Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hetjurnar hentu gullinu í gólfið en mamman elti þau í klefann: Öskraði, niðurlægði og grætti börnin

Hetjurnar hentu gullinu í gólfið en mamman elti þau í klefann: Öskraði, niðurlægði og grætti börnin

Stúlk­urnar sem skil­uðu gull­inu. Tólf ára hetjur, körfu­bolta­snill­ingar. Stúlkur og þjálf­arateymi sem stóðu á sínu og létu gullið falla í gólfið á verð­launa­pall­inum vegna þess að þeim þótti glatað að Körfuknatt­leiks­sam­band Íslands hafði engan áhuga á að hlusta á þeirra drauma. Þær höfðu hóp­ast saman inni í bún­ings­klefa, í spennu­falli eftir að hafa mót­mælt KKÍ á kröft­ugan og aðdá­un­ar­verðan hátt þar sem ein stúlkan hélt gæsa­húð­ar­ræðu. Þá mætti eitt for­eldrið, kona, og nið­ur­lægði börnin með hrópum, öskrum og nið­ur­lægj­andi athuga­semdum. Stúlk­urnar sem áður höfðu staðið keikar brotn­uðu nú saman hver af ann­ari og grétu.

En margt átti eftir að ger­ast eftir þetta og fram að þessu örlaga­ríka augna­bliki höfðu þessar stúlkur tek­ist á við mikið mót­læti.

Þær héldu um gullið með annarri hendi og lyfti gull­inu hátt á loft. Ísold hafði beðið um orðið og þrumuræða hennar ómaði um íþrótta­sal­inn. Hún þagn­aði og það mátti heyra saum­nál detta. Þessi unga stúlka hóf upp raust sína aftur. Enginn frá sam­band­inu hafði áhuga á að hlusta og því var nið­ur­staðan ein­föld. Þær, allt liðið, hafði þá engan áhuga á að þiggja gull frá KKÍ.

Síðan féll hvert gullið á fætur öðru í gólfið og liðið yfir­gaf sviðið. Þetta kemur fram í magn­aðri heim­ild­ar­mynd sem sýnd er í opinni dag­skrá í kvöld í Sjón­varpi Símans. Árið 2015 var körfu­bolta­flokkur fyrir stelpur stofn­aður á Íslandi. Þær voru þjálf­aðar eins og leið­togar utan vallar og afreks­konur innan vallar. Þær settu sér snemma það mark­mið að keppa ávallt við þá bestu og voru sig­ur­sælar í drengja- og stúlkna­mótum. Þetta er ein ótrú­leg saga, af mögn­uðu stúlkna­liði sem tók­ust á við ótrú­legt mót­læti til að elta drauma sína og fylgja rétt­læt­is­kennd sinni. Þetta voru stúlkur á aldr­inum átta til 13 ára og mark­mið þeirra var að breyta við­miðum í kvenna­körfu á Íslandi.

Þjálfari þeirra var Brynjar Karl Sig­urðs­son og ásamt öðrum í teym­inu varð til harð­snúið og frá­bært körfu­boltalið. Brynjar Karl er afar umdeildur þjálf­ari, hat­aður en elsk­aður. Stúlkna­liðið hafði ítrekað óskað eftir að fá að keppa við drengi í sama ald­urs­flokki en alltaf var svar KKÍ neitun. Mótlætið var mikið en þær neit­uðu að gef­ast upp.

Vorið 2019 sauð síðan upp úr. Stúlk­urnar sem léku undir merkjum ÍR í minni­bolta stúlkna höfðu unnið úrslita­leik á Íslands­mót­inu sem fram fór á Akureyri. Liðið gekk uppá verð­launa­pall­inn og tók við medal­í­unni og yfir­leitt vilja allir landa gull­inu.

Nú var mælir­inn hjá stelp­unum fullur. Þegar búið var að hengja medal­íur um háls þeirra allra og afhenda bikar bað ein stúlkan um orðið. Hún sagði:

„Í tvö ár höfuð við beðið KKÍ um leyfi til þess að spila við strák­ana. Vegna þess að við trúum því að það sé gott fyrir körfu­bolta á Íslandi. Okkur finnst svo glatað að KKÍ hafi engan áhuga á að tala við okkur eða leyfa okkur að spila við strák­ana. Þess vegna höfum við engan áhuga á að taka á móti verð­launum frá KKÍ. Fyrir okkur, að spila körfu­bolta, er svo miklu meira en að vinna titla.“

Þær höfðu sagt sitt. Skila­boðin voru skýr. Þær gengu stoltar inn í bún­ings­klefa og hrósuðu hver annarri fyrir að hafa haft kjark til að mót­mæla. Þær voru rétt að byrja að ná sér eftir spennu­fallið þegar kona, eitt for­eldr­anna struns­aði inn í bún­ings­klef­ann og hélt reiði­lestur yfir lið­inu. Í heim­ild­ar­mynd­inni má heyra öskur kon­unnar og hún hrópar á börnin í mik­illi geðs­hrær­ingu:

„Þetta var hræði­legt. Maður vinnur ekki sína slagi ekki með van­virð­ingu. Ég vildi að ég gæti verið stolt af þér. Þetta er í fyrsta skipti allan tím­ann sem ég er ekki stolt af þér. Mér finnst það hræði­leg til­t­inn­ing. Það er ekki í lagi að þið séuð að van­virða full­orðið fólk. Sem eru með reglur og reglu­gerðir.“

Þá birt­ist Brynjar Karl þjálf­ari og bað kon­una um að hætta. Þá hafði Ísold, stúlkan sem hélt ræð­una, brotnað saman og farið að gráta. Um atvikið segir ein stúlkan um þessa upp­á­komu:

„Við sitjum þarna allar með tár í aug­unum og leiðar. Það hræði­leg­asta við þetta var að það voru for­eldrar .“ Önnur úr lið­inu segir í mynd­inni:

Mér fannst Það sem við vorum að reyna að segja er að stelpur eru jafn góðar og strákar

Brynjar Karl líkir við­brögð­unum við ofbeldi.

Blaða­maður fjall­aði um á sínum tíma þegar stelp­urnar sendu frá sér bréf til for­eldr­anna en upp­á­koman á verð­launa­pall­inum hafði farið þver­öf­ugt ofan í suma for­eld­rana. Vildu þær lægja öld­urnar og eins útskýra fyrir for­eldr­unum að það hefðu verið þær en ekki Brynjar sem áttu hug­mynd­ina að mót­mæla KKÍ með þessum hætti. Í bréf­inu stóð m.a:

„Kæru for­eldrar. Við stelp­urnar áttum hug­mynd­ina um að ekki taka við verð­laun­unum. Þetta var ekki Brynjari að kenna og okkur líður vel saman og elskum Brynjar. Þið getið ekki tekið okkur í sundur. Okkur finnst órétt­látt að þið takið dætur ykkar úr íþrótt­inni sem þær elska mest.“

Dæmi voru um að for­eldrar vildu taka börn sín úr lið­inu. Í bréf­inu sagði einnig:

„Kannski fórum við yfir strikið en nú vitum við hvar línan er. Markmið okkar er að breyta heim­inum og þá þarf maður að fara yfir strikið. Við getum ekki breytt heim­inum einar án Brynjars.“

Hér hefur aðeins verið rakið lítið brot af ótrú­legri sögu þessa stúlkna­liðs. Liðið var skipað mögn­uðum karakt­erum sem börð­ust til síð­asta manns. Heim­ild­ar­myndin Hækkum rána er engri lýk. Í henni eru sorgir, sigrar og mikil drama­tík.

Leik­stjór­inn Guðjón Ragn­ars­son og Margrét Jón­as­dóttir fram­leið­andi hjá Saga film hafa unnið þrek­virki og þau munu neyð­ast til að fylgja mynd­inni um víða ver­öld og án efa sanka að sér verð­launum. Þá kæmi það ekki á óvart ef til­kynnt yrði á næstu mán­uðum að leik­stjóri úti í hinum stóra heimi hefði tryggt sér rétt­inn til að kvik­mynda leikna bíó­mynd.

Margrét segir um til­urð mynd­ar­innar: „Árið 2017 kom til mín hingað í Sagafilm ungur leik­stjóri Guðjón Ragn­ars­son, með hug­mynd að heim­ilda­mynd. Hann hafði þá í hálft annað ár fylgst með korn­ungum körfu­bolta­stúlkum feta sín fyrstu skref á vell­inum. Okkur leist mjög vel á verkið en héldum í fyrstu að um væri að ræða al-íslenska mynd sem ætti ekki endi­lega erindi út fyrir land­stein­ana. En þegar við kynnt­umst verk­efn­inu nánar, sáum við að það var ekki rétt. Vald­efl­ing stúlkna, stúlkur og íþróttir og almenn þátt­taka barna í mál­efnum sem þau varðar eru leið­ar­stefin í þessu verki. Þau eru alþjóð­leg.“

Nú hafa Íslend­ingar kost á að sjá þessa mögn­uðu mynd frítt í kvöld í sjón­varpi Símans og hefst myndin klukkan 20:35.

Hækkum rána er mynd um rétt­inda­bar­áttu ungra stúlkna frá átta ára til þrettán ára. Þær vilja breyta heim­inum og með aðstoð Brynjars og allra ann­arra í teym­inu hækk­uðu þau sífellt rána.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við