Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðmundur Felix með tilfinningu í höndum: „Ég veit ekkert hvernig hann dó“

Guðmundur Felix með tilfinningu í höndum: „Ég veit ekkert hvernig hann dó“

Texti: Svava Jóns­dóttir.

Guð­mundur Felix Grét­ars­son er sá fyrsti í heim­inum til að fá grædda á sig hand­leggi ann­ars manns og var það gert nákvæm­lega 23 árum eftir að hann missti báða hend­leggi sína í slysi. 12. jan­úar síð­ast­lið­inn gekkst Guð­mundur Felix undir hand­leggja­á­græðslu á Edouard-Herriot-sjúkra­hús­inu í Lyon í Frakk­landi þar sem hann hefur verið búsettur síð­ast­liðin ár. Um var að ræða fyrstu aðgerð sinnar teg­undar á heims­vísu. Hann finnur meiri drauga­verki en áður og er far­inn að geta hreyft upp­hand­legg­ina dálítið.

12. jan­úar er örlaga­dagur í lífi Guð­mundar Felix Grét­ars­sonar raf­virkja en hann missti báða hand­leggi sína þann dag árið 1998 í vinnu­slysi þegar hann var við við­gerð á háspennu­línu. Hann greip fyrir slysni um línu sem straumur var á og féll í kjöl­farið niður um átta metra. Brynjólfur Jónsson bækl­un­ar­skurð­læknir fram­kvæmdi í kjöl­farið á honum 54 aðgerðir og sagði í sam­tali við Mor­un­blaðið 15. jan­úar síð­ast­lið­inn aldrei hafa séð önnur eins meiðsli á einni mann­eskju á sínum 40 ára ferli. Guð­mundur Felix rank­aði ekki almenni­lega við sér fyrr en um þremur mán­uðum eftir slysið.

Það er starað á mig

„Það tók mjög langan tíma að verða sáttur við það sem ég sá í spegl­inum og seinni árin fór mér bara að læra að þykja vænt um mig eins og ég var. Ég sá kannski karl­menn með flotta hand­leggi og fann fyrir brjál­aðri minni­mátt­ar­kennd. Ég var með enga hand­leggi og lang­aði svo að hafa eitt­hvað. Þetta hefur allt læðst að manni í gegnum árin. Þetta teng­ist því að vera ein­stak­lingur og kyn­vera. Það er starað á mig hvert sem ég fer og ég tala nú ekki um þegar ég fer á strönd­ina. Þetta spilar stóra rullu.“

Guð­mundur Felix hefur und­an­farin ár búið í Lyon í Frakk­landi. Hann náði árið 2007 tali af franska skurð­lækn­inum Jean-Michel Dubern­ard þegar hann hélt erindi á Íslandi en hann og teymi hans græddu fyrst allra hendur á mann fyrir 20 árum síðan. Guð­mundur Felix flutti til Lyon árið 2013 þar sem ljóst var að hann gæti þar mögu­lega fengið grædda á sig hand­leggi. Þótt Dubern­ard sé kom­inn á eft­ir­laun er það hann sem hefur leitt þetta verk­efni hvað Guðmund Felix varðar.

Líffæragjafi fundinn

Guð­mundur Felix komst fyrir fimm árum á biðlista eftir hand­leggjum og má segja að hann hafi síðan nán­ast beðið við sím­ann eftir að haft yrði sam­band við sig og honum til­kynnt að búið væri að finna gjafa. Nokkrir hentugir gjafar hafa fund­ist í gegnum árin en fjöl­skyldur þeirra feng­ust ekki til að skrifa undir sam­þykki. Þá tak­mark­að­ist leitin við Lyon og nágrenni sem þýddi að gjaf­inn mátti ekki vera í meira en 40 kíló­metra fjar­lægð frá borg­inni þar sem það yrði flókið og háð tíma­mörkum að flytja hann á sjúkra­húsið.

Haft var sam­band við Guðmund Felix 10. jan­úar síð­ast­lið­inn. Hugs­an­legur líf­færa­gjafi var fund­inn. Hann fékk svo sam­þykki fyrir gjöf­inni dag­inn eftir.

12. jan­úar gekkst hann síðan undir hand­leggja­á­græðslu á Edouard-Herriot-sjúkra­hús­inu í Lyon. Um var að ræða fyrstu aðgerð sinnar teg­undar á heims­vísu og tóku rúm­lega 50 læknar og hjúkr­un­ar­fræð­ingar frá fjórum sjúkra­húsum þátt í aðgerð­inni sem tók um 15 klukku­stundir. Eitt læknateymi sá um að fjar­lægja hand­leggi af gjaf­anum og annað um ágræðsl­una.

Með  danska lifur

Guð­mundur Felix veit að gjaf­inn var 35 ára karl­maður. „Ég veit ekk­ert hvernig hann dó. Það eru ákveðnar reglur upp á að maður þurfi ekki að bera það líka hvernig við­komadi dó; það sama er um lifr­ina sem ég fékk eftir slysið fyrir rúmum 20 árum. Hún er úr Dana. Ég er með danska lifur, franska hand­leggi og er Íslend­ingur. Þetta er djöf­ull kúl því það eru ekki margir fæddir í þremur löndum. Það hefur alltaf verið erf­ið­asti hlut­inn að hugsa um að ein­hver þurfi að deyja til að ég fengi hand­leggi og líka að það þyrfti helst að vera ein­hver sem væri yngri en ég. En við­kom­andi hefði dáið hvort sem ég hefði verið að bíða eftir hand­leggjum eða ekki. Ég ætla að hugsa vel um hend­urnar hans þannig að þetta er ekki alveg búið hjá honum ennþá,“ sagði Guð­mundur Felix en ýmis líf­færi úr gjaf­anum voru sett í aðra. „Þannig að ansi mörgum lífum hefur verið breytt og bjargað,“ sagði Guð­mundur Felix þegar hann  spjall­aði við íslenska blaða­menn á Zoom-fundi föstu­dag­inn 22. jan­úar en þann dag var hann fluttur af gjör­gæslu.

Rosalega skrýtinn dagur

„Eins og þið sjáið þá lít ég öðru­vísi út heldur en þið hafið séð mig áður,“ sagði hann og var stoltur af nýju hand­leggj­unum. „Þeir eru tveir,“ sagði hann um hand­legg­ina. „Ég fékk sím­tal mánu­dag­inn 11. jan­úar um hugs­an­legan gjafa og að ég fengi end­an­legt svar dag­inn eftir um hvort af þessu yrði. Ég hafði fengið svipuð sím­töl nokkrum sinnum áður en fjöl­skyldur við­kom­andi voru síðan ekki sam­þykkar. Það er skemmti­legt að 12. jan­úar er einmitt dag­ur­inn þegar ég missti hend­urnar þannig að ég var búinn að vera handa­laus akkúrat 23 ár upp á dag. Þetta var rosa­lega skrýt­inn dagur. Ég þurfti að láta vini mína skutla mér upp á spít­al­ann af því að konan mín, Sylwia, var að vinna. Ég var búinn að sitja og horfa á sím­ann í sjö ár. Svo sner­ist ég bara í hringi. Ég vissi ekk­ert hvað ég ætti að taka með mér upp eftir; ég fór bara með ein­hvern nátt­slopp og eitt­hvað drasl sem ég get ekk­ert notað.“

Guð­mundur Felix var síðan und­ir­bú­inn undir aðgerð­ina og svæfður eldsnemma morg­un­inn eftir, 12 jan­úar. „Þeir byrj­uðu að und­ir­búa mig og gjafann. Stóri áhættufakt­or­inn í svona aðgerðum er hversu lengi blóð­flæði er ekki í útlimunum. Það er bara hægt að henda útlim eftir sex tíma og hann er þá vænt­an­lega hálf­ónýtur eftir þrjá tíma en hann byrjar að mynda prótein sem eru bara í raun­inni eitur. Það var búið að æfa aðgerð­ina mörgum sinnum til að reyna að stytta tím­ann og þetta tókst á einum og hálfum tíma sem er bara algert met. Lækn­arnir hafa gert minna flókn­ari aðgerðir og þeir hafa aldrei verið eins ánægðir með nið­ur­stöð­una eins og eftir þessa aðgerð af því að þeir voru svo vel und­ir­búnir.“

Aðgerðin tók um 15 tíma. 

„Það eina sem komst að í hausnum á mér eftir að ég vakn­aði var hvaða maður færi í svona vilj­andi. Það var eins og tveimur trukkum hefði verið lagt á öxl­unum á mér og það voru rör ofan í lung­unum. Þetta er búið að vera mjög erfitt. Þetta er búinn að vera mik­ill sárs­auki og búið að taka skelfi­lega á. Ég er búinn að vera í þess­ari stell­ingu sem ég er í núna síðan ég vakn­aði. Svo hef ég ekk­ert sofið rosa­lega vel. Og franska sjón­varpið er hund­leið­in­legt þannig að maður er svo­lítið bara að horfa á vegg­ina. Þetta er vel þess virði og núna er mér farið að líða mjög vel. Ég útskrif­að­ist af gjör­gæslu í dag og er verkja­minni en oft áður auk þess sem búið er að fjar­lægja meiri­hlut­ann af öllum slöngum og leiðslum úr mér.“

Guð­mundur Felix sagði að alltaf mætti búast við ein­hverjum fylgi­kvillum. „Þeir bættu við ein­hverjum æðum í háls­inum á mér og ein þeirra er stífluð en það hefur ekki áhrif á blóð­flæðið. Þetta er bara aukaæð af því að þeim fannst vanta eitt­hvað upp á þetta. Ég var settur á blóð­þynn­ing­ar­lyf til að reyna að hreinsa þá æð og þegar verið var að taka legg úr lær­inu á mér fór að blæða og missti ég svo­lítið af blóði þannig að ég þurfti að hætta á blóð­þynn­ing­ar­lyf­inu til að geta stoppað blæð­ing­una. Þannig að það fylgja þessu leið­indi og óþæg­indi en þetta er ekk­ert sem hefur ein­hver áhrif til lengri tíma.“

Guð­mundur Felix sagði að hann hafi í gegnum árin spurt fólk sem hefur fengið hendur hvernig til­finn­ing það væri. „Fyrsti sól­ar­hring­ur­inn var í hel­víti og þá fannst mér þetta vera ein­hverjar dúkku­hendur sem væru engan veg­inn tengdar mér. Ég var allur pakk­aður og svo voru þessar dúkku­hendur allar þrútnar og ein­hvern veg­inn plast­á­ferð á þeim. Ég var ekk­ert brjál­æð­is­lega hrif­inn af þeim. Svo sá maður hár á þeim sem maður kann­að­ist ekk­ert við.“ Guð­mundur Felix sagði að tveimur dögum eftir aðgerð­ina hafi bjúg­ur­inn verið orð­inn lít­ill og húð­litur hand­leggj­anna eðli­legur. „Það furðu­lega er að mér finnst hend­urnar vera svo­lítið líkar gömlu hönd­unum mínum. Ég er búinn að snerta á mér kinn­arnar og bring­una og finna hit­ann; þær eru sjóð­andi heitar. Ég á eftir að verða góður vinur þeirra og hugsa vel um þær. Mér líður mjög vel með þær.“

Guð­mundur Felix er búinn að fá örlitla til­fin­ingu í hand­legg­ina og er gott blóð­flæði í öllum fingrum. Mikil end­ur­hæf­ing er fram undan og sagði hann að það muni ekki koma í ljós fyrr en eftir um þrjú ár hvernig aðgerðin hefði heppn­ast. „Taug­arnar vaxa um einn míllí­metra á dag þannig að ég get búist við að vera með ein­hverja til­finn­ingu og jafn­vel hreyfi­getu á oln­boga eftir ár ef allt gengur eftir. Það mun taka taug­arnar um tvö ár að vaxa út í fingur og þá eru það fingur sem hafa ekki hreyfst í um tvö ár. Þegar maður er búinn að bíða svona lengi eftir hand­leggjum þá finnst manni þrjú ár ekki vera neitt. Loksins hef ég eitt­hvað annað að gera en bara bíða.“

Draugaverkir

Guð­mundur Felix sagði að litið verði á það sem árangur ef hann geti hreyft oln­bog­ana. „Allt umfram það er bónus. Við erum alveg undir það búin að ein­hvern tím­ann verði þessar hendur klipptar af og þá gæti ég fengið rosa­lega töff róbóta­hendur.“

Guð­mundur Felix hefur verið með drauga­verki eftir að hann missti hand­legg­ina. „Ég hef í raun­inni alltaf getað fundið fyrir putt­unum á mér en það hefur magn­ast rosa­lega og tveimur til þremur dögum eftir aðgerð­ina fann ég alveg rosa­lega sterkt fyrir fingr­unum á mér. Ég er að finna drauga­verki í útlimum sem eru farnir en er samt með útlimi; sem er svo­lítið sér­stakt. Það er búið að sauma taug­arnar á okkur saman; það eru ein­hver sam­skipti sem eiga sér þarna stað. Ég fæ stundum svaka­lega stingi sem eru ekki góðir; þetta er svipað og þegar tann­læknir borar í taug. Þetta kemur í nokkrar sek­úndur og ég finn aðeins þegar sjúkra­þjálf­arar eru að hreyfa hend­urnar og beygja fing­urna. Það er ekki alveg vitað hvað þetta er en ég finn ekk­ert þegar ein­hver strýkur hand­legg­ina.“

Eig­in­kona Guð­mundar Felix, Sylwia, var hjá eig­in­manni sínum á sjúkra­hús­inu  dag­inn sem Zoom-fund­ur­inn fór fram en hann hefur ekki enn hitt for­eldra sína. Móðir hans hefur búið í Frakk­landi eins og hann und­an­farin ár. „Mamma sat við rúmið þegar ég vakn­aði eftir slysið fyrir 23 árum.“ Guð­mundur komst við og átti erfitt með að tala um tíma þegar hann fór að tala um móður sína. „Hún er ekki ennþá búin að koma til mín út af þessu and­skot­ans Covid. Og ekki heldur dætur mínar sem búa á Íslandi. Þetta fólk er búið að standa svo við bakið á mér.“ Það fór að pípa í tækjum. Það tók aug­ljós­lega á Guðmund Felix að tala um fjöl­skyld­una. „Fjöl­skyldan hefur komið mér í gegnum þetta allt.“

Í Crossfit

Guð­mundur Felix sagði að það væri svo margt sem hann hlakkar til að gera ef allt gengur að óskum. „Það sem er efst á baugi hjá mér er að geta verið eitt­hvað sjálf­bjarga. Svo er það skynj­unin því ég held að það geri sér eng­inn grein fyrir því fyrr en hann missir hend­urnar hvað við skynjum heim­inn mikið í gegnum snert­ingu. Það er eins og ég sé búinn að vera á Zoom-fundum síðan 1998. Það er allt sjón­rænt; ég snerti ekki fólk og mann­leg snert­ing er svo ofboðs­lega mik­il­væg.“

Guð­mundur Felix sagði að hann hefði fyrir nokkrum árum hugsað út í hvað hann myndi gera ef hann fengi nýja hand­leggi og búinn að ná mark­miði sínu. „Þetta er eins og maður hefur heyrt um Ólymp­íu­fara; þegar maður nær stóra mark­mið­inu þá er allt niður á við eftir það. Ég vildi ekki lenda í því að vera bara þung­lyndur með nýjar hendur ein­hvers staðar þannig að ég fór að læra mark­þjálfun fyrir nokkrum árum síðan. Ég hugsa að ég fari út í eitt­hvað svo­leiðis; sem „spea­ker“, þjálfi eða hóp­þjálfi. Ég hef gaman að því og ég hef kom­ist að því að ég er ágætur í því.“

Missti sjálfsmyndina

Guð­mundur Felix sagði að hann myndi ekki þekkja þann mann sem hann var fyrir slysið fyrir 22 árum. „Ég er voða ein­faldur; það þarf lítið til að gleðja mig og ég nýt lífs­ins. Mér líður alltaf vel og mér finnst allt vera æðis­legt. Ég nýt litlu hlut­anna.“

Sjálfs­myndin breytt­ist eftir slysið. „Ég var trú­lof­aður, tveggja barna faðir, ég var raf­virki og ég var hitt og þetta. Svo slitn­aði upp úr sam­búð­inni, ég missti vinn­una og gat ekki lengur séð fyrir mér og end­aði heima hjá for­eldrum mínum. Ég missti sjálfs­mynd­ina eins og ég hélt hún væri.“

Síðustu tveir ára­tugir hafa verið mik­ill skóli. „Ég hef öðl­ast reynslu af að kom­ast í gegnum lífið allan þennan tíma í þessu ástandi. Þetta kennir manni ákveðna auð­mýkt og kennir manni ofboðs­lega margt um hvernig við fún­kerum. Ég get ekki verið hlaup­andi á eftir ein­hverjum til­finn­inga­rús­sí­bana.“

Guð­mundur Felix stundar lík­ams­rækt og jóga og seg­ist fara í Crossfit fjórum til fimm sinnum í viku. „Ég vissi að ég myndi fara í stóra aðgerð og ég hugs­aði með mér að í því betra formi sem ég yrði þegar ég færi í aðgerð­ina því betra. Og ég finn árang­ur­inn af því núna.  Mér líður lík­am­lega vel eftir þetta allt saman og er sterkur og í góðu standi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur