Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Róbert stóð frammi fyrir dauðanum en fer nú fram fyrir VG: „Ég bað til guðs; ekki núna!“

Róbert stóð frammi fyrir dauðanum en fer nú fram fyrir VG: „Ég bað til guðs; ekki núna!“
Róbert Marshall átti að verað fram­kvæmda­stjóri.

Róbert Marshall, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar og fjalla­garpur, hefur ákveðið að bjóða sig fram í for­vali VG á Suð­ur­landi fyrir Alþing­is­kosn­ingar í haust. Hann talar hér meðal ann­ars um sprangið í Eyjum, Íraks­frétt­ina sem varð til þess að hann sagði lausu starfi sínu á Stöð 2, stjórn­málin, nátt­úr­una, vélsleða­slysið, Bakkus, Covid og eld­inn innra með sér.

„Við systk­inin erum af Mackay-klan­inu sem er með sína liti í pils­inu og sitt eigið skjald­ar­merki.“

Róbert Marshall – Róbert með „ó“ – er sonur Fríðu Eiríks­dóttur og Anthony Marshall sem var skoskur. „For­eldrar mínir kynnt­ust í London í kringum 1967 þar sem mamma var au pair. Systir mín fædd­ist í London og svo fluttu þau til Íslands þar sem ég fædd­ist og síðar bróðir minn.“

Fjöl­skyldan flutti til Vest­manna­eyja þegar Róbert var þriggja ára, ári eftir að gosið hófst í Eyjum.

„Ég ólst upp fyrstu árin í jaðri nýja hrauns­ins en húsið sem við bjuggum í er um 50 metra frá hraunjaðr­inum. Það rauk upp úr jörð­inni alls staðar í kringum mig.“

Róbert seg­ist hafa átt hefð­bundna Vest­manna­eyja­æsku. „Það var mikið frelsi, ég var í skát­unum og ég var mikið úti í nátt­úr­unni og í fjöll­unum og klett­unum að spranga. Það er í raun og veru mesta furða að maður skyldi hafa kom­ist á legg. Ég var alræmdur hrak­falla­bálkur. Ég held ég hafi 14 sinnum fengið gat á höf­uðið í æsku og mér tókst að brjóta á mér höf­uð­kúp­una við það að spranga. Ég var mjög slys­gjarn; kannski er það ein­hver birt­ing­ar­mynd af ein­hverjum athygl­is­bresti og hvat­vísi. Ég var að taka ákvarð­anir sem end­uðu ekki allar vel.“

Róbert er spurður hvort hann sé með ADHD. „Ég hef ekki fengið slíka grein­ingu og ég er ekki með ADHD miðað við það sem ég hef lesið um hefð­bundið ADHD en ég kann­ast við margt. Ég þarf til dæmis að vanda mig sér­stak­lega við að fók­usera á það sem ég er að reyna að taka inn og er mjög „easily distracted“. Ég var alltaf mjög aktívur og ævin­týra­gjarn og já, öll mín ævi hefur síðan verið þannig.“

„Ég hef ekki fengið slíka grein­ingu og ég er ekki með ADHD miðað við það sem ég hef lesið um hefð­bundið ADHD en ég kann­ast við margt.“

Róbert er svo spurður út í höf­uð­kúpu­brotið. „Ég var að spranga þegar ég var 12 eða 13 ára gam­all. Sprangan er þannig að það er ákveðið kerfi af sillum og stöðum þar sem hægt er að klifra og sveifla sér frá. Ég og vinir mínir vorum auð­vitað svo­lítið búnir að tæma alla mögu­leika í þeim efnum og vorum frekar hug­aðir og kaldir. Síðan var ákveðið að prófa eitt stökk sem var eig­in­lega þannig að maður hélt sér í kað­al­inn, stökk fram af og hrap­aði fyrstu þrjá til fjóra metrana og síðan sveifl­að­ist maður með fram klett­unum á ógn­ar­hraða. Þetta tókst einu sinni hjá mér. Ég gerði þetta síðan aftur og rak þá fót­inn í jörð­ina, hringsner­ist upp í bergið og stein­rot­að­ist. Ég rank­aði síðan við mér í sjúkra­bíl. Það kom sprunga á höf­uð­kúp­una og ég hefði nátt­úr­lega hæg­lega getað drep­ist þarna. Í Eyjum er svo auð­vitað ákveð­inn hópur sem heldur því fram að ég hafi hlotið þarna var­an­legan skaða.“

Skoski arfurinn

For­eldrar Róberts slitu sam­bandi sínu og hann eign­að­ist stjúp­föður, Jóhann Frið­riks­son. Hann seg­ist engin tengsl hafa við föð­ur­fjöl­skyld­una í Skotlandi þar sem pabbi sinn hafi þegar misst for­eldra sína og sinn eina bróður í kringum þann tíma sem hann sjálfur fædd­ist. Róbert heitir í höf­uðið á föð­ur­bróður sínum sem hét Robert – auð­vitað með „o“. „Það er svo­lítið merki­legt að ég hef í seinni tíð sótt svo­lítið í skoska arf­inn. Ég hef farið tals­vert til Skotlands og ferð­ast þar um og farið á fjöll og hjólað um á fjalla­hjóli enda stutt að fara. Ég finn til mik­illar teng­ingar við þetta land, þessa þjóð og þessa menn­ingu. Náttúran er gríð­ar­lega fal­leg. Við systk­inin erum af Mackay-klan­inu sem er með sína liti í pils­inu og sitt eigið skjald­ar­merki. Við Tommi bróðir höfum svo­lítið farið í að kynna okkur þetta og nör­dumst í þessu; förum til dæmis í skota­pils til hátíð­ar­brigða.“

„Ég var alræmdur hrak­falla­bálkur. Ég held ég hafi 14 sinnum fengið gat á höf­uðið í æsku og mér tókst að brjóta á mér höf­uð­kúp­una við það að spranga.“

Róbert eign­að­ist gítar upp úr ferm­ingu og hann fór í kjöl­farið að spila og syngja Eyjalög. „Ég held að Minning um mann sé fyrsta lagið sem ég spil­aði undir þannig að aðrir væru að syngja með. Síðan hefur það verið hluti af lífi mínu að vera í ein­hverri tón­list og eftir því sem ég hef orðið eldri hef ég áttað mig á því hversu mik­il­vægt það er fyrir mig. Ég hef alltaf reynt að vera að sýsla eitt­hvað við tón­list með öllu sem ég hef verið að gera.  Ég gæti senni­lega tekið gít­ar­inn núna og spilað svona 20 Eyjalög án æfingar. Það hjálp­aði líka að ég og félagi minn réðum okkur ein­hver sumrin á pöbb­inn úti í Eyjum og spil­uðum um helgar og höfðum af ágætis tekjur.“ Þess má geta að Róbert sá um brekku­söng­inn á Þjóð­há­tíð fyrir nokkrum árum. 

Blaða- og fréttamennskan

Róbert fór í starfskynn­ingu á Helg­ar­póst­inum þegar hann var 14 eða 15 ára. „Ég hafði þá þegar verið búinn að sjá fyrir mér að það væri eitt­hvað spenn­andi við blaða­mennsku og mér fannst eftir starfskynn­ing­una blaða­mennska vera eitt­hvað sem ég sá fyrir mér að ég gæti feng­ist við. Ég hafði mik­inn áhuga á stjórn­málum og ég vissi að blaða­mennskan væri mikið að spegla þau og maður gæti þá verið svo­lítið í áhorf­enda­sæti að sög­unni. Ég hafði séð kvik­mynd­ina All the Pres­ident’s Men sem fjallar um Watergate-hneykslið; ég er ennþá svona – ég fæ þrá­hyggju gagn­vart ákveðnum málum eins og Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu og til­teknum sögu­legum atburðum sem ég les allt um. Síðan hafði ég og hef enn mjög gaman af því að skrifa; ég er mik­ill texta­maður. Ef ég væri spurður í hverju ég væri góður þá myndi ég segja að ég hefði hæfi­leika til að vinna með texta.“

Róbert við­ur­kennir að Íraks­fréttin sitji ennþá svo­lítið í sér. „Á þessum árum var þó voða lítið sem gat beyglað sjálfs­mynd mína.“

Róbert vann á mennta­skóla­ár­unum úti í Eyjum við fisk­vinnslu, neta­gerð og sjó­mennsku og stúd­ents­húfan fór á koll­inn árið 1993. Hann hóf nám í lög­fræði við Háskóla Íslands haustið 1994 og vann með fram námi við blaða­mennsku á Viku­blað­inu. Hann hætti í lög­fræð­inni eftir eitt ár; segir að sér hafi þótt námið vera leið­in­legt. 

Róbert stundað síðan nám í stjórn­mála­fræði við HÍ á árunum 1995-1997 en á háskóla­ár­unum vann hann í hluta­starfi í blaða­mennsku auk þess á Mannlífi og Degi-Tímanum. Hann kláraði heldur ekki stjórn­mála­fræði­námið. „Ég hafði bara enga eirð í mínum beinum til að klára stjórn­mála­fræð­ina þó ég hefði gaman af henni. Ég starf­aði sem blaða­maður sam­hliða nám­inu og ég hugs­aði oft með mér að að loknu námi færi ég að vinna við nákvæm­lega það sem ég var að vinna við. Ég var mjög fók­user­aður á að gera það sem mér þótti vera skemmti­legt. Ég hef svo í fram­hald­inu sótt mér þá þekk­ingu sem mig hefur skort hverju sinni og gjarnan án þess að ljúka ein­hverjum prófum.“

Róbert var for­maður Verðandi, lands­sam­taka ungra alþýðu­banda­lags­manna, á árunum 1995-1997 og hann var í stjórn Grósku, sam­taka félags­hyggju­fólks um sam­ein­ingu jafn­að­ar­manna, á árunum 1997-1998.

Róbert vann hjá Degi-Tímanum í eitt ár eftir að hann hætti í stjórn­mála­fræði­nám­inu og hóf síðan störf á Stöð 2 þar sem hann var frétta­maður til árs­ins 2005. Hann var for­stöðu­maður frétta­sviðs 365 miðla 2005-2006.

„Það sem stendur upp úr á Stöð 2 er að hafa fengið að kynn­ast öllum þessum sviðum; ég varð fljót­lega mjög vilj­ugur til að læra allar tækni­legar hliðar í sjón­varps­frétta­mennsk­unni – ég klippti mikið sjálfur og ég var oft líka að taka upp og þetta hefur skilað sér síðan í því að ég fór að gera sjón­varps­þætti um úti­vist fyrir RÚV á síð­ustu árum þar sem þekk­ing mín á þessum mörgu sviðum er öll að koma saman í ein­hverja eina afurð.“

Róbert fjall­aði um allt á milli him­ins og jarðar eins og blaða­manna og frétta­manna er siður. „Ég var í slori, glæpum og póli­tík og elskaði þetta starf. Mér þótti alltaf skemmti­leg­ast að fjalla um póli­tík­ina. Hún togar alltaf í mig.“

Róbert hitti ást­ina á árunum á Stöð 2 en eig­in­kona hans er Bryn­hildur Ólafs­dóttir fjalla­leið­sögu­maður sem þá var einnig frétta­maður. Róbert átti tvö börn af fyrra hjóna­bandi og hún eitt og eiga þau tvö börn saman. 

„Úrið mitt sýndi mig einu sinni með púls upp á 130 í þingsalnum en venju­legur hlaupapúls hjá mér er svona i kringum 100.“

Róbert er spurður hvað hafi heillað hann við Bryn­hildi. „Hún er auð­vitað sjúk­lega sæt. Og nátt­úru­lega frá­bær mann­eskja. Það vita allir sem þekkja hana. Hún er ein­stök og ég elska hana út af líf­inu. Hún er með frá­bæra kímni­gáfu og hlát­ur­mild. Hún er sálu­fé­lagi minn og besti vinur. Það fór allt eins og það átti að fara. Kolla Bergþórs sagði við mig þegar hún heyrði að við værum byrjuð saman að Bryn­hildur væri ein gáf­að­asta kona lands­ins! Hvernig ætl­aði ég eig­in­lega að láta þetta ganga upp?!

Við Bryn­hildur höfðum unnið saman í fjögur eða fimm ár og verið góðir vinir áður en við urðum par. Þetta gerð­ist með eins eðli­legum og nátt­úru­legum hætti og hugs­ast gat. Við erum bæði tví­burar; við þurfum mjög aktíft líf og erum mikið fyrir það að ferð­ast og vera á fjöllum. Okkur líður hvergi betur heldur en á ferða­lagi. Á ferð og flugi.“

„Hún er auð­vitað sjúk­lega sæt. Og nátt­úru­lega frá­bær mann­eskja.“

Íraksfréttin

Róbert er spurður hvaða frétt sem hann vann við hafi haft mest áhrif á hann. „Það sem hefur setið kannski mest í mér er þegar ég fór upp í Veiði­vötn á vett­vang hræði­legs slyss sem hafði átti sér stað dag­inn áður. Ég teng­ist svæð­inu miklum til­finn­inga­böndum en þetta er eitt upp­á­halds­svæðið mitt á land­inu. Og það var bara gríð­ar­lega erfið frétt og erfitt og sorg­legt mál sem sat lengi í mér. Svo átti ég frétt um ákvarð­ana­töku rík­is­stjórn­ar­innar um stuðn­ing við inn­rás­ina í Írak. Það er ákvörðun sem Davíð Oddsson og Halldór Ásgríms­son tóku sem þá voru leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar sem var mikið deilt um. Heim­ildir mínar bentu til þess að ákvörð­unin hefði verið tekin og til­kynnt fyrir þann rík­is­stjórn­ar­fund sem þeir héldu fram að hefði fjallað um málið. Ég sagði síðan frétt­ina eftir að hafa stuðst við frá­sagnir erlendra miðla sem virt­ust vera frá því fyrir fyrr­nefndan rík­is­stjórn­ar­fund en flaskaði á því að mis­ræmi var á tima­setn­ingu birt­ing­ar­innar vegna tíma­mis­munar; mjög vand­ræða­leg hand­vömm sem ég bar einn ábyrgð á.“ 

Róbert sagði sjálf­vilj­ugur upp starfi sínu á frétta­stofu Stöðvar 2 dag­inn eftir birt­ingu frétt­ar­innar. Hann segir að hann hafi tekið ábyrgð á því að vinna frétt sem ekki hefði verið hægt að sanna og taka ábyrgð á mis­tökum sem lágu fyrir að hann hefði gert.

„Þetta var eins og að setj­ast á bak ótemju. Ég gat ekk­ert alltaf vitað hvar þessi útreið­ar­túr myndi enda.“

Róbert segir að þremur árum síðar hafi birst í Morg­un­blað­inu frétt sem sýndi fram á að frétt hans hafi verið rétt og að ákvörð­unin hefði verið tekin áður en þessi fyrr­nefndi rík­is­stjórn­ar­fundur var hald­inn. „Ég vissi það allan tím­ann en ég gat bara ekki sannað það. Þannig að sú atburða­rás og saga öll situr í mér. Hún hafði líka mjög jákvæð áhrif á starfs­feril minn vegna þess að ég fékk tæki­færi til þess að fara út úr dag­legri rit­sjórn, úr dag­legum frétta­flutn­ingi. Ég fór að vinna útvarps­þætti, fékkst eitt­hvað við almanna­tengsl og sinnti svo­lítið störfum fyrir Blaða­manna­fé­lagið,“ segir Róbert en hann var for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands á árunum 2003-2005. „Ég er því miður, öllum þessum árum síðar, enn jafn lélegur á klukku.“

Róbert við­ur­kennir að Íraks­fréttin sitji ennþá svo­lítið í sér. „Á þessum árum var þó voða lítið sem gat beyglað sjálfs­mynd mína. Ég hafði mikið sjálfs­traust og örugg­lega ekki inni­stæðu fyrir því öllu saman eins og oft er með unga menn. En það hjálp­aði að mörgu leyti. Ég hef oft sagt að svona sjálfs­ör­yggi og sterk sjálfs­mynd geti farið ótrú­lega langt með fólk. Ég get þess vegna ekki sagt að þetta hafi haft mikil áhrif á mig á þessum tíma. Þetta var auð­vitað ákveðið högg. Ég ég náði ein­hvern veg­inn að kom­ast sterk­ari út úr því og náði að vinna bara úr því þannig að þetta varð að jákvæðri reynslu. Það sem skiptir einna mestu máli í líf­inu er að maður taki öllu því sem ger­ist og breytir því í eitt­hvað sem maður getur byggt á en láti það ekki rífa sig niður. Kannski var sjálfs­ör­yggið gríma og kannski var sjálfs­myndin ekki jafn­sterk og hún leit út fyrir að vera.

„Ég er ekki sami mað­ur­inn og ég var, hvorki í blaða­mennsku né þegar ég var í póli­tík­inni.“

Ég held að ég átti mig betur á því núna hverjir styrk­leikar mínir og veik­leikar eru. Og það kemur með aldr­inum að maður verður minna við­kvæmur fyrir því að við­ur­kenna hvar styrk­leikar manns liggja og hvar maður er ekki sterkur.“

Róbert er spurður um styrk­leika og veik­leika sína.

„Styrk­leikar mínir í dag byggja á því að ég hef þroskast. Ég er ekki sami mað­ur­inn og ég var, hvorki í blaða­mennsku né þegar ég var í póli­tík­inni. Ég átta mig betur á því hvað það er sem skiptir mig máli og ef eitt­hvað er sagt um mig með nei­kvæðum hætti þá hef ég held ég burð­ina til þess að greina hvað af því ég tek til mín og hvað ekki.“

Hvað svo með veik­leika? „Ég er mjög dreifður í því sem ég hef áhuga á. Ég hef áhuga á mjög mörgum, ólíkum sviðum; ég veit ekki hvort það er veik­leiki. Þannig er ég bara. Það eru ákveðir hlutir sem ég er ekki góður í. Ég get verið góður í að búa til nýja hluti og finna ferla, finna leiðir til þess að gera það sem þarf að gera en ég er ekki góður í því að vera í rútínu­vinnu. Ég væri ekki góður í því að gera sömu hlut­ina dag eftir dag. Ég hef meira að segja forð­ast slíka vinnu í minni fjalla­mennsku.“

Róbert er spurður hvort það sé óró­leiki inni í honum. „Já, ætli það ekki. Ég þarf alltaf að hafa eitt­hvað nýtt fyrir aug­unum. Ég er frægur í fjöl­skyld­unni fyrir það að klára ekki hluti. Ég hef samt alveg get­una og eirð­ina í mér til þess að setj­ast niður og klára heila ævi­sögu út af því að mér finnst hún vera áhuga­verð. Ég geri það. Það er búið að vera eilífð­ar­verk­efni hjá mér að klára bíl­skúr­inn; bara hafa hann þannig að hann sé kom­inn í ein­hverja var­an­lega mynd. Það verður alltaf svona. En ég var að vinna í honum í gær. Þetta mjakast.“

Róbert er spurður nánar út í áhuga á ákveðnum málum. „Ég get fengið þrá­hyggju fyrir því að geta til dæmis skíðað á Telemark-skíðum með lausan hæl. Þetta er ekk­ert grúsk heldur ákveðin teg­und af lík­ams­beit­ingu og jafn­vægi. Ég geti líka fengið æði fyrir ein­hverju til­teknu lagi; ein­hverju rokklagi og vil þá sjá fyrir mér á allan hátt hvernig þetta er gert, spilað og tekið upp. Núna æfi ég á sax­ó­fón á hverjum degi og er ákveð­inn í að ná góðum tökum á því magn­aða hljóð­færi.“

Róbert og Gunnar Smári Egilsson stofn­uðu frétta­stofu NFS sem tók við af frétta­stofu Stöðvar 2 og Bylgj­unnar í nóv­em­ber 2005. Róbert var for­stöð­ur­maður en Gunnar Smári var for­stjóri 365. „Þetta leiddi til mik­illa breyt­inga á aðkomu minni að fag­inu af því að ég kom þarna inn sem stjórn­andi inn á frétta­stof­una. Ég tók þátt í að sam­eina ólík svið, bæði fram­leiðslu­deild og dag­skrársviðið, og ólíka þætti sem höfðu verið reknir með aðskildum hætti. Þetta var mik­ill skóli fyrir mig per­sónu­lega og fag­lega – að fara í gegnum þetta og að hafa mikil for­ráð, bera mikla ábyrgð og vera í mik­illi stefnu­mótun.“

NFS hætti útsend­ingum á eigin rás í sept­em­ber 2006 og var 20 starfs­mönnum sagt upp. Róbert hafði nokkrum dögum áður skrifað opið bréf til eins af aðal­eig­endum 365, Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, þar sem hann biðl­aði til hans að beita sér fyrir því að stöð­inni yrði áfram tryggður rekstr­ar­grund­völlur. Róbert var einn þeirra 20 sem hættu störfum.

„Ég hefði ekki viljað missa af NFS-ævin­týr­inu. Það var gríð­ar­lega dýr­mæt reynsla fyrir mig. Það rauf ákveðna kyrr­stöðu sem hafði verið á íslenskum fjöl­miðla­mark­aði, bjó til fullt af nýjum frétta­mönnum og tækni­fólki og fólki sem vann kannski svo­lítið öðru­vísi.“

„Ég er ekki að segja að það sé allt mér að þakka – ég er bara að segja að drop­inn holar stein­inn.“

Uppteknir af sjálfum sér

Jú, póli­tíkin heill­aði og var Róbert á árunum 2007-2009 aðstoð­ar­maður sam­göngu­ráð­herra. Hann var í októ­ber-nóv­em­ber 2007 vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­ur­kjör­dæmi og frá októ­ber-nóv­em­ber 2008. Hann var alþing­is­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, utan flokka, 2009-2013. 

„Ég var á þannig kross­götum í líf­inu 2006 að það pass­aði mér að fara í fram­boð. Þá var ég hættur hjá 365 og hugs­aði um hvað ég ætti að gera næst. Ég hafði lengi séð fyrir mér að ég myndi á ein­hverjum tíma­punkti stíga inn í stjórn­málin. Ég var á þessum tíma orð­inn mik­ill nátt­úru­vernd­ar­sinni; úti­vist og aðdrátt­ar­afl nátt­úr­unnar var orðið stór þáttur í lífi mínu á þessum tíma. Það höfðu á þessum tíma verið miklar deilur og umræður um Eyja­bakka fyrir austan og Kára­hnjúka­virkjun var svo í algleymi á þessum tíma og ég vildi láta til mín taka á þessum vett­vangi; aðal­lega á sviði nátt­úru­verndar og umhverf­is­mála. Það var það sem tog­aði í mig. Síðan hef ég alltaf verið mik­ill vinstri­maður; mik­ill jafn­rétt­is­sinni. Og mér hefur fund­ist mér renna blóðið til skyld­unnar að taka þátt og láta ekki mitt eftir liggja.“

Róbert segir að það hafi verið lær­dóms­ríkt að kom­ast inn á þing. „Það var allt öðru­vísi en ég hafði búist við. Starfið er að mörgu leyti ekki starf – það er í raun og veru hlut­verk þar sem maður er að túlka vilja kjós­enda sinna, stuðn­ings­manna sinna, í hverju mál­inu á fætur öðru. Á sama tíma er per­sóna manns svo­lítið mikið and­lag starfs­ins; hvort maður kom­ist í fjöl­miðla og það sem maður segir þann dag­inn er eitt­hvað sem fólk fók­userar mikið á. Ég held að það sé að mörgu leyti ekki heppi­legur fókus en það er  bara því miður þannig. Ég held að það sé mjög heppi­legt fyrir þá sem velj­ast til trún­að­ar­starfa á Alþingi að hafa aðeins verið áður í opin­berri umræðu; að vera ekki fyrst að lenda í henni þegar þeir koma inn á þing. Þetta hefur þær afleið­ingar fyrir marga þing­menn að þeir verða svo­lítið upp­teknir af sjálfum sér og það er ekk­ert í sjálfu sér sem kemur á óvart við það að þegar per­sóna við­kom­andi er jafn­bundin því sem hún gerir. En þetta verður til þess að fólki hættir kannski til að verða fullt af sjálfu sér í öllum skiln­ingi þess orða­sam­bands. Ég held þess vegna að það sé gríð­ar­lega hollt að hafa unnið svo­lítið í sér; vita nákvæm­lega hvað það er sem maður vill koma til leiðar og á hvaða sviðum maður vill vinna og reyna frekar að fók­usera á það að mynda tengsl sem síðan geta orðið að áhrifum og komið hlutum til góðs og fært þá til þess vegns sem kjós­endur hefðu viljað að þeir færu.“

Erfitt andrúmsloft

Róbert var einn þeirra sem stofn­uðu Bjarta fram­tíð og sat hann á Alþingi fyrir þann flokk á árunum 2013-2016. Hann er spurður hvers vegna hann hafi ákveðið að segja skilið við Sam­fylk­ing­una og stofna nýjan flokk.

„Mér líður vel þegar ég kemst út í nátt­úr­una og fæ að hreyfa mig úti í nátt­úr­unni. Og ég held að þetta sé rosa­lega dýr­mætt okkur öllum sem eigum þessa teng­ingu.“

„Það hafði bæði að gera með stjórn­mála­menn­ing­una heilt yfir á þeim tíma og stjórn­mála­menn­ing­una innan Sam­fylk­ing­ar­innar. Ég fann mig engan veg­inn þar. Þar er gríð­ar­lega mik­ill átakakúltúr og að mörgu leyti mjög erfitt and­rúms­loft og það pass­aði mér ekki. Ég vildi ekki vera hluti af því lengur. Björt fram­tíð var ákveðin til­raun til að brjóta upp mikla átaka­hefð sem hafði mynd­ast upp úr hruni og koma með áherslur þar sem fólk mætt­ist úr mis­mun­andi áttum. Þannig að þar var bæði mjög vinstri­s­innað fólk eins og ég og fólk sem var hinum megin við miðj­una, hægra megin. Ég vildi nálg­ast hlut­ina með öðru­vísi vinnu­brögðum.“

Aþl­ing­is­maður fyrir þessa tvo flokka á árunum 2009-2016. Róbert er spurður hverju honum finn­ist hann hafi komið til leiðar.

„Maður gæti ímyndað sér þegar maður horfir til baka að maður hafi ekki komið neinu til leiðar en ef maður horfir á heild­ar­sam­hengi hlut­anna þá hefur afstaða okkar allra og þá meina ég sam­fé­lags­ins til umhverf­is­mála og nátt­úru­verndar gjör­breyst á þessum 12 árum sem liðin eru síðan ég fór þarna fyrst inn sem og afstaða okkar til jafn­rétt­is­mála og rétt­inda allra kynja til þess að njóta sín og fá að vera eins og þau eru hefur ger­breyst á þessum þremur kjör­tíma­bilum sem síðan eru liðin. Ég er ekki að segja að það sé allt mér að þakka – ég er bara að segja að drop­inn holar stein­inn. Þegar maður er ein af rödd­unum sem talar í þessa átt þá hefur það allt saman áhrif.

Ég var auð­vitað mik­ill ger­andi í stjórn­ar­skrár­mál­inu; ég var for­maður Alls­herj­ar­nefndar þegar vinnan fór af stað varð­andi stjórn­laga­þingið, en hún vann lögin um þjóð­fund­inn, stjórn­laga­þing og stjórn­ar­skrár­nefnd­ina sem var stofnuð. Ég starf­aði auk þess í umhverfis- og sam­göngu­nefnd þegar núgild­andi nátt­úru­lög voru sett. Mér hefur fund­ist að síðan ég fór út af þingi og sér­stak­lega hvað varðar núver­andi þing­meiri­hluta að eng­inn sé á þing­inu sem hafi sömu teng­ingu við ferða­mennsku, fjöllin og nátt­úr­una og ég.“

Gefur kost á sér fyrir VG

Róbert hefur ákveðið að bjóða sig fram í for­vali VG á Suð­ur­landi fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar í haust. 

„Nú er ég í VG. Og ég hef nátt­úr­lega um ára­bil verið sam­ferða VG í mörgum málum. Þegar ég fór upp­haf­lega fram þá kom það jafn­mikið til greina fyrir mig að fara í VG eins og að fara í Sam­fylk­ing­una. Ég er úr Alþýðu­banda­lag­inu upp­haf­lega og hef kosið báða þessa flokka og ég hef bæði flakkað á milli þeirra sem þátt­tak­andi og sem kjós­andi. Og í mínum huga er ekki langt á milli þeirra. En það er mik­ill kúlt­úrmunur. Og Sam­fylk­ing­unni hefur að mínu mati aldrei tek­ist að verða græn.“

Róbert segir að ef hann kemst aftur á þing muni hann halda áfram að vera rödd nátt­úru­verndar og umhverf­is­ins í póli­tík­inni. „Það sem er gríð­ar­lega stórt mál í huga mínum og stór­mál í suð­ur­kjör­dæmi er stofnun mið­há­lend­is­þjóð­garðs. Mér finnst vera mik­il­vægt að við náum því í gegn og ég vil tala fyrir því máli þar. Ég þekki þarna hverja þúfu og hef kynnst mörgum þarna sem eiga allt sitt undir vel skipu­lögðum innviðum til upp­lif­un­ar­ferða­mennsku. Mér finnst líka skipta mjög miklu máli að passað sé upp á upp­lifun okkar sem unnum íslenskri nátt­úru, hálend­inu og frels­inu sem fylgir því að ferð­ast um þessi svæði. Ég skil að mörgu leyti ótta þeirra sem eru í and­stöðu við það mál. En á móti því kemur upp­lifun og reynsla margra þjóða sem hafa einmitt á síð­ustu árum upp­lifað það að mjög dýr­mætar nátt­úruperlur hafa spillst. Við verðum að fara var­lega með þetta fjöregg sem við eigum í hálend­inu. Við þurfum að skipu­leggja það, passa upp á það og við þurfum að ákveða hvernig nýt­ingin er og hvað það er sem við viljum fá út úr þeirri nýt­ingu.

„Það sem er gríð­ar­lega stórt mál í huga mínum og stór­mál í suð­ur­kjör­dæmi er stofnun mið­há­lend­is­þjóð­garðs.“

Fólk hefur síðan sagt mér síð­ast­liðin ár að það sakni mín af þingi og hefur hvatt mig áfram til þess að fara aftur. Mér finnst að dreng­lynt fólk sem vill láta gott af sér leiða eigi að gefa kost á sér og það er í raun og veru það sem ég er að gera. Ég er ekki í ein­hverri sókn eftir met­orðum eða veg­tyllum eða neinu slíku; það er ekki það sem ég tikka fyrir. Ég hins vegar finn til ábyrgðar gagn­vart sam­fé­lagi mínu, umhverf­inu og heim­inum og þess vegna er ég að upp­lifa að ég er að gefa kost á mér núna aftur með allt öðrum hætti en ég gerði áður fyrr. Þá var þetta spurn­ing um svo­lít­inn per­sónu­legan sigur eða ósigur. Núna er ég að bjóða fólki sem brennur fyrir sömu málum og ég að vinna fyrir það. Það getur valið eða hafnað.“

Rödd náttúruverndar

Róbert vill halda áfram að vera rödd nátt­úru­verndar og umhverf­is­ins í póli­tík­inni. Hann er spurður hvað íslensk nátt­úra sé í huga hans. „Hún er fyrst og fremst skjól. Þetta full­komna skjól fyrir amstri hvers­dags­ins. Hún er líka upp­spretta gríð­ar­legrar feg­urðar og frels­is­til­finn­ingar. Það eru ótrú­leg verð­mæti að geta verið kom­inn út í óbyggðir eftir hálf­tíma­keyrslu úr höf­uð­borg­inni. Mér líður vel þegar ég kemst út í nátt­úr­una og fæ að hreyfa mig úti í nátt­úr­unni. Og ég held að þetta sé rosa­lega dýr­mætt okkur öllum sem eigum þessa teng­ingu. Ég er ekki að segja að það eigi allir að vera á fjöllum eða sveiflandi ísöxum; fyrir suma getur göngutúr úti við sjáv­ar­síð­una verið jafn­nær­andi. Það skiptir þá máli að það sé ekki sjáv­ar­síða sem sé þakin plasti, úrgangi og meng­andi aðskota­hlutum. Náttúran er gríð­ar­lega dýr­mæt á öllum sviðum og þetta er vega­nestið okkar. Þetta er það sem við höfum fengið frá fyrri kyn­slóðum. Þetta tengir okkur við fyrri kyn­slóðir af því að þetta er alveg eins og það var þegar þær voru hérna. Við getum gengið um Kálfatinda og bent á stað­ina þar sem Flosi fór til og frá Þing­völlum í Njálu. Þar hefur ekk­ert breyst í þús­und ár. Og kannski og von­andi geta afkom­endur okkar eftir þús­und ár gert það sama.“

„Þegar ég lít til baka þá held ég að maður hafi ekki gert sér grein fyrir hætt­unni á þessum tíma; verið einum of sak­laus og ein­faldur.“

Vélsleðaslysið

Róbert sprang­aði í klettum í Eyjum á æsku- og ung­lings­ár­unum. Hann fór lítið í göngur og á fjöll á milli tví­tugs og þrí­tugs en svo fékk hann veiði­græjur í þrí­tugs­af­mæl­is­gjöf, fór að veiða og þá fór nátt­úran að toga í hann af miklu afli. Síðan hefur ekki verið aftur snúið. Róbert hefur í mörg ár unnið sem fjalla­leið­sögu­maður og gerði það líka á meðan hann sat á þingi. Þá gefur hann og eig­in­kona hans, Bryn­hildur, út tíma­ritið Úti, ásamt Guðmundi Stein­gríms­syni, og þau hafa fram­leitt sjón­varps­þætti um göngur og úti­vist sem sýndir hafa verið á RÚV. 

„Ég fór á Hvanna­dals­hnjúk árið 2002 og réði varla við það. Ég var grind­hor­aður reyk­inga­maður og það var mér næstum því ofviða að kom­ast þangað upp. Þar fór þó bolt­inn að rúlla. Þó þetta hafi verið erfitt þá sat það lengi í mér að hafa gert þetta. Ég fór síðan upp á Kilimanjaro árið eftir og síðan hef ég senni­lega farið um 25 sinnum upp á Öræfa­jökul og upp á hnjúk sem leið­sögu­maður fót­gang­andi, á göngu­skíðum eða á skíðum sem og á fjalla­bretti. Náttúran kall­aði bara á mig.“

Náttúran getur verið hættu­leg og slysin gera ekki boð á undan sér. Róbert lenti í alvar­legu vélsleða­slysi árið 2014.

„Ég og félagi minn, Ingólfur Eldjárn, vorum að fara á vélsleðum ofan af Skjald­breið og vorum að keyra í átt­ina að Þing­völlum þegar ég keyrði fram af bergi og hrap­aði ásamt vélsleð­anum niður um átta metra og lenti á vegg hinum megin. Þetta var hrun­inn hraun­hellir. Ég rank­aði við mér liggj­andi við hlið­ina á sleð­anum. Hjálm­ur­inn var brot­inn og fullur af snjó. Ég var allur lemstr­aður og var vinstri höndin út á hlið og öll snúin en hún hafði farið úr lið. Mig grun­aði strax að ég væri með inn­vortis blæð­ingar.“

Félagi Róberts hringdi í Neyð­ar­lín­una og bjó um hann þannig að honum yrði ekki kalt á meðan beðið var eftir þyrlu. „Svo lá ég þarna og horfði upp í bláan him­in­inn.“

Róbert segir að það hafi flogið í gegnum hug­ann að þetta gæti verið hans síð­asta. „Ég fann eig­in­lega fyrst og fremst til þakk­lætis. Ég hugs­aði með mér að ef þetta væri stundin þá væri ég búinn að vera gríð­ar­lega lán­samur að eiga öll þessi börn, þessa fjöl­skyldu, og hafa lifað þessa ævi. Ég átti um þessar mundir fimm ára edrúafmæli og var gríð­ar­lega ánægður með að hafa verið án áfengis þennan tíma og náð að taka út þann and­lega þroska sem fylgir því. Þetta var það sem fór í gegnum haus­inn á mér. Auðvitað von­aði ég að hjálp kæmi hratt og örugg­lega og þetta yrði allt í lagi og innst inni trúði ég því að þetta myndi bjarg­ast. Ég þurfti bara að vera kyrr og vera ekki að reyna að remb­ast neitt. Ég bað til guðs; „ekki núna“.“

Þyrla kom eftir um klukkuk­tíma og kortér frá því félagi Róberts hringdi í neyð­ar­lín­una og var flogið með hann til Reykja­víkur. Í ljós kom að 17 bein höfðu brotnað. „Ég fór nærri því að brjóta á mér hrygg­inn. Það voru þrjú sködduð líf­færi og inn­vortis blæð­ingar og höndin var í svolitlu maski. Það tók við tími hæg­færa bata og end­ur­hæf­ingar. Ég hef í dag náð öllu því sem ég hafði fyrir til baka. Ég finn ekki fyrir neinu sem má rekja til þessa slyss. Ég sé þó að brjóst­kass­inn er aðeins skakkur; maður gekk svo­lítið til en ég braut það mikið af rif­beinum og hryggjatinda. Lækn­ir­inn sem púsl­aði saman brot­unum í hend­inni á mér mælti með því að ég spil­aði mikið á gítar. Og ég hef gert það. Það varð til þess að ég eign­að­ist annað líf í tón­list­inni. Ég fór að spila það mikið að ég hugs­aði með mér að ég yrði að vera í hljóm­sveit. Við stofn­uðum í kjöl­farið nokkrir hljóm­sveit­ina Lizt og æfum í hverri viku og höfum spilað tölu­vert. Það er nauð­syn­leg við­bót í líf mitt að fá að vera rokk­ari.“

„Ég fór nærri því að brjóta á mér hrygg­inn. Það voru þrjú sködduð líf­færi og inn­vortis blæð­ingar og höndin var í svolitlu maski.“

Svo er það and­lega hliðin sem fékk á sig ör eftir slysið. „Þetta var auð­vitað þannig áfall að maður þufti að fá áfalla­hjálp. Ég fann fyrir ótta um að ég væri mögu­lega orð­inn ónýtur fyrir lífs­tíð og að halda að maður sé mögu­lega að fara að deyja er eitt­hvað sem maður þurfti að jafna sig á. Ég fann vel fyrir því að til­finn­inga­lífið var í upp­námi á eftir. Ég sveifl­að­ist á milli þess að vera gríð­ar­lega þakk­látur fyrir það að vera á lífi og bara drakk í mig lífið af áfergju og svo yfir í það að vera ótta­sleg­inn og kvíð­inn og finn­ast ég geta lent í slysi og eitt­hvað skelfi­legt gæti gerst hvenær sem væri. Ég þurfti að vinna í því. Það þurfa bara allir að gera sem verða fyrir svona upp­lif­unum. Þetta gerði mig líka svo­lítið ótta­lausan í póli­tík. Þetta gerði það að verkum að ég fann það þarna 2016 þegar það var boðað til kosn­inga að ég vildi prófa að stíga út af þeim vett­vangi; ekk­ert endi­lega fyrir fullt og allt heldur sjá hvort þetta myndi toga ennþá í mig, hvort það væri ennþá löngun í mér til þess að fylgj­ast með þessu og hvort þetta væri ennþá ástríða.

Slysið breytti stefn­unnin að því leyt­inu til. Mér fannst eins og póli­tíkus­inn í mér hafi dáið í þessu slysi. Ég upp­lifði mig ekki lengur sem mjög frama­gjarnan í póli­tík ef það „meikar ein­hvern sens“. Ég er ennþá þar. Mér finnst ég ekki þurfa að fara í póli­tík út af mér per­sónu­lega eða út af ein­hverjum sér­stökum veg­tyllum eða frama. Og ég þarf þess ekki vinn­unnar vegna.“

„Ég fór á Hvanna­dals­hnjúk árið 2002 og réði varla við það. Ég var grind­hor­aður reyk­inga­maður og það var mér næstum því ofviða að kom­ast þangað upp.“

Róbert hugs­aði um dauð­ann. Hann seg­ist ekki ótt­ast hann. „Ég held að það að deyja sé eins og slökkt sé á sjón­varpi sem var það sem gerð­ist bæði þegar ég var að spranga og í vélsleða­slys­inu. Það verður bara allt svart og kyrrt. Auðvitað vill maður fá að vera sam­ferða fólk­inu sínu eins lengi og maður getur. Það er það sem skiptir mestu máli í lífi mínu. En auð­vitað áttar maður sig á því að þetta er hverf­ult. Þetta er ekki sjálf­gefið. Og við erum ótrú­lega lánsöm. Þessi ævi er eins og eitt and­ar­tak í eilífð­inni. Og það þarf að reyna að fá eins mikið út úr því og hægt er. Reyna um leið að verða að ein­hverju gagni. Muhamed Ali, ég er mik­ill aðdá­andi hans og hitti hann einu sinni, sagði að þjón­usta við aðra væri leigan fyrir jarð­vist­ina. Ég er þessu hjart­an­lega sam­mála.“ 

Bakkus

Bakkus. Jú, Bakkus fylgdi Róberti um ára­bil. Hann seg­ist hafa fengið sér fyrsta sopann senni­lega um 14 til 15 ára gam­all á Þjóð­há­tíð.

„Áfengi var aldrei neinn hluti af lífi mínu fyrr en svona við 18 ára aldur. Ég drakk frá 18 til 37 ára. Það var alltaf svo­lítið partur af mér að vera svo­lítið mikið fyrir bjór og hvítvín. Eftir á að hyggja fór þetta mér aldrei vel. Eftirsjá mín hefur kannski einna helst verið sú að hafa ekki áttað mig á því fyrr og hætt fyrr að drekka.

Alkó­hól­ismi var hluti af æsku minni. Pabbi, blóð­faðir minn, var mik­ill drykkju­maður og réði illa við áfengið. Hann flosn­aði út úr líf­inu út af sinni drykkju­mennsku og end­aði á göt­unni. Hann dó einn og yfir­gef­inn í Bret­landi. Þar sem ég ólst upp við þessar aðstæður þá drakk ég auð­vitað aldrei án þess að hafa þetta ein­hvers staðar á bak við eyrað. Það var eitt­hvað sem sagði mér að fara var­lega. 

Ég var svo­lítið far­inn að hugsa fram í tím­ann; hvaða áfengi ég ætti og hvort það væri búið að kaupa. Þannig að þetta var mjög hál braut.“

Róbert segir að SÁÁ skil­greini dag­drykku miðað við að fólk drekki fjórum sinnum í viku. „Ég var klár­lega þar. Þetta var eins og að setj­ast á bak ótemju. Ég gat ekk­ert alltaf vitað hvar þessi útreið­ar­túr myndi enda. Ég var ekki túramaður eða fullur í marga daga en ég gat ekki sagt hvenær ég myndi koma heim um nótt­ina. Þetta var þó oft í góðu lagi. En þetta var sjúk­dómur sem var í þróun og þetta fer alltaf niður á við. Þetta verður alltaf verra og verra. 

„Það er ekki þægi­leg reynsla að vera með sjúk­dóm sem við vitum eig­in­lega ekk­ert um og maður veit að fullt af fólki deyr úr þessum út um allan heim.“

Ég var í þokka­legu starfi, átti gott fjöl­skyldu­líf og það kom öllum í kringum mig á óvart þegar ég sagð­ist vera alkó­hólisti. Það tók Bryn­hildi alveg tvö ár að segja „já, þetta var góð ákvörðun hjá þér“; henni fannst ég ekki eiga við vanda­mál að stríða. Ég fann þetta bara inni í mér að þetta var um það bil að fara illa. Ég lenti sem betur fer vel á fót­unum eftir göngu­deild­ar­með­ferð hjá SÁÁ. Ég hef síðan verið aktívur innan 12 spora sam­tak­anna sem eru hluti af lífi mínu og lífs­stíl mínum. Og það er grund­völlur þeirrar per­sónu sem ég er í dag. Þetta er allt annað líf. Líf mitt og upp­lifun mín á líf­inu er svo miklu stærri og meiri og það eru fleiri litir í henni heldur en voru áður.“

Fékk Covid

Róbert fékk Covid-19 í mars í fyrra. 

„Við Bryn­hildur vorum með skíða­ferð í nágrenni Mývatns helg­ina áður en fyrstu fjölda­tak­mark­anir tóku gildi. Við tókum þá ákvörðun að 25 manna ferð til Mývatns stæði og fólk skyldi hafa sótt­varna­ráð­stafnir í huga. Þetta var löngu áður en fólk var orðið með­vitað um tveggja metra regl­una og hvað það skiptir miklu máli að vera með grímu. Það kom upp smit á hót­el­inu sem við gistum á og af 24 í hópnum þá smit­uð­ust 19. Það var alveg ótrú­legt hvað þetta fór hratt yfir allan hóp­inn.“

Bryn­hildur smit­að­ist líka og segir Róbert að ein­kenni sín hafi verið minni en hennar. „Ég slapp vel. Ég missti strax bragð- og þef­skyn. Ég var með netta háls­bólgu, höf­uð­verk og bein­verki og var smá­slen­aður á 8. eða 9. degi. Ég var með mild ein­kenni og fékk ekki mik­inn hita.

„Við Bryn­hildur höfðum unnið saman í fjögur eða fimm ár og verið góðir vinir áður en við urðum par. Þetta gerð­ist með eins eðli­legum og nátt­úru­legum hætti og hugs­ast gat.“

Þetta hópsmit vakti hneykslun og var eig­in­lega fyrsta dæmið um smit­skömm á land­inu. Það var sér­stakt að upp­lifa það því ekk­ert okkar fór á svig við reglur. Þær höfðu verið boð­aðar en höfðu ekki tekið gildi. Þegar ég lít til baka þá held ég að maður hafi ekki gert sér grein fyrir hætt­unni á þessum tíma; verið einum of sak­laus og ein­faldur. Ég var til­tölu­lega nýbú­inn með Vasa-skíða­göng­una í Svíþjóð þar sem hátt í 20 þús­und manns kepptu á göngu­skíðum í einum hnapp og þótti ekki til­töku­mál. Síðar hefur svo komið í ljós að Svíar tóku þetta ekki sömu tökum og aðrir.  

Ég var leið­sögu­maður á Snæfelli í maí eftir að ég var búinn að ná mér og þegar ég var að leiða hóp­inn upp á Snæfell sem er erfitt fjall og hæsta fjall utan jökla á Íslandi þá fannst mér þetta vera svo erfitt að ég sagði við sjálfan mig að ég væri hættur þessu; þetta væri ekki gaman og ég yrði að segja þetta gott. Ég hef síðan kom­ist að því að margir sem hafa smit­ast hafa einmitt verið mátt­lausir eftir veik­indin og glímt við síþreytu. Ég hef ekki verið þar en bragð­skynið hefur verið lengi að kom­ast í samt horf. Ég get til dæmis ekki borðað eggja­hvítu; hún hefur bragðst stórfurðu­lega og popp­korn er ekki sér­lega gott. Þá finn ég ekki mik­inn mun á vondu kaffi og því sem ég veit að er gott kaffi. Þannig að miðað við það sem maður hefur heyrt og lesið þá er ég gríð­ar­lega hepp­inn því fólk veit ekki hvaða spil það dregur þegar það færi Covid.“

Róbert segir að það sé sér­stök lífs­reynsla að hafa fengið Covid. „Það er ekki þægi­leg reynsla að vera með sjúk­dóm sem við vitum eig­in­lega ekk­ert um og maður veit að fullt af fólki deyr úr þessum út um allan heim. Þannig að það er ekki þægi­leg til­finn­ing. 

Síðan hefur það verið að mörgu leyti gagn­legt fyrir mig í starfi að geta til dæmis alltaf mætt í vinn­una af því að ég er með mótefni. Ég passa mig samt á að sótt­hreinsa af því að ég gæti samt borið snert­ismit á milli.“

Róbert situr í Covid-teymi for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. „Ég hef verið gríð­ar­lega með­vit­aður um mik­il­vægi þess að við stígum var­lega til jarðar og að við vöndum okkur. Þessir árangur sem við höfum náð er því að þakka að við höfum öll verið á sömu blað­síðu gagn­vart þessu. Það er gæfa okkar. Það hefur bjargað tugum ef ekki hund­ruðum manns­lífa.“

„Við erum ótrú­lega lánsöm sem höfum fæðst á þess­ari eyju og fyrir nátt­úru­unn­endur og fjalla­fólk er hvergi betra að vera.“

Besta land í heimi

Róbert vill gera Íslandi, íslenskri nátt­úru og Íslend­ingum gagn. Hann er spurður hvað Ísland sé í huga hans.

„Ísland er í huga mínum besta land í heimi. Við erum ótrú­lega lánsöm sem höfum fæðst á þess­ari eyju og fyrir nátt­úru­unn­endur og fjalla­fólk er hvergi betra að vera. Hérna erum við með nátt­úru sem er óspillt og fjöl­breytt. Það er allt í seil­ing­ar­fjar­lægð. Við erum þrátt fyrir allt gríð­ar­lega sam­heldin þjóð og þó við skiptum okkur í ólíka stjórn­mála­flokka þá er miklu styttra á milli okkar heldur en við viljum oft vera láta þegar við reynum að aðgreina okkur frá öðrum í pólítík. Það getur oft mynd­ast góð sam­staða í póli­tík­inni og meðal þjóð­ar­innar. Ég held að árangur okkur í Covid sé gott dæmi um það hversu öflug við getum verið þegar við stöndum saman. Þannig að fyrir mér er Ísland heim­ili mitt, land mitt, nátt­úra mín og þjóð mín. Það er það sem skiptir öllu.“

Æsku­heim­ili Róberts Marshall, Íslend­ings­ins og Skotans, er í eyj­unni þar sem rauk upp allt í kringum hann á tíma­bili. Segja má að eldar logi og það rjúki upp allt í kringum stjórn­málin þegar mikið er um að vera. Róberti er bent á þetta.

„Þegar ég var á þingi á sínum tíma þá má segja að það hafi oft ólgað í mér blóðið þegar ég fylgd­ist með ákveðnum málum. Úrið mitt sýndi mig einu sinni með púls upp á 130 í þingsalnum en venju­legur hlaupapúls hjá mér er svona i kringum 100. Það má segja að það rjúki stundum úr mér þegar ég hugsa um póli­tík. Og það er auð­vitað mjög gott að vita að þetta brennur inni í manni. Þetta er ein­hver neisti sem er þarna og ég finn fyrir honum. Hann er ekki slokkn­aður. Maður væri ekk­ert að þessu með öllu þessu sem þessu fylgir nema að það væri eldur í manni gagn­vart þessu; alveg eins og í jörð­inni í kringum mann þegar ég var að alast upp.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina