Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Gífurlegur verðmunur á klippingum – VERÐKÖNNUN – Fjölskyldan getur sparað 17 þúsund á mánuði

Gífurlegur verðmunur á klippingum – VERÐKÖNNUN – Fjölskyldan getur sparað 17 þúsund á mánuði

Eftir Svövu Kristínu Svein­björns­dóttur

Vísi­tölu­fjöl­skyldan þarf að greiða 50 pró­sent meira fyrir klipp­ingu á dýr­ustu hár­greiðslu­stof­unni en þeirri ódýr­ustu. Mannlíf kann­aði verð á 50 hár­greiðslu­stofum þar sem hinn mikli verð­munur kom í ljós. Sú dýrasta var Salon VEH í Kringl­unni en ódýr­ust var Hár­hornið á Hverf­is­götu. Á flestum stofum var hár­þvottur inni­fal­inn í verði klipp­ing­ar­innar, en þar sem hann var ekki inni­fal­inn kom í ljós að verð­mun­ur­inn var 80 pró­sent á honum.

Verð á klipp­ingu fyrir börn og full­orðna hefur mikið verið í umræð­unni. Það líður vart sá dagur að ekki sjá­ist umræða af ein­hverju tagi um mál­efnið á sam­fé­lags­miðlum. Þar má oftar en ekki sjá yfir­lýs­ingar þess efnis að fólk annað hvort hafi hrein­lega ekki efni á því að fara með börnin sín, fara sjálft eða fólk bara kærir sig ekki um að borga það háa verð sem sett er upp.

Nauð­syn­legt er að hár­greiðslu­stofur skoði hvort ekki sé kom­inn tími á að breyta þess­ari háu verð­lagn­ingu.

Annað sem vert er að minn­ast á er það að mikið er um að klipp­ing er boðin ódýr­ari í heima­húsum, svart. Margir nýta sér það í auknum mæli. Auðvitað fetta stofu­eig­endur og aðrir fag­menn fingur út í þetta, skilj­an­lega. Samt mætti skoða hvernig hægt væri að sporna við þess­ari þróun. Lækka mætti verð og gera fleirum þannig kleift að mæta á stofu, bjóða fjöl­skyldutil­boð, barna­til­boð og þar fram eftir göt­unum. Það hlýtur líka að telj­ast kostur í rekstri að fólk haldi áfram að koma reglu­lega og nýjir við­skipta­vinir bæt­ast við. Það ger­ist þegar verði er stillt í hóf og er sann­gjarnt fyrir alla aðila.

Nauð­syn­legt er að hár­greiðslu­stofur skoði hvort ekki sé kom­inn tími á að breyta þess­ari háu verð­lagn­ingu, þar sem það á við. Það getur vart talist eðli­legt að svo mik­ill munur sé á sömu þjón­ust­unni. Ekki er hægt að sleppa því að minn­ast á að vilji neyt­enda er skýr varð­andi það að sjá kynja­skipt­ingu þegar verð­lagt er afnumda. Enda má nú segja að það sé löngu úrhelt og bara ekki við­eig­andi. Einungis þrjár stofur greina ekki á milli kynja þegar kemur að verð­lagn­ingu af þeim 50 sem kann­aðar voru.

Enn fremur þurfa nán­ast allar stofur að fara að hugsa til þess að neyt­endur vilja sjá verð á net­inu í stað þess að þurfa að hringja út um borg og bý til þess að fá upp­gefin verð. Það hlýtur einnig að vera þeirra hagur þar sem yfir­leitt er greini­lega verið að svara í sím­ann á hlaupum og ekki sjálf­gefið að sá sem svarar, geti gefið réttar verð­upp­lýs­ingar.

Það var mjög áber­andi þegar hringt var á sumar stof­urnar að verið var að trufla, verðin voru ekki alltaf á hreinu, svörin um það bil þetta mikið kom oft fyrir að ógleymdri ókurt­eisi frá ein­staka við­mæl­endum, nokkuð sem á ekki að eiga sér stað. Við­brögðin voru mis­góð við spurn­ing­unum og jafn­vel neitað um umbeðnar upp­lýs­ingar. Tekið skal fram að greina­höf­undur hringdi eins og hver annar við­skipta­vinur en kynnti sig ekki sér­stak­lega né til­gang­inn með því að spyrja um verð, enda á það að vera hið sjálf­sagð­asta mál að fá verð upp­gefin. Ókurt­eisin var þó von­andi und­an­tekn­ing frekar en regla. Það er á krist­al­tæru að hér má gera mikið betur við neyt­endur og er vonin sú að það verði raun­inn í allra nán­ustu fram­tíð.

Miðað var við hjón (konu og karl) og 5 og 11 ára börn. Bæði konan og karl­inn fengu sér nýja klipp­ingu og reiknað var því með verði sam­kvæmt því. Ekki var reikn­aður þvottur þar sem hann kost­aði auka­lega.

Verð fyrir klipp­ingu:

Miðað var við hjón (konu og karl) og 5 og 11 ára börn. Bæði konan og karl­inn fengu sér nýja klipp­ingu og reiknað var því með verði sam­kvæmt því. Ekki var reikn­aður þvottur þar sem hann kost­aði auka­lega.

Nafn stofu Dömur Herrar Börn Þvottur Fjöskyldan
Slipp­ur­inn 10500 8200 5800-6800 inni­fal­inn 31300
Eplið 9900 7500 5900 inni­fal­inn 29200
Ónix 7400 – 9400 6400-7400 5800-6800 1800 29400
Hár í höndum 9700 8000 4100-6500 1790 28300
Stofan Hárstúdíó 9000 – 10000 7000-7900 5500 inni­fal­inn 28900
Blondie 9700 7400 4900-6200 inni­fal­inn 28200
Salon VEH 9000-13000 6500-9000 6500 inni­fal­inn 35000
Unique 10900-11900 8500 ekki í boði inni­fal­inn
Greiðan 6500-8100 6500 3000-5500 inni­fal­inn 23100
Englahár 7500 6200 5400 1500 24500
Dóra 7300 6300 4900 850 23400
Hár­hornið 4900 4900 4000 1000 17800
Modus 6500-8700 6500-7300 5000 inni­fal­inn 26000
Beautybar 8900 6900 5900 inni­fal­inn 27600
Sprey 7500 5500 5000 inni­fal­inn 23000
Sjoppan 7900 (milli­sítt) 6900 4900-5900 inni­fal­inn 25600
Skuggi 7400-8900 7400-8900 3900-6900 inni­fal­inn 27600
Quest 30 mín =7500 / 1 kls= 15000 ekki í boði 1900
Solid 8900-9500 3500-6500 4000-6000 inni­fal­inn 26000
Mann­hattan 6500-8900 6500 4500-5000 inni­fal­inn 24900
Topphár 7900 6900 5500 1000 25800
Mögg­urnar í Mjódd 7600-8400 6200 4500-6300 1500 25400
Touch Hárstofa 8000-10000 7000 6500 1000 30000
Stúdíó hár og húð 4500-10000 3000-6000 2500-4000 1200-1500 22500
Cleopatra 6720 5500 3500 inni­fal­inn 19220
Skugga­fall 10500-11500 7500 5500-6500 inni­fal­inn 31000
Barberia 6500-9500 6000-6500 3500-6500 1500 26000
Klippi­stofa Jörgens ekki í boði 6200 5300 inni­fal­inn
Glamúr 7900-8500 6200 3990-4990 inni­fal­inn 23680
Kompaníið 9500 7500 6900 inni­fal­inn 30800
Wink 6500-7000 6000-7000 4500-5000 500 23500
Korner Hárstofa 9900-10900 7700-7900 4000-5900 2500 28700
Madonna 5500-7500 5500 4950-5200 1000 23150
Rauð­hetta og úlf­ur­inn 9500 7500 4500-5500 inni­fal­inn 27000
Emóra 7500-8500 5800 4500-5000 inni­fal­inn 23800
Salon Nes 7000-7500 6500 4500 1500 23000
Aida 8200 6500 3700-5100 inni­fal­inn 23500
Paulina Hárstúdíó 4000-6500 4500 2600-3600 800-1200 18200
Labella 8900-9500 6500-7500 4800-5200 1500 27000
Sandro 7900 3000-6900 5900 inni­fal­inn 26600
Hár­fjelagið 7900-8900 6500 4000-5500 500-1200 24900
Höf­uð­lausnir 7800 5200-5900 3950-5000 1100 22650
Crinis 6750-8950 8150 6750 inni­fal­inn 30600
Hárflikk 5500 4900 3900 inni­fal­inn 18200
Effect 6900 5900 4500 inni­fal­inn 21800
Hártékk 7900-9900 6900 5900 inni­fal­inn 28600
Hár­setrið 6900 5900 3900-4900 inni­fal­inn 21600
Klippi­húsið 6300-7880 6300 4950 inni­fal­inn 24080
Hárlínan 7300 6500 5500 1300 24800
Scala 7900 6600 5500 inni­fal­inn 25500

Texti: Svava Kristín Svein­björns­dóttir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina