Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ingibjörg endaði á geðdeild: „Var eins og ég væri að fá hjartaáfall“

Ingibjörg endaði á geðdeild: „Var eins og ég væri að fá hjartaáfall“

Ingi­björg Tamimi Sig­ur­jóns­dóttir eign­að­ist sitt fyrsta barn 15 ára gömul. Hún skildi við fyrri eig­in­mann sinn rúm­lega tví­tug og kynnt­ist nokkrum árum síðar stóru ást­inni í lífi sínu, Salman Tamimi, sem lést í lok síð­asta árs. Ingi­björg talar hér meðal ann­ars um lífið, ást­ina, dauð­ann og sorg­ina.

Ingi­björg Tamimi Sig­ur­jóns­dóttir ólst upp í Ólafsvík og á Hell­issandi.

„Ég var rosa­legur fjör­kálfur, upp­á­tækja­söm og hvat­vís. Ég var óþekka dóttirin hennar mömmu. Ég var með alls konar upp­á­tæki en við krakk­arnir, vin­irnir, köst­uðum stundum eggjum í hurðir og stundum þegar var mik­ill snjór lok­uðum við götum í bænum með snjó­boltum. Þetta voru þannig upp­á­tæki; að hrekkja náung­ann og stríða.“

Hún er spurð um drauma á þessum árum „Mig lang­aði nátt­úr­lega að verða svo margt. Okkur syst­urnar dreymdi um að verða flug­freyjur til að kom­ast til útlanda og gera eitt­hvað sem væri allt öðru­vísi en það sem allir aðrir voru að pæla í.“

Ingi­björg flutti að heiman þegar hún var 14 ára en hún var búin að eign­ast kærasta og flutti á æsku­heimli hans. „Ég held að það hafi engin hugsun verið þar á bak við hvort ég væri of ung; ég var ást­fangin og bara fór að heiman. Maður var ekk­ert að hugsa lengra þegar maður var ungur og ást­fang­inn. Kærasti minn, og síðar eig­in­maður, er átta árum eldri en ég og við eign­uð­umst eldra barn okkar, dóttur, þegar ég var 15 ára. Það kom mér ekk­ert á óvart þegar ég komst að því að ég væri orðin ófrísk af því að ég not­aði engar getn­að­ar­varnir og ég vissi nátt­úr­lega að þá gæti ég orðið ófrísk. Ég var bara mjög ham­ingju­söm þegar ég komst að því að ég átti von á barni. Guð hafði valið mig til að eiga þetta barn.“

Ingi­björg bjó á æsku­heimli kærasta síns næstu árin og lofar fyrr­ver­andi tengda­móður sína. „Hún var rosa­lega góð og hjálp­aði mér í gegnum allt það sem ég þekkti ekki í einu og öllu. Það bjarg­aði mér alveg.“ Þau eign­uð­ust sitt annað barn, son, þegar hún var 18 ára. Þau giftu sig svo þegar hún var 19 ára. Ingi­björg hafði hætt í skóla þegar hún var 14 ára og var heima næstu árin. Kærasti hennar og síðar eig­in­maður var sjó­maður og vann líka við að beita.

„Hann er svo rétt­látur, rétt­sýnn og heið­ar­legur. Það var alveg sama hvað maður tal­aði um; hann gat alltaf fundið góðan punkt í öllum,“ segir Ingi­björg um eig­in­mann sinn heit­inn.

„Ég ákvað að skilja á afmæl­is­dag­inn minn þegar ég var tví­tug. Ég bara fór. Ég tók börnin mín og fór. Ég bjó í smá­tíma hjá mömmu minni, smá­tíma hjá systur minni og smá­tíma hjá vin­konu minni. Ég stóð svo á göt­unni með tvö börn og átti hvergi heima. Ég vissi ekki hvert ég ætti að snúa mér. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera.“ Hún var komin suður til Reykja­víkur og fann hvorki vinnu né pláss fyrir börnin. „Ég var bara tví­tug og kunni ekki á kerfið. Ég upp­lifði mig á þessum tíma­punkti eina í heim­inum. Það var eng­inn bak­hjarl. Enginn stuðn­ingur. Ekkert.“

Örlögin hög­uðu því síðan þannig að dóttirin ólst upp hjá móður sinni en son­ur­inn hjá föður sínum. „Það hefur haft mjög slæm áhrif á allt mitt líf að sonur minn skyldi ekki alast upp hjá mér.“ Ingi­björg segir að þessi ár hafi verið erfið og að tvisvar hafi þurft að sprauta sig niður vegna tauga­á­falls vegna and­legs álags.

Ingi­björg bjó svo ásamt dóttur sinni í nokkur ár á Hvamms­tanga þar sem hún vann á sauma­stofu. „Þar átti ég mjög gott líf með dóttur minni.“

Ingi­björg segir að hún hafi lent í ýmiss konar áföllum á þessum árum sem ekki sé hægt að segja frá þar sem þau tengj­ast öðru fólki. „Ég vissi það ekki fyrr en þegar ég kynnt­ist Salmann 25 ára gömul að ég var mann­eskja í rúst. Gjör­sam­lega í rúst. Það var honum að þakka að ég gerði mér grein fyrir því en hann sá að það var eitt­hvað mikið að og ég fór smátt og smátt að leita mér aðstoðar.“

Annar heimur

Ingi­björg fór á ball í Þórs­kaffi sum­arið 1986. „Ég sá ein­hver kall þar sem ég tal­aði við en var ekk­ert að pæla í honum.“ Það var Salman Tamimi sem var frá Palest­ínu.

Það leið ár.

„Ég var einu sinni að versla í KRON í Breið­holti og þegar ég kom út þá stóð Salman þar. Hann spurði mig hvort ég myndi ekki eftir sér og við fórum að spjalla fyrir utan versl­un­ina eins og við hefðum þekkst alla tíð. Svo spurði hann hvort hann mætti ekki bjóða mér í kaffi. Ég var til í það en ég sagð­ist gera það síðar. Ég lét aðeins bíða eftir mér. Svo fór ég til hans í kaffi nokkrum dögum síðar og við spjöll­uðum lengi saman. Þetta gerði ég nokkrum sinnum.“

Ingi­björg leigði íbúð í Breið­holti ásamt annarri konu. Leigunni var sagt upp og hún spurði Salman einn dag­inn um þremur mán­uðum eftir að þau hitt­ust fyrir utan KRON hvort hún gæti leigt her­bergi á heim­ili hans um tíma. „Hann hélt nú að það væri í lagi og sagði að ég þyrfti ekki að borga neina leigu en ég mætti kannski taka til í íbúð­inni. Þannig hófst sam­band okkar.“

Salman kom til Íslands árið 1971 og kvænt­ist síðar íslenskri konu og eign­uð­ust þau tvær dætur. Þau voru skilin þegar Ingi­björg kom inn í líf hans.

Ingi­björg er spurð hvað hafi heillað hana við Salman. „Hann er svo rétt­látur, rétt­sýnn og heið­ar­legur,“ segir hún og notar nútíð, enda stutt síðan hann lést. „Það var alveg sama hvað maður tal­aði um; hann gat alltaf fundið góðan punkt í öllum. Svo var hann nátt­úr­lega með sína per­sónu­töfra. Hann hafði góðan húmor og var mik­ill sprelli­karl.“

Ingi­björg seg­ist ekki hafa vitað neitt um Palesínu þegar þau Salman kynnt­ust. „Hann kynnti mig smátt og smátt fyrir landi sínu og þjóð sem og fólk­inu sínu og Islam. Hann sagði mér til dæmis að Jaffa-app­el­sínur væru frá Palest­ínu sem ég ólst upp við að borða í kringum jólin. Þetta var bara annar veru­leiki sem hann kynnti fyrir mér; annar heimur. Við spil­uðum mikið arab­íska tón­list og ég fékk að heyra tungu­málið hans þegar hann las upp úr Kór­an­inum og þegar hann bað. Þetta var allt nýtt.“

Snerist til Islam

Ingi­björg og Salmann giftu sig hjá sýslu­manni árið 1994. Hún gerð­ist múslimi þremur árum síðar.

„Þetta var bara annar veru­leiki sem hann kynnti fyrir mér; annar heimur. Við spil­uðum mikið arab­íska tón­list og ég fékk að heyra tungu­málið hans þegar hann las upp úr Kór­an­inum og þegar hann bað. Þetta var allt nýtt.“

Ingi­björg segir að Salman hafi ekki ýtt á sig að skipta um trú. „Hann sagði alltaf að það væri undir mér komið en það væri skylda sín að fræða mig um Islam en allt hitt væri undir mér komið. Það sem mér fannst það góða við Islam er að allir spá­menn­irnir eru í því og þar með Jesú og Múhameð er sá eini sem bætt­ist við. Og það sem hann var búinn að vera að boða í sinni trú var nákvæm­lega það sama og ég var búin að læra sem krakki um kristna trú nema að Múhameð er ekki í krist­inni trú. Mér fannst vera svo fal­legt sem haft er eftir honum í Kór­an­inum og margt fal­legt varð­andi rétt­læti og sið­ferði. Þetta varð til þess að ég skipti um trú því ég var í raun­inni ekk­ert að skipta svo mikið um trú. Við trúum alveg á sama guð­inn og alla spá­menn­ina en það bætt­ist bara einn við.“

Ingi­björg skráði sig úr þjóð­kirkj­unni og fór með trú­ar­játn­ingu Islam. Vitnin voru tvö. „Þá var það búið.“

Múslímar biðja almennt fimm sinnum á dag en Ingi­björg segir að þau hjónin hafi ekk­ert gert það almennt. „Ég bað hins vegar fimm sinnum á dag þegar ég var að fasta. Við reyndum okkar besta en að sjálf­sögðum erum við bara mennsk og ekki full­komin.“

Hjónin eiga tvö börn, son og dóttur, og ólust þau upp í Islam.

Ingi­björg segir að hún og fjöl­skylda sín hafi orðið fyrir for­dómum vegna þess að þau eru múslímar. Hún segir að flestir séu jákvæðir gagn­vart því en að auð­vitað séu und­an­tekn­ingar. „Ég lít alltaf miklu meira á það góða og fal­lega sem er í kringum okkur. Varðandi for­dóma þá hef ég til dæmis heyrt sagt að sumir myndu ekki líta mig réttum augum þegar ég hef sett upp slæðu, hijab. Við höfum orðið fyrir for­dómum þegar við höfum verið að fasta sem hafa meðal ann­ars falist í athuga­semdum og svo höfum við fengið hót­anir; fólk hefur hringt og sagst vera fyrir utan heim­ili okkar og hótað að drepa okkur af því að við erum múslímar. Við kærðum einu sinni þegar maður hót­aði að drepa Salman og það fór fyrir dóm. Þetta er vont. Maður er stundum hræddur. Það er engi lygi. Dómarinn spurði hvort við vildum fá ein­hverjar miska­bætur en við Salman sögðum að það væri ekki aðal­málið heldur að láta vita um þetta. Við vildum bara láta vita að það er ekki heil­brigt að láta svona.“

„Tíminn heldur áfram. Mér finnst að hann ætti að stöðvast en hann heldur áfram og ég þarf alltaf að takast á við nýjan dag.“

Draumur Salmans var að moska risi í Reykja­vík. „Ég trúði því ekki að hann myndi deyja áður en moskan risi. Þetta var for­gangs­mál hans.“ Ingi­björg segir að Félag múslíma, sem Salman stofn­aði, hafi enn vil­yrði fyrir lóð við hlið Herkast­al­ans en að enn vanti fjár­magn til að hefja fram­kvæmdir. „Við erum að fjár­magna þetta sjálf og það gengur fremur hægt.“

Sprautað á okkur gasi

Ingi­björg, Salman og börn bjuggu í Palesínu í eitt ár frá 1990-1991 og hún hefur oft farið þangað.

„Við bjuggum fyrst í borg­inni Ramallah, sem er á Vest­ur­bakk­anum, og svo í Palest­ínu, í Jer­úsalem sjálfri. Það var rosa­lega gott að eiga heima þarna þó við höfum verið þar á mjög slæmum tíma. Það var Intifada-upp­reisn; Intifada þýðir upp­reisn. Um var að ræða röð mót­mæla Palest­ínu­manna á árunum 1987 -1993 þar sem þeir mót­mæltu her­námi Ísra­els­manna. Það voru mikil átök og mörg dauðs­föll. Við og fjöl­skylda Salmans tókum einu sinni þátt í mót­mælum. Það var sprautað á okkur gasi og skotið í átt­ina að okkur. Fólk gerir sér ekki grein fyrir hvernig þetta er nema að upp­lifa það. Þetta var rosa­lega mikil tauga­veiklun og hræðsla. Mágkona mín sá að það var búið að setja strák í her­bíl og hún kall­aði á mig og bað mig um að koma af því að ég var ljós­hærð og þá urðu Ísra­els­menn­irnir hræddir og vildu ekki láta sjá hvað þeir voru vondir. Við rif­umst báðar við þá – og ég á íslensku – og við björg­uðum þarna alla­vega einum 13 ára stráki.“

Ingi­björg segir að fólk hafi verið ein­stak­lega elsku­legt við sig, ljós­hærðu kon­una með fjögur börn; dætur Salmanns af fyrra hjóna­bandi fóru með þeim út ásamt dóttur Ingi­bjargar og syni sínum, Yousef, sem var þá eins árs.

„Gömlu kon­urnar í gömlu borg­inni þar sem við versl­uðum í mat­inn voru svo góðar og ynd­is­legar. Þær voru farnar að þekkja mig og vissu hvað ég væri að fara að kaupa og voru farnar að kenna mér hvað mat­ur­inn og hlut­irnir hétu á arab­ísku. Stræt­is­vagna­bíl­stjór­inn stopp­aði og beið eftir mér með allan skar­ann ef hann sá okkur. Það var ynd­is­legt að eiga heima þarna á þessum tíma. Það var alveg æði. Ég hef aldrei kynnst eins góðu fólki.“

Fjöl­skyldan flutti til Íslands um það leyti sem Persaflóa­stríðið skall á. „Það var byrjað að reyna að redda gas­grímum og fólk var farið að tala um hvernig það ætti að snúa sér í þessu öllu og þá ákváðum við að fara heim. En það er alltaf jafn­ynd­is­legt að koma til Palest­ínu. Menn­ingin er ynd­is­leg. Það er farið niður í bæ og það eru allir að toga í mann og vilja láta mann kaupa eitt­hvað af sér. Svo standa menn með tanka á bak­inu og er að selja djús sem er rosa­lega þægi­legur í þessum hita. Maður kemur við vegg­ina í gömlu borg­inni við kast­ala sem þar er og hugsar með sér hvað þetta er rosa­lega gam­alt og hve margir hafa komið við veggi gömlu borg­ar­innar í Jer­úsalem. Það er ekki hægt að lýsa til­finn­ing­unni. Við förum í mosku og kirkj­una þar sem Jesú er graf­inn,“ segir Ingi­björg en Kirkja hinnar helgu grafar í Jer­úsalam er einn mesti helgi­dómur krist­inna manna og var reist í kringum graf­hýsi þar sem talið er að Jesú hafi verið graf­inn. „Við höfum gengið þar sem hann á að hafa stoppað með kross­inn. Veistu það, það er ekki hægt að lýsa þessu nema að fara þangað og finna þessa til­finn­ingu. Þetta er svo rosa­lega heil­agur staður fyrir mann­kynið.“

Aðstoðaði hælisleitendur

Lífið hélt áfram á Íslandi. Ingi­björg vann um ára­bil sem hjúkr­un­ar­rit­ari á Land­spít­al­anum og hjónin stofn­uðu þrjú fyr­ir­tæki. Barna­fata­versl­un­ina Tinna, þung­arokksversl­un­ina Kiss og pít­sa­stað. Fjöl­skyldan stækk­aði og barna­börn fóru að koma í heim­inn. Í dag eru barna­börnin 12. „Við vorum mikið fjöl­skyldu­fólk og vorum mjög oft með mat­ar­boð þar sem öllum börnum og barna­börnum var boðið.“

„“Mér finnst vera sorg­legt þegar fólk er sent úr landi. Það skilur eftir stórt sár í hjarta mínu.“

Salman aðstoð­aði marga hæl­is­leit­endur sem komu til lands­ins og árið 2012 tóku hjónin að sér 15 ára gamlan dreng frá Marokkó sem kom fylgd­ar­laus til lands­ins og bjó hann hjá þeim í fjögur ár. Ingi­björg kallar hann fóst­ur­son þeirra. „Hann er búinn að eign­ast barn með íslenskri konu og eru þau búin að kaupa sér hús. Það má segja að Salman hafi verið félags­full­trúi hæl­is­leit­enda en ef ein­hvern vant­aði aðstoð eða eitt­hvað þurfti að gera þá mætti hann. Hann túlk­aði fyrir þá og hjálp­aði þeim varð­andi hús­næði. Hann var til staðar og hann var alltaf til í að hjálpa öllum.“ Ingi­björg segir að sér finn­ist að það ætti að bjóða alla vel­komna sem sækja um hæli á Íslandi. „Það á ekki að setja fólk í ein­hverja dilka. Það á að bjóða fólk vel­komið ef það er með hreinan skjöld. Sumt af þessu fólki er hámenntað og það þarf kannski að hjálpa því smá­vegis til að aðlag­ast land­inu og nýta sér menntun sína. Heims­mynd mín hefur stækkað mikið eftir að ég bjó í Palesínu og einnig sam­kennd mín með fólki sem lendir í ein­hverju hvort sem það er hér eða ann­ars staðar. Ef ég fengi að ráða fengju allir að vera hjá mér – bæði dýr og menn.“

Krabbinn

Salman fór að finna til heilsu­leysis tengt hjart­anu sem hann lifði með í mörg ár. „Ég þekki ekki annað í mörg ár en að vera með hann inn og út af spít­ala. Það voru alls konar vanda­mál tengd hjart­anu og við höfum þurft að kveðja hann þrisvar sinnum. Hjarta­vöðvinn var of stór.“

Salman greind­ist með krabba­mein í brisi í des­em­ber 2016 og fór í aðgerð í mars árið 2017. Allt virt­ist ganga vel en svo greind­ist hann aftur í des­em­ber 2019. „Þá fundu þeir krabba­mein í eitl­unum og í öðru lung­anu en þetta voru mein­vörp eftir síð­asta krabba­mein. Svo var þetta smátt og smátt að aukast og var komið í lifr­ina og þá vorum við látin vita að hann væri kom­inn með fjórða stigs krabba­mein og það væri ekk­ert hægt að gera.“

Ingi­björg segir að þegar Salman hafi greinst í fyrra skiptið þá hafi hún hugsað með sér að þetta væri ekk­ert sem þau hefðu ekki ráðið við áður. „Hann fór í aðgerð­ina og krabba­meinið fór. Við höfðum það gott og vorum ekk­ert mikið að pæla í þessu. Svo kom eitt­hvað óeðli­legt fram í blóðprufu áður en hann greind­ist í síð­ara skiptið og þá var okkur sagt að hann væri aftur kom­inn með krabba­mein. Ég hugs­aði þá með mér að þetta væri enn eitt verk­efni í við­bót til að takast á við og að nú þyrftum við að ganga í gegnum þetta aftur. Hann þurfti að fara í lyfja­gjafir sem tóku svo­lítið á. Ég verð mjög sterk þegar vanda­mál eru ann­ars vegar en þá ein­blíni ég á verk­efnið sem þarf að klára. Ég hugs­aði alveg um Salman sem var stundum fár­veikur inni á bað­her­bergi og búinn að kasta upp eftir lyfja­gjafir. Það var ekk­ert annað að gera. Þetta var verk­efni sem þurfti að takast á við. Svo var sagt að að hann færi ekki í fleiri lyfja­gjafir og þá fóru að renna á mig tvær grímur. Ég tal­aði við lækni og sagði að þeir hlytu að geta fundið ein­hver lyf fyrir hann og að það gengi ekki að hann væri lyfja­laus. Ég varð bæði hrædd og örvænt­ing­ar­full; ég var hrædd um að missa hann. Þetta voru bland­aðar til­finn­ingar. Ég hugs­aði um hvernig það yrði fyrir börnin mín að missa pabba sinn og barna­börnin að missa afa sinn. Ég var ekki svo mikið að pæla í mér sjálfri. Salman var besti vinur minn og stóra ástin í lífi mínu og hann er far­inn frá mér. Ég held ég sé ekki búin að átta mig á því að hann sé far­inn. Mér finnst eins og hann sé í útlöndum. Mér finnst ég alveg eins eiga von á honum aftur. Ég er kannski að vinna mér inn hug­arró. Ég veit það ekki.“

Salman lést á heim­ili sínu umkringdur fjöl­skyldu sinni og Iman – trú­ar­leið­toga – sem las bænir upp úr Kór­an­inum þegar hann var að kveðja þetta líf. „Það héldu allir ein­hvers staðar í hann og þannig fór hann frá okkur ljúft inn í Paradís.“

„Ég hef grátið mikið. Mér finnst vera leið­in­legt að koma heim og það er eng­inn heima. Næturnar eru erf­iðar.“

Sorgin

Áföllin hafa verið nokkur í gegnum tíð­ina, en Ingi­björg vill ekki segja frá miklu, og hún seg­ist hafa krassað á vinnu­stað árið 2013. Hún hefur síðan verið á örorku­bótum. „Ég brotn­aði niður. Það var eins og ég væri að fá hjarta­á­fall. Andleg heilsa mín var ekki búin að vera góð. Ég var búin að takast á við gríð­ar­lega mörg vanda­mál og byrgja þau inni. Ég fór á geð­deild og fékk róandi lyf og var talað um tauga­lost. Ég fór til sál­fræð­ings í fram­hald­inu og hef síðan verið með kvíða og kvíða­röskun; ég held ég hafi glímt við kvíða frá því ég var barn. Það kom allt upp á yfir­borðið. Ég komst í geð­heilsuteymi og þar fékk ég mikla hjálp. Ég hef farið í gegnum lífið á hörkunni. Á hnef­anum. Það var það eina sem ég kunni. Ég er farin að þekkja til­finn­ingar mínar og leyfi þeim að koma út í stað þess að fara allt á hnef­anum. Það þarf að tala og tjá sig og segja frá ef manni líður illa en ef maður gerir það ekki þá kemst maður í sál­ar­kreppu. Salman var búinn að berja í mig stál­inu í gegnum árin og segja mér að leita mér hjálpar. Ég leit­aði mér nokkrum sinnum hjálpar og svo fannst mér það vera ómögu­legt. Hann vissi að ég myndi krassa einn dag­inn. Hann var ánægður að ég væri búin að vera að vinna í mér síð­ustu ár og sáttur þegar hann dó. Hann vissi að ég var orðin sterk.“

„Ég hef farið í gegnum lífið á hörkunni. Á hnef­anum. Það var það eina sem ég kunni.“

Ingi­björg fer ekki lengur til sál­fræð­ings „Ég fer bráðum á nám­skeiðið „Maka­missir“ á vegum Krabba­meins­fé­lags­ins og þar getur maður talað um sorg­ina, missi maka og fleira og það er ábyggi­lega viss úrás.“

Ingi­björg seg­ist vera kvíðin fyrir fram­tíð­inni. „Ég er hrædd við það sem er fram undan. Ég spyr mig hvort ég geti haldið hús­næð­inu, hvort ég verði nóg fyrir krakk­ana eins og við Salman erum búin að vera og ég finn fyrir kvíða fyrir að stand­ast ekki kröfur. Ég veit að ef ég væri með Salman við hlið mér þá gætum við talað saman og kom­ist að nið­ur­stöðu. Mér finnst vera vont að hafa hann ekki til að ræða um þetta. Við ræddum oft snemma á morgn­ana í um klukku­tíma um lífið og til­ver­una.“

Ingi­björg seg­ist vera inn­an­tóm. „Ég hef grátið mikið. Mér finnst vera leið­in­legt að koma heim og það er eng­inn heima. Næturnar eru erf­iðar. Salman horfði oft á sjón­varpið inni í stofu eftir að hann veikt­ist og gat ekki sofið og þegar ég vakna á næt­urnar þá fer ég oft inn í stofu og bíð eftir að hann segi „hæ, ég var að bíða eftir þér“ eins og hann sagði alltaf á þessu tíma­bili þegar ég vakn­aði líka á nótt­unni og fór inn í stofu. Það er svo margt svona sem er svo erfitt. Ég á sem betur fer góða fjöl­skyldu og við erum búin að vera mikið saman.“

Ingi­björg hefur dreymt Salman eftir að hann dó. Hún segir frá eft­ir­minni­legum draumi. „Mér fannst vera rosa­lega mik­ill snjór í Reykja­vík og við Salman vorum úti með krakk­ana eitt­hvað að ves­en­ast. Svo sagði hann við mig: „Búum til engil.“ Ég spurði hann síðan hvenær hann nennti að gera engil í snjónum og sagði að ég hafi verið búin að biðja hann um það í mörg ár. Hann lagð­ist síðan í snjó­inn og gerði engil og sagði mér að gera líka engil.“

Ingi­björg segir að hún hafi haldið að tím­inn myndi stöðvast þegar sorgin bank­aði upp á. „Tíminn heldur áfram. Mér finnst að hann ætti að stöðvast en hann heldur áfram og ég þarf alltaf að takast á við nýjan dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi