Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hver er Hallur Gunnar? Strauk úr Vesturbænum, níddist á börnum og þvottavélin kom honum í klandur

Hver er Hallur Gunnar? Strauk úr Vesturbænum, níddist á börnum og þvottavélin kom honum í klandur

Hallur Gunnar Erlings­son Reyndal var aðeins þriggja ára þegar hann var fyrst til umfjöll­unar í fjöl­miðlum. Í febr­ú­ar­mán­uði árið 1964 fjall­aði Þjóð­vilj­inn um ævin­týra­legt strok Halls Gunnars af gæslu­velli í Vest­ur­bænum. Guttinn fór víða um bæinn, nokk­urra kíló­metra leið í leit að heim­ili sínu. Lýst var eftir Halli Gunnari í útvarpi og fjöl­margir borg­ar­búar voru ugg­andi og ótt­uð­ust hið versta. Björg­un­ar­sveitir voru í við­bragðs­stöðu til þegar útvarpið flutti þjóð­inni mikil gleði­tíð­indi, en nánar er fjallað um strok Halls Gunnars hér neðar.

Fimmtíu og sjö árum síðar er aftur leitað að Halli. Rétt eins og árið 1964 skaut hann þjóð sinni skelk í bringu. Skotið hafði verið á fjöl­skyldu­bíl Dags B. Egg­erts­sonar og þjóðin var slegin óhug. Byssu­maður gekk laus.

Hallur Gunnar var hand­samaður og aftur fagn­aði þjóð­inn að Hallur væri fund­inn en sú gleði var á öðrum for­sendum.

Eitt sinn glödd­ust lands­menn að lít­ill þriggja ára drengur kæmst aftur í fang móður sinnar. Nú varp­aði þjóðin önd­inni léttar að Hallur, grun­aður um að vera óði byssu­mað­ur­inn með ægi­lega for­tíð, sat á bak­við lás og slá, þessi fyrr­ver­andi lög­reglu­þjónn og barn­a­níð­ingur sem hafði fengið upp­reist æru fyrir sín skelfi­legu ódæð­is­verk.

Í þess­ari nær­mynd verður fjallað um Hall Gunnar Erlings­son Reyndal, fyrr­ver­andi lög­reglu­þjón, barn­a­níð­ing og byssu­mann. Hann sat í gæslu­varð­haldi en losnar í dag.

Strok hljóp í snáðann

Aðeins þriggja ára gam­all er Hallur Gunnar fyrst til umfjöll­unar í fjöl­miðlum. Árið er 1964 og þó Þjóð­vilj­inn sé aðeins 12 síður er mál­gagn Sós­í­alista í fullu fjöri, frétt­irnar áhuga­verðar og spriklandi skemmti­legar en þess má geta að blað­inu var lagt árið 1992.

Á bak­síð­unni 19. febr­úar er fjöldi merki­legra tíð­inda og þarna kennir ýmissa grasa. Íbúar í Þor­láks­höfn eru illir vegna hafn­ar­fram­kvæmda og flug­mála­sam­band Norð­ur­lands er stofnað. Þá verður ekki hjá því kom­ist að rifja upp er eldri maður og lít­ill frændi hans lentu í hremm­ingum í Háskóla­bíó. Í miðri sýn­ingu upp­götv­að­ist að litli kútur var las­inn. Þeir fengu hvergi að fara enda strang­lega bannað í Háskóla­bíó að hleypa fólki út í miðri sýn­ingu. Neyddust þeir til að dúsa í kvik­mynda­hús­inu þar til tjaldið féll.

Allt var þetta og fleira til umfjöll­unar á bak­síðu Þjóð­vilj­ans. Neðst á síðu 12 lesum við um kjörna full­trúa er þáðu boðs­ferð gæsl­unnar til að skoða Surtsey. Á meðan þing­menn flugu yfir sótsvörtu nýju landi þann 18. febr­úar fékk Hallur Gunnar 3 ára nóg af vist sinni hjá fóstrum á Drafna­borg í Vest­ur­bænum. Hann laum­aði sér af gæslu­vell­inum og setti stefn­una á mið­bæ­inn, þaðan upp í holtin, í átt­ina að Bar­óns­stíg 65. Eitt og annað freist­aði hans á leið­inni svo á meðan flótt­anum stóð var útvarpið komið í spilið. Í blað­inu segir:

„Hann heitir Hallur Gunnar Erlings­son. Ráð­staf­anir höfðu verið gerðar til þess að boða út leit­ar­flokk með til­kynn­ingu í útvarp­inu.“

Lítið að frétta

Þá segir ekki af Halli Gunnari fyrr en árið 1980 er hann ásamt bróður sínum skrifar minn­ing­ar­grein um tvo vini sína er far­ast í átak­an­legu sjó­slysi í Vest­manna­eyjum. Þá líða 20 ár og Vísir gefur Halli pláss í til­efni fer­tugs­af­mælis árið 2000. Það eru aðeins þrjú ár í að verði opin­berað að Hallur Gunnar er barn­a­níð­ingur sem svífst ein­skins.

Árið 2003 er það stað­fest sem margað hafa grunað. Fyrr­ver­andi lög­reglu­þjónn­inn, Hallur Gunnar er dæmdur í hér­aðs­dómi. Nið­ur­staðan er aðeins 18 mán­aða fang­elsi fyrir hrotta­leg og ítrekuð kyn­ferð­is­brot gegn þremur börnum en stúlk­urnar tengd­ust honum fjöl­skyldu­böndum. Brot Halls ná yfir langt tíma­bil. Hallur neitar sök en Hæsti­réttur stað­festir dóm­inn síðar það sama ár.

Ótrúlegt atvik í Grafarvogi

Áður en við fjöllum nánar um dóms­nið­ur­stöðu, sví­virði­leg brot og vægan dóm fyrir hrotta­leg kyn­ferð­is­brot er stóðu yfir í fleiri ár, verðum við að koma við á vef DV og nú er árið 2016. Hallur Gunnar er þar þátt­tak­andi í einni af furðu­fréttum mið­ils­ins. Fréttin fór víða og skemmti mörgum og hneyksl­aði aðra. Í aðal­hlut­verki voru maður að nafni Örn sem fer að mati les­enda með hlut­verki hetj­unnar, Hallur Gunnar var skúrk­ur­inn og þriðja hlut­verkið var í höndum þvotta­vélar.

Í frétt DV sagði:

„Ótrúlegt atvik átti sér stað í Graf­ar­vogi en Örn nokkur kvaðst hafa orðið gap­andi hissa þegar maður á nýlegum Hilux jeppa kom á plan á Krók­hálsi þar sem hann Örn geymdi vagna. Þar henti mað­ur­inn út þvotta­vél sem og umbúðum af nýrri vél.“

Þvotta­vélin á plan­inu hjá Erni

Furðu­lost­inn fylgd­ist Örn með hátta­lagi manns­ins en undir stýri var Hallur Gunnar. Örn reyndi að stöðva för hans en Hallur lét sem hann sæi hann ekki og stakk af.

„Ég hringdi í lögg­una og hún ætl­aði að gera eitt­hvað í mál­inu og eftir þrjá tíma var ruslið enn þá þarna svo ég hringdi aftur og svarið var bara að hringja á skrif­stofu­tíma – svo ég tók málið í mínar hendur,“ sagði Örn en þegar lög­reglan lét ekki sjá sig tók hann málin í sínar hendur.

Hann fann út hvar Hallur átti heima, henti þvotta­vél­inni á pall­bíl og ók með hana inn í fínt og fal­legt hverfi í Graf­ar­vogi. Örn segir eig­anda vél­ar­innar hafa verið heima, í felum á bak­við gard­ínur. Örn steig út úr bílnum, náði í vél­ina, mjak­aði henni og henti svo vél­inni á planið hjá Halli.

Örn búinn að skila þvotta­vél­inni

„Hann var búsettur í stóru ein­býl­is­húsi á flottasta stað í Graf­ar­vogi. Hann stóð í glugg­anum og horfði á mig að koma með dótið. Hann lét eins og hann sæi mig ekki. Hann sá mig alveg og pass­aði sig á að koma ekki til dyra,“ sagði Örn við DV.

Æran þvegin í Dómsmálaráðuneytinu

Í dómnum yfir Halli er hið hræði­lega mál reyfað. Rétt er að vara les­endur við því að hér fyrir neðan er farið nokkuð ítar­lega yfir gróf kyn­ferð­is­brot Halls og gæti það vakið óhug les­enda.

Hallur Gunnar beitti barn­ungar frænkur sínar grófu kyn­ferð­is­of­beldi ótal sinnum á árunum 1995 til 2000. Tvær þeirra voru ein­ungis 11 ára þegar ofbeldið hófst. Hallur var dæmdur fyrir að strjúka einu barn­inu um brjóst hennar, læri og kyn­færi utan og innan klæða. Þá reyndi hann marg­sinnis að stinga tung­unni upp í hana.

Önnur frænka Halls mátti þola gróft kyn­ferð­is­of­beldi af hans hálfu frá 11 ára aldri og þar til hún varð 16 ára. Hallur Gunnar káf­aði á brjóstum hennar, maga, lærum og kyn­færum, bæði innan og utan klæða. Ítrekað reyndi Hallur að stinga tungu sinni upp í barnið.

Þriðji þol­and­inn var 12 ára telpa. Hallur Gunnar m.a. káf­aði á brjóstum hennar og reyndi að kyssa það á háls­inn.

Rétt er að minna les­endur á að kyn­ferð­is­brot Halls stóðu yfir í mörg ár.

Nið­ur­staða dóm­ara í hér­aði og í Hæsta­rétti var mörgum sár von­brigði. Fyrr­ver­andi lög­reglu­þjónn sem braut á og mis­not­aði sér traust barna um ára­bil fékk 18 mán­aða fang­elsi­dóm.

Hallur dásamaður

Hallur afplán­aði sinn dóm og hefur lík­lega verið lát­inn laus eftir tólf mán­uði af átján, hann gæti jafn­vel hafa losnað á helm­ing. Slíkt er algengt. Hallur hélt einnig fram sak­leysi sínu, tók hann fyrir að vera kyn­ferð­is­brota­maður, hvað þá að níð­ast kyn­ferð­is­lega á frænkum sínum. Þetta var ein­hver mis­skiln­ingur.

Nokkrum árum síðar, ákvað Hallur að sækja um upp­reist æru. Með umsókn umsækj­anda átti að fylgja tvær eins konar yfir­lýs­ingar frá fólki sem gat vottað um að við­kom­andi hefði tekið sig á og væri betri mann­eskja. Í stað tveggja vott­orða um bætta hegðun, skil­aði Hallur sjö.

Líkt og fram kemur á vef Rúv og mbl.is árið 2017 voru þrjú bréf­anna rituð skömmu áður en hann sótti um upp­reist æru. Tvö bréf­anna voru skrifuð áður en dómur féll og munu þau ekki hafa verið skrifuð í tengslum við upp­reisn æru umsókn­ina.

Í bréf­unum er farið afar fögrum orðum um Hall Gunnar. Honum er lýst sem sam­visku­sömum, góðum föður, nákvæmum, vinnu­sömum og góðum.

Þá er hann sagður kátur.

Meðmælendurnir, hverjir eru þeir?

Gunnar Þor­steins­son virð­ist þekkja Hall úr starfi. Ekkert kemur fram annað en nafn hans og því óljóst hvort Gunnar kenndur við Krossinn skrifar eða alnafni hans. Hann hefur ekki enn svarað fyr­ir­spurn Mannlífs. Gunnar þessi skrifar:

„Ég kynnt­ist Halli á árinu 2002. Hann hefur reynst vera ábyrgur og traustur. Í mann­legum sam­skiptum býr hann yfir ágætum eig­in­leikum. Hann er góður eig­in­maður og faðir og hefur náð að halda utan um sína nán­ustu og veita þeim skjól og hlýju í stormum lífs­ins. Hann er röskur til starfa og fylg­inn sér í verki. Þau verk­efni sem hann hefur tekið að sér hefur hann unnið með miklum sóma og metn­aði.“

Ólafur nokkur Guð­munds­son segir Hall ávallt vera með bros á vör. Lítið er læsi­legt í hans með­mælum því búið er að fjar­lægja bróð­ur­part bréfs­ins. Þó segir þar:

„Hallur er mjög dug­legur og ósér­hlíf­inn […] sem sinnti starfi sínu af alúð. Hann var alltaf til­bú­inn að vinna hvort sem var á nóttu eða degi. Hann var alltaf kátur og bros­andi og þægi­legur í við­móti.“

Friðrik Ingvi Jóhanns­son seg­ist hafa kynnst Halli árið 1987 og eftir það hafi þeir orðið vinir.

„Vinátta sem hald­ist hefur og staðið alla raun […] sínu af dugn­aði og sam­visku­semi. Hann gætti ætíð hófs, var vand­virkur og var­kár bæði í orðum og athöfnum. Hann bar öryggi sam­starfs­manna sinna […] mjög fyrir brjósti og kom óum­beðið til aðstoðar. […]

Ég kynnt­ist einnig eig­in­konu […] en þau hjónin hafa búið börnum sínum gott heim­ili, hlúð að þeim og hvatt þau áfram af mik­illi alúð og engu óhófi. Við […] ásamt fjöl­skyldum okkar höfum heim­sótt hvora aðra. Hafa þau kynni öll verið hin ánægju­leg­ustu. Einnig höfum við ferð­ast saman okkur öllum til mik­illar ánægju, en lítið hefur orðið úr því síð­ustu árin.“

Lárus Kjart­ans­son er einn þeirra sem baðst síðar afsök­unar á því að hafa skrifað með­mælin. Hann kynnt­ist Halli við sam­eig­in­leg störf sem varð að vin­áttu. Lárus skrif­aði:

„Eftir að Hallur hætti störfum […] hefur vin­átta okkar haldið áfram og erum við í reglu­legu sam­bandi. Ég hef kynnst fjöl­skyldu hans og oft komið inn á heim­ili hans, sem er mjög fal­legt og snyrti­legt.

Nokkrir sem höfðu starfað sem lög­reglu­þjónar, og gera sumir enn, skrif­uðu með­mæli með Halli. Síðar kom í ljós að það höfðu þeir gert áður en Hallur hlaut dóm og vissu þeir ekki að bréfin yrðu not­aði í þeim til­gangi. Þau bréf eru flest nokkuð stutt. Grétar Sæmunds­son, þáver­andi aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn, skrifar:

„Í störfum sínum hefur hann sýnt af sér frum­kvæði og verið ósér­hlýf­inn og sam­visku­samur.“

Friðrik Björg­vins­son yfir­lög­reglu­þjónn virð­ist einnig vera að mæla með Halli sem starfs­manni en ekki að hann fái upp­reistn æru.

„Hann hefur marga góða kosti til að bera sem prýða þurfa […] er stund­vís, sam­visku­samur, ósér­hlíf­inn og lipur í mann­legum sam­skiptum. Hann hefur og sýnt mikið frum­kvæði í stafi en frum­kvæði er for­senda þess að árangur náist.“

Benedikt Lund, fyrr­ver­andi lög­reglu­maður, skrif­aði einnig ódag­setta umsögn en þar segir:

„Ég kynnt­ist [Halli] er hann hóf störf […] Síðan hef ég fylgst með Halli í leik og starfi. Hallur er mjög fylg­inn sér við það sem hann tekur sér fyrir. Hann á mjög gott með að lynda við fólk, hefur létta lunda og á afar gott með að kynn­ast fólki. […] hefur verið mik­ill áhuga­maður um íþróttir.“

Hetja stígur fram

Árið 2017 steig Anna Signý Guð­björns­dóttir fram í við­tali við RÚV eftir að í ljós kom að æra Halls Gunnars hafði verið þveg­inn í dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Að veita barn­a­níð­ingi upp­reist æru er að lýsa yfir að hann sé með hreinan skjöld og það aðeins nokkrum árum eftir að Hallur losn­aði úr fang­elsi. Það var Önnu Signý mikið áfall að fá frétt­irnar. Þar sagði hún að sterkasta vopn barn­a­níð­inga sé þögg­unin. Anna Signý sagði að með ákvörð­un­inni væri verið að stað­festa það sem Hallur Gunnar hafði alltaf haldið fram:

„Hann hafði ekki gert neitt rangt.“

Hallur Gunnar hefur aldrei sýnt iðrun, segir Anna og bendir á að í bréfi til for­seta kemur hvergi fram að hann iðrist gjörða sinna.

„Og hann hefur ekki gert það síðan.“

Anna upp­lýsti að henni hefði borist tölvu­póstur frá Halli Gunnari eftir að hann frétti að hún ætl­aði að slíta öllum sam­skiptum við hann. Það gerði hún vegna fjöl­skyldu­tengsla og vildi vernda sitt fólk.

„Ég ákvað að slíta sam­bandi við þau öll, til þess að vernda mig og mín börn. Þá sendi hann mér póst og segir að EF hann hefur gert eitt­hvað, þá biðst hann afsök­unar. Og þetta EF… ég hló og ég varð sár og ég varð reið… þannig að nei, hann hefur aldrei sýnt neina iðrun.“

Anna segir Hall Gunnar halda fram að málið sé á mis­skiln­ingi byggt. Sá mis­skiln­ingur sé fólgin í því að stúlk­urnar ljúgi. Hann sé sak­laus. Finnst Önnu að með því að veita honum upp­reist æru sé verið að færa honum vopn í hend­urnar.

„Nú er hann bara kom­inn með gögn og getur sagt að hann sé kom­inn með hreinan skjöld núna. Það særir mig, mér líður mjög illa yfir því.“

ég varð sár og ég varð reið

Margar ákvarð­anir for­seta og dóms­mála­ráð­herra hafa verið umdeildar og vakið reiði. Þá sprakk rík­is­stjórnin á end­anum er í ljós kom að Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, veitti barn­a­níð­ingi sín með­mæli. Gladdi það Önnu að oftar virt­ist hlustað á þolendur.

„Ég í raun­inni sagt varla trúði þessu og ég var bara svo glöð, að það sé verið að taka mark á þessu. Verandi fórn­ar­lamb barn­a­níð­ings þá er maður alltaf að efast um þetta.“

Viðtalið við Önnu Signý er afar áhrifa­ríkt og mun án efa hafa hjálpað öðrum þolendum að stíga fram. Kyn­ferð­is­brot eiga ekki að vera í þögg­un­inni. Anna Signý segir:

„Þöggunin er stærsta vopn ger­and­ans og ég ætla að taka þetta vald til baka sem hann hafði yfir mér öll þessi ár.“

Hér má horfa á við­talið við Önnu.

Verð að vernda sjálfa mig og mín börn

Anna Signý seg­ir mann­inn aldrei hafa viður­kennt brot­in og tel­ur mögu­legt að Hallur átti sig ekki á því að hann hafi gert eitt­hvað rangt. Hún sleit sam­skipt­um við mann­inn, hálf­syst­ur sína og fjöl­skyldu þeirra 2014.

„Ég ákvað að ég yrði að vernda sjálfa mig og mín eig­in börn. Þá sendi hann mér tölvu­póst og þar rit­ar hann að ef hann hafi gert eitt­hvað biðj­ist hann af­sök­un­ar og seg­ir að það sé al­menn­ur mis­skiln­ing­ur að með því að fyr­ir­gefa eitt­hvað sé maður að sam­þykkja það sem hef­ur gerst. Svo biðst hann af­sök­un­ar á að trufla mitt til­finn­inga­líf og eitt­hvað svona. Þetta var ótrú­lega skrítið og þetta:

Ef ég gerði eitt­hvað þá biðst ég af­sök­un­ar.

Hann er dæmd­ur barn­aníð­ing­ur. Það fer ekk­ert á milli mála að það er ekk­ert ef. Hann gerði þetta og þetta er ótrú­lega erfitt af því sem barn, að lenda í þessu, þá trú­ir maður þessu ekki og fer að ef­ast um sjálf­an sig og þegar hann seg­ir svona, ef, þetta er bara valdið sem hann er að sýna fram á. “

Barnaníðingur stjórnarmaður

Vilhjálmur Svan

Hallur Gunnar var síðan til umfjöll­unar í DV árið 2018 þegar fjallað var um nytja­mark­að­inn Von. Formaður félags­ins var Vil­hjálmur Svan Jóhanns­son. Hann var sak­aður um að fá muni úr dán­ar­búum til að selja á nytja­mark­að­inum en hluti hagn­að­ar­ins átti að renna til góð­gerð­ar­fé­laga.

Í DV var greint frá að félög sem Vil­hjálmur kvaðst styrkja opin­ber­lega sáu ekki krónu. Hjá Von störf­uðu síðan tveir barn­a­níð­ingar, annar þeirra var Hallur Gunnar, og var hann um tíma stjórn­ar­maður hjá Von. Aðspurður hvort ekki væri ábyrgð­ar­hluti að ráða slíka menn í vinnu, svar­aði Vil­hjálmur:

„Eiga menn engrar upp­reisnar von? Ég hafði ekki hug­mynd um að Hallur hefði lent í ein­hverju ves­eni. Ég get svarið það, það kom bara upp einn dag­inn. Mér kemur það mjög lítið við hvað menn hafa þurft að prófa í ógæfu­garð­inum. Ég hef þurft að prófa það sjálfur.“

Skotárásin

Hallur Gunnar losn­aði úr gæslu­varð­haldi í dag. Stutt er síðan lög­regla taldi hann ógn við almenn­ing. Hefur það breyst? Samkvæmt aðstoð­ar­manni Dags B. Egg­erts­sonar virð­ist Hallur hafa lagt fæð á borg­ar­stjóra, en Dagur og Hallur virð­ast ekki eiga sér sam­skipta­sögu.

Það er slá­andi að barn­a­níð­ingi hafi verið veitt upp­reist æru nokkrum árum eftir dóm. Þá þykir mörgum und­ar­legt að til er fólk sem finnst sjálf­sagt að hæla slíkum hrottum í með­mæla­bréfum, dásama mann­kosti þeirra eða allt þar til með­mæl­endur eru opin­beraðir.  Þá verður allt að mis­skiln­ingi.

Þolendur niðurlægðir

Ólafur Ragnar veitti Halli upp­reist æru

Hallur Gunnar fékk for­seta og ráð­herra til að skrúbba af sér allar sýnar syndir, alla vega á pappír. Að  mati þolenda var for­tíð hans fegruð og þótti þeim verkn­aður hinna kjörnu full­trúa vera algjör nið­ur­læg­ing. Sú upp­lifun á algjör­lega rétt á sér.

Þá er rétt að spyrja var það dóm­greind­ar­leysi af hálfu yfir­valda að veita Halli upp­reist æru? Hallur er grun­aður um að hafa í tvígang hleypt af 22 kalí­bera til að ógna  borg­ar­stjóra.

Dæmi nú hver fyrir sig.

Skotárásin hefur haft djúp­stæð áhrif á þjóð­ina alla og hafa flestir fylgt sér á bak­við borg­ar­stjór­ann. Hefur Dagur verið gagn­rýndur af litlum hópi fyrir að sýna til­finn­ingar í fréttum RÚV og það sagt merki um veik­leika. Annar fámennur hópur segir við­talið svið­sett með aðstoð Stefáns Eiríks­sonar útvarps­stjóra en hann var áður borg­ar­rit­ari og náinn sam­starfs­maður Dags.

Hataði Hallur Laugaveginn?

Hvað var það svo sem rak byssu­mann­inn til þess að fremja þetta voða­verk? Kannski fáum við aldrei svör við því né skiljum hvað lág að baki. Hataði hann Sam­fylk­ing­una? Er hann á móti göngu­götum? Vill hann geta ekið allan Lauga­veg­inn á enda?

Líklega fáum við aldrei að vita það.

Hallur neitar að hafa skotið á bíl borg­ar­stjóra, rétt eins og hann tók fyrir að vera kyn­ferð­is­brota­maður. Það eru því litlar lýkur á að for­vitnir Íslend­ingar fái að vita hvað vakti nákvæm­lega fyrir Halli, fari svo að hann verið fund­inn sekur.

Hallur Gunnar er hann starf­aði sem lög­reglu­þjónn

Fyrir viku var Hallur tal­inn hættu­legur öðrum. Í dag hefur það breyst því ekki var farið fram á varð­hald yrði fram­lengt. Hallur kemst því heim til sín í dag.

Fari svo að barn­a­níð­ing­ur­inn og lög­reglu­þjónn­inn fyrr­ver­andi verði dæmdur fyrir að skjóta tveimur byssu­kúlum í fjöl­skyldu­bíl borg­ara­stjóra, þá er lík­legt að ein spurn­ing muni koma upp í huga margra:

Ætli sá dómur verði þyngri en 18 mán­aða dóm­ur­inn sem Hallur Gunnar fékk fyrir að ráð­ast yfir nokk­urra ára tíma­bil með kyn­ferð­is­of­beldi á litlar frænkur sínar, er voru aðeins 11 ára gamlar?

Hvað heldur þú?
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð