Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðni Pétur var aðeins 31 árs er hann lést í Sundhöllinni: „Það elskuðu hann allir“

Guðni Pétur var aðeins 31 árs er hann lést í Sundhöllinni: „Það elskuðu hann allir“
Hér er fjöl­skyldan saman komin til að minn­ast Guðna Péturs. Frá vinstri: Bjarki, litli bróðir, Sigrún og Heiðar, for­eldrar, og Edgar Smári, stóri bróðir.

Guðni Pétur Guðnason var aðeins 31 árs þegar hann fannst með­vit­unda­laus á botni Sund­hall­ar­innar í Reykja­vík síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Fjöl­skyldan syrgir nú ein­stakan vin. Vin dýra, manna og nátt­úru, sem fór alltof fljótt.

Fjöl­skylda Péturs tók af miklu hug­rekki á móti blaða­manni Mannlífs í dag. Falleg mynd af honum brosmildum stendur á borð­inu og tvö log­andi kerti við hlið hans. Sorg fjöl­skyld­unnar er aug­ljós og áþreif­an­leg á fal­legu heim­il­inu í Graf­ar­vog­inum.

„Veröldin er fátæk­ari eftir að hann er far­inn.“

Guðni Pétur, sem oft­ast var kall­aður Pétur, eða Pési af kjarna­fjöl­skyld­unni, var barn­laus og ókvæntur er hann lést. Hann fædd­ist 10. nóv­em­ber 1989, dag­inn eftir að Berlín­ar­múr­inn féll og var hann því stundum kall­aður því við­ur­nefni af eldri bróður sínum. Í nátt­úruperlunni við Geld­ing­ar­nes gekk Bjarki, litli bróðir, oft með Pétri bróður sínum þar sem Pétur, eða Buddi eins og Bjarki kall­aði hann á yngri árum, veitti litla bróður ómet­an­leg ráð fyrir fram­tíð­ina. „Kennarar Péturs í leik­list sögðu hann svo hæfi­leik­a­ríkan að hann ætti að verða leik­ari. Hann var svo flinkur í erf­ir­hermum og það kom alltaf eitt­hvað fyndið hjá honum þegar maður var að spjalla við hann. Við vorum búnir að plana saman ferða­lag um heim­inn, til dæmis til Japan. Við fórum oft saman í labbit­úra og það var það eitt það skemmti­leg­asta sem ég gerði með honum Pésa mínum. Þá gat ég rætt hvað sem er og aldrei dæmdi hann mig. Hann kenndi mér svo margt,“ segir Bjarki.

Þessi hæfi­leik­a­ríki maður fór alltof snemma. Blessuð sé minn­ing Guðna Péturs.

Pétur lauk námi í lista­braut í Borg­ar­holts­skóla enda var honum margt til lista lagt, meðal ann­ars við teikn­ingar og hús­gagna­smíði sem hann hóf nám í eftir að námi í Borg­ar­holts­skóla lauk. Hann fór í kristi­legan skóla í Kanada á braut sem kall­að­ist „School of Hearts“ og var iðinn í skáta­starfi á sínum yngri árum. Síða­sliðin þrjú ár starf­aði Pétur á heim­ili fyrir geð­fatl­aða á Flóka­götu. „Þar var Pési alveg elsk­aður og dáður af skjól­stæð­ing­unum. Hann var svo ein­stak­lega góður við skjól­stæð­inga sína, hann kall­aði þá alltaf strák­ana sína þó þetta séu full­orðnir karl­menn,“ segir Guðni Heiðar Guðnason, faðir Péturs.

Jens Ívar, yfir­maður Péturs á heim­il­inu á Flóka­götu, minn­ist ein­staks starfs­krafts. „Pétur var frá­bær starfs­kraftur, jákvæður og glað­lyndur í fasi. Hann var þol­in­móður gagn­vart íbúum og nálg­að­ist þá með virð­ingu og auð­mýkt. Hann var með mikla hæfi­leika á þessu sviði. Erfiðir hlutir litu út fyrir að vera auð­veldir í hans höndum. Hann hafði þetta í sér. Hann var elsk­aður og dáður af íbúum. Við munum öll sakna hans,“ segir Jens Ívar.

Hinn örlaga­ríka fimmtu­dag síð­ast­lið­inn var Pétur, eins og oft áður, með einum af skjól­stæð­ingum sínum í sundi. Hann fannst með­vit­und­ar­laus á botni laug­ar­innar en þar hafði hann legið í einar 6 mín­útur þegar hann fannst. Pétur var svo úrskurð­aður lát­inn síð­ast­lið­inn föstu­dag og treystir fjöl­skyldan nú á rann­sókn lög­reglu til að fá svör við hvað olli þessu svip­lega slysi.

„Alltaf þegar hann kom tók hann utan um okkur og þegar hann kvaddi gerði hann það líka, kyssti og sagð­ist elska okkur.“

„Pétur var með svo fal­legt bros, sem náði til augn­anna. Hann var ofboðs­lega hand­lag­inn, í raun algjör þús­und­þjala­smiður og gat gert við hvað sem er. Ef eitt­hvað brotn­aði eða bil­aði þá lag­aði hann það. Þannig gerði hann líka við fötin sín sjálfur, fynd­ist honum þörf á en nýtni og nægju­samur lífstíll var eitt­hvað sem hann til­eink­aði sér. Ef eitt­hvað var að hjá fjöl­skyld­unni, þá fengum við það í hans hendur og það brást aldrei. Pétur var alveg frá­bær strákur,“ segir Sigrún Drífa Anni­e­ar­dóttir, móðir Péturs. Fjöl­skyldan beið í klukku­tíma á bráða­mót­tök­unni á meðan allt var reynt við end­ur­lífgun. Þegar fjöl­skyld­unni bár­ust tíð­indin af von­lausri stöðu Péturs hefur Sigrún þetta að segja:

„Hann var alltof lengi ofan í, það var of seint að bjarga honum. Það var gjör­sam­lega óraun­veru­legt þegar við fengum frétt­irnar. Okkur fannst þetta óhugs­andi, alveg eins og eins þungt högg í and­litið. Sorgin okkar er svo mikil að því er ekki hægt að lýsa henni. Veröldin er fátæk og hefur misst ljóma sinn núna eftir að hann er far­inn.“

„Það sem stendur er er minn­ingin um þennan vel gerða, hjarta­hlýja og kæreiks­ríka dreng sem öllum vildi vel. Hann var svo mik­ill vinur allra, Pétur var gæði út í gegn,“ segir fjöl­skyldan sorg­mædda.

Framundan hjá Pétri voru flutn­ingar þar sem Aron, æsku­vinur hans, sem nýlega hafði fest kaup á íbúð ætl­aði að leigja honum her­bergi og var til­hlökkun hjá þeim báðum mikil, enda miklir mátar. Sjálfur var Pétur nýlega búinn að finna sátt eftir að hafa orðið fyrir miklu áfalli fyrir nokkrum árum er einn hans besti vinur, Snorri, tók eigið líf.

Að sögn fjöl­skyld­unnar var Pétur mik­ill grúsk­ari og ákaf­lega fróð­leiks­fús. Það var sama hvað það var, listir eða hand­íðar, það lék allt í hönd­unum á honum. „Pétur var með lím­heila og var algjör svampur hvað varðar fróð­leik. Ef við vissum ekki eitt­hvað, þá spurðum við bara hann. Ef hann hafði áhuga á ein­hverju þá sökkti hann sé í það. Pétur var alveg ein­stakur húmoristi og hafði svo gaman af öllum húmor. Þess utan var hann svo hlýr og góður við alla, vinir hans leit­uðu mikið til hans til að tala og það elsk­uðu hann allir. Pétur var alveg ein­stakur sonur og bróðir,“ segir Guðni Heiðar.

Áður en Pétur hóf störf á heim­il­inu í Flóka­göt­unni, sinnti hann ævin­týra­þörf­inni, sinnti hjálp­ar­störfum í Kali­forníu, ók flutn­ing­ar­bif­reið í Noregi og ferð­að­ist um óbyggðir Kanada. „Pétur var mikið nátt­úru­barn og hafði alltaf mik­inn áhuga á henni. Þar var hann alltaf í ess­inum sínu og hví­líkur úti­vist­ar­maður,“ segir Sigrún.

Þrátt fyrir að vera með ofnæmi fyrir hundum hugs­aði Pétur svo vel um Nóa.

Edgar Smári, eldri bróðir Péturs, minn­ist þess þegar Pétur tók við hvolp­inum hans, Nóa, sem nú er 11 ára. Þrátt fyrir að vera með ofnæmi fyrir hundum tók Pétur ekki annað í mál en að hafa hann hjá sér. „Ég var búinn að vera með hvolp­inn í viku en Pétur var svo hrif­inn af honum að ég bauð honum að eiga hann. Í gegnum allt þá var hann alveg ofboðs­legur mann- og dýra­vinur. Hlýja hans gagn­vart dýrum var ein­stök og hið sama átti við um gagn­vart fólki. Hann var mik­ill vinur vina sinna og við bræð­urnir erum með Pétri að missa okkar besta vin,“ segir Edgar og heldur áfram:

„Við bræð­urnir hlógum mikið saman og gerðum grimmt grín að hvorum öðrum. Við ræddum einmitt saman fyrir skömmu þar sem við gerðum upp allt grínið í gegnum árin og fyr­ir­gáfum allt saman. Þá tók hann við stundum við fötum sem ég hætti að nota eftir nokkur skipti. Ég var að fara yfir skáp­inn hans áðan og þar sá ég fullt af mínum gömlu fötum. Í dag sótti ég líka bak­pok­ann hans í vinn­una og það var svo fal­legt að finna þar alla hlut­ina sem lýsa við­gerð­ar­mann­inum og nátt­úru­barn­inu Pétri svo vel.“

Sigrún segir það ómet­an­legt við minn­ingar um Pétur sú til­hugsun að hann kvaddi fjöl­skyld­una ávallt með faðm­lagi og ást­ar­játn­ingu. „Pétur var alveg ynd­is­legur og var svo lif­andi karakter. Ég hringdi oft í hann og við spjöll­uðum jafn­vel í einn eða tvo tíma. Þá var líka svo gaman að koma til hans í heim­sókn því hann var svo mikil grúsk­ari. Þá var hann ofboðs­legur kær­leiks­bolti. Alltaf þegar hann kom tók hann utan um okkur og þegar hann kvaddi gerði hann það líka, kyssti og sagð­ist elska okkur. Hann fór aldrei án þess og ég man vel eftir síð­ustu kveðju­stund­inni. Þá vorum við búin að faðm­ast en héldum svo áfram að spjalla. Þegar hann svo fór tók ég aftur utan um hann,“ segir Sigrún vot um augun.

Nú er rann­sókn á hinu svip­lega and­láti í höndum lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Framundan er rétt­ar­krufn­ing til að skera úr um dán­arosök Péturs sem var í fanta­formi að sögn fjöl­skyld­unnar. „Okkur mis­lík­aði því veru­lega þegar virt­ist eiga að afgreiða and­lát hans með þeirri skýr­ingu að hann hafi verið með ein­hver und­ir­liggj­andi veik­indi. Hann var ekk­ert veikur og glímdi ekki við neitt sem skýrir þetta. Hann hjólaði allt sem hann fór og hafði gert í mörg ár. Það er mörgum spurn­ingum enn ósvarað og þau svör viljum við fá,“ segir Guðni Heiðar í sam­tali við Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi