á geð­deild um 14 ára aldur í kjöl­far tauga­sjúk­dóms og ein­eltis).“

Gunnar Kristinn lætur svo allt flakka og nefnir margt fólk á nafn fyrir utan dul­ar­fullan blaða­mann í London. „Í kjöl­farið hófust skipu­lagðar ofsóknir. Sumar þær konur sem töl­uðu okkar máli voru aug­lýstar sem hórur á mellu­síðum Facebook með mynd, síma­núm­eri og heim­il­is­fangi. Sumir misstu vinn­una og var gert árás á fyr­ir­tæki og við­skipta­að­i­ila þeirra. Þegar á þessu stóð, hringir Sigurður Þórð­ar­son í mig, sem sat í kjör­dæma­ráði Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík (simtalið hjá­lagt). Segir hann við mig að á fund með þeim hafi kona úr röðum þess­ara femínista, sem er þjóð­þekktur blaða­maður (og drekkur bjór­inn sinn í London) og sagt þeim að ég hefði mis­notað börn mín og stjúp­börn,“ segir Gunnar og heldur áfram:

„Á fund­inum voru Svein­björg Birna, Guðfinna J. Kristinn Hallur Giss­ura­son og Sigurður Þórð­ar­son. Guðfinna og Kristinn Hallur trúa við­bjóð­inum eins og fað­ir­vor­inu og fer Kristinn með sög­una í Fram­sókn­ar­flokk­inn og Guðfinna í Mið­flokk­inn. Þessa sögu hafði reyndar blaða­konan áður sett fram á Mogga­blogg­inu og er Árni Mattíass. til vitn­ist um það. Búið var þannig um hnút­ana að ég hef ekki getað átt kost á að verja hendur mínar, jafn­vel þótt barns­móðir mín, hennar dóttir, okkar dóttir og maður hennar, verja mig öll fyrir þessum við­bjóði. Um enga aðra er um að ræða,“ skrifar Gunnar Kristinn.

Hann bendir svo að lokum á að Mið­flokk­ur­inn muni ekk­ert gera til að bæta hag íslenskra karla. „Þannig að fyr­ir­gefið ef ég hef and­styggð á SDG og Mið­flokknum. Þar sem ég kom að stofnun hans og mál­efna­vinnu, vili ég árétta, að það er ekk­ert sem bendir til þess að Mið­flokk­ur­inn muni nokkurn tím­ann vinna að málum feðra og umgengn­is­for­eldra. Það er bara sumt er ekki er hægt að fyr­ir­gefa.“

Sveinn bæj­ar­full­trúi hefur enn ekki svarað honum en Gunnar Kristinn telur sig vita hvers vegna hann aug­lýsi Mið­flokk­inn svo mikið í þessum vafa­sama en fámenna hóp: „Annars hefði ég latið þetta vera ef kjör­inn full­trúi Mið­flokks hefði ekki verið hér að veiða atkvæði. Þeir vita sem er að konur kjósa þá ekki. Þá er eins gott að öll sagan sé sögð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina