Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Ásgeir kostar bók um sjálfan sig – Einar Kárason brást ókvæða við spurningu um leiguskrif

Jón Ásgeir kostar bók um sjálfan sig – Einar Kárason brást ókvæða við spurningu um leiguskrif
Einar rit­aði málsvörn Jóns Ásgeir sem kemur út í næstu viku.

Einar Kárason rit­höf­undur brást ókvæða við spurn­ingum Mannlífs um kostun Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar athafna­manns á bók­inni Málsvörn og því hvort slík kostun gæti litað efni bók­ar­innar. Einar skrif­aði bók­ina sem upp­gjörs­bók þess síð­ar­nefnda á lit­ríkum við­skipta­ferli. Aðspurður hvort Einar hafi fengið greitt fyrir vinnu sína frá Jóni Ásgeiri hafði rit­höf­und­ur­inn þetta að segja:

„Eh, þetta er bara sam­vinnu­verk­efni þriggja aðila og er bara svona okkar í milli. Það var bara tryggt að allir fengju sitt. Það er svo­leiðis með vinnu að það er reynt að sjá til þess að menn hafi í sig og á meðan þeir vinna hana,“ segir Einar sem í kjöl­farið furð­aði sig á spurn­ingum Mannlífs:

„Af hverju ertu að velta því fyrir þér? Ég réði algjör­lega því sem ég skrifa. Hver kostar Mannlíf? Ert þú þá á mála hjá þeim og litar það þá ekki þín skrif? Þetta finnst mér und­ar­leg yfir­heyrsla um að ég sé ein­hver leigupenni.“

Við­skipta­jöf­ur­inn Jón Ásgeir er nú í upp­risu eftir að hafa verið úthróp­aður um ára­bil sem  útrás­ar­vík­ingur og spilltur í við­skiptum. Mannlíf fékk það stað­fest hjá Forlagi bóka­út­gáfu að Jón Ásgeir kom að kostun bók­ar­innar. Með hvaða hætti sú kostun er fékkst hins vegar ekki upp­gefið. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hafa aðeins æðstu stjórn­endur bóka­út­gáf­unnar komið nærri verk­efn­inu.

Einar hefur áður tekið að sér að skrifa um við­skipta­jöfra með vafa­sama for­tíð því hann skrif­aði sögu Jóns Ólafs­sonar, fyrr­ver­andi eig­anda Skíf­unnar og Norð­ur­ljósa.

Nokkur ein­tök bók­ar­innar hafa ratað á valda fjöl­miðla. Þannig vitn­aði Við­skipta­blaðið í bók­ina í morgun og sagði frá því að Gunnar Smári egils­son hefði ekki nennt til Kaup­manna­hafnar nema í einka­þotu. Vitnað er til Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar. Mannlíf óskaði eftir því við fram­kvæmda­stjóra og kynn­ing­ar­stjóra For­lags­ins að fá ein­tak til umfjöll­unar en því hefur enn ekki verið svarað. Viðtal er við Jón Ásgeir í Kveik á RÚV í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi