Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórhallur miðill dæmdur fyrir nauðgun: „Góðverkin í þessu lífi eru uppskeran í því næsta“

Þórhallur miðill dæmdur fyrir nauðgun: „Góðverkin í þessu lífi eru uppskeran í því næsta“
Þór­hallur Guð­munds­son mið­ill

Föstu­dag­inn 5. júní stað­festi Lands­réttur átján mán­aða fang­els­is­dóm Hér­aðs­dóms Reykja­ness yfir Þórhalli Guð­munds­syni vegna kyn­ferð­is­brots gegn rúm­lega tví­tugum karl­manni. Þór­hallur áfrýj­aði dómnum til Hæsta­réttar. Hæsti­réttur hefur nú stað­fest dóm Lands­réttar.

Þór­hallur var sak­felldur fyrir nauðgun, eftir að hafa brotið gegn mann­inum árið 2010 með því að hafa fróað mann­inum án hans sam­þykkis. Maðurinn lá á nudd­bekk hjá Þórhalli sem var þá að með­höndla hann sem heil­ari vegna bak­verkja sem brota­þoli þjáð­ist af. Mannlíf fjall­aði ítar­lega um brot Þórhalls þann 14. júní 2020.

Þar kom fram að mað­ur­inn kærði Þórhall sex árum seinna. Þór­hallur neit­aði sök, en dóm­ara þótti það rýra trú­verð­ug­leika ákærða að mis­ræmi var í fram­burði hans hjá lög­reglu og fyrir dómi varð­andi máls­at­vik. Fram­burður brota­þola var hins vegar að mati dóm­ara mjög trú­verð­ugur, og studdur frá­sögnum vitna, bæði fjöl­skyldu­með­lima, vina og sér­fræð­inga.

Dómur var kveð­inn upp í Hér­aðs­dómi Reykja­ness 18. des­em­ber 2018 og stað­festur fyrir Lands­rétti og nú aftur fyrir Hæsta­rétti sem sagði að dóm­ur­inn skyldi standa óhagg­aður.

Við ákvörðun refs­ingar var horft til þess að Þór­hallur hafði ekki áður sætt refs­ingu. Einnig var tekið til­lit til tafar á máls­með­ferð­inni.

Þór­hallur var jafn­framt dæmdur til að greiða mann­inum 1.2 milljón króna í miska­bætur. Í nið­ur­stöðu dóms Hæsta­réttar segir:

„Hinn áfrýj­aði dómur skal vera órask­aður um annað en einka­rétt­ar­kröfu A. Ákærði, Þór­hallur Guð­munds­son, greiði A 1.200.000 krónur, með vöxtum. Ákærði greiði allan áfrýj­un­ar­kostnað máls­ins, sam­tals 1.307.898 krónur, þar með talin málsvarn­ar­laun skip­aðs verj­anda síns, Sig­mundar Hann­es­sonar lög­manns, 824.600 krónur, og þóknun rétt­ar­gæslu­manns brota­þola, Ingvars Þór­odds­sonar lög­manns, 353.400 krónur, auk útlagðs kostn­aðar hans, 59.910 krónur.“

Hver er Þórhallur miðill?

Mannlíf fjall­aði eins og áður segir ítar­lega um níð­ings­verk Þórhalls í júní 2020. Þar sagði:

Þór­hallur Guð­munds­son fædd­ist 4. febr­úar 1961 í Reykja­vík og upp­al­inn í Laug­ar­nes­hverfi og Voga­hverfi. Þór­hallur vann í Versl­un­ar­bank­anum þar til hann var lagður niður árið 1990 og sneri sér þá alfarið að mið­ils­störfum.

Í við­tölum hefur hann sagt mið­ils­hæfi­leik­ana með­fædda, en eftir setu á bæna­fundum og heim­sókn í Sál­ar­rann­sókna­fé­lag Íslands hafi mót­ast „ákveðnir hlutir og maður sá hvert för­inni var heitið,“ eins og hann sagði í við­tali við Feyki 14. júní árið 2017.

Þór­hallur starf­aði með Sál­ar­rann­sókn­ar­fé­lagi Reykja­víkur og Sál­ar­rann­sókn­ar­fé­lagi Akur­eyrar. Þór­hallur starf­aði í útvarpi og sjón­varpi í nærri tvo ára­tugi. Á Bylgj­unni og Stöð 2 var hann með sjón­varps­þátt­inn Lífs­augað, sem flutti yfir á norð­lensku útvarps­stöð­ina VOICE í ágúst árið 2006, en hætti í maí 2008.

Þætt­irnir voru end­ur­vaktir í sjón­varpi árið 2009 á Skjá­Einum, en í þeim ann­að­ist Þór­hallur svo­kall­aðar skyggni­lýs­ingar fyrir áhorf­endur í sal, og í því fólst meðal ann­ars að hafa sam­band við fram­liðna.

Í áður­nefndu við­tali í Feyki fyrir þremur árum voru loka­orð Þórhalls:

„Þegar maður deyr er spurt hvað maður lætur mikið eftir sig, en englarnir munu spyrja:

Hvað hefur hann sent mörg góð­verk á undan sér? Góð­verkin í þessu lífi eru upp­skeran í því næsta.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi