Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Engill Bjartur er neytandi vikunnar: „Kreditkort versta uppfinning samtímans“

Engill Bjartur er neytandi vikunnar: „Kreditkort versta uppfinning samtímans“

Neytandi vik­unnar er Engill Bjartur Einisson, rit­höf­undur, ljóð­skáld og pistla­höf­undur. Auk þess er hann rapp­ari og er að vinna í gerð síns fyrsta lags. Engill Bjartur er áhrifa­valdur á sam­fé­lags­miðlum og deilir skemmti­legum brotum úr lífi sínu á Instagram og TikTok til afþrey­ingar lands­manna. Hann býr með for­eldrum sínum og yngri bróður. Engill Bjartur er fæddur 1998 en segir að flestir halda að hann sé þrí­tugur eftir að hann byrj­aði að safna skeggi. Hann hefur sent frá sér þrjár ljóða­bækur á síð­ast­liðnum þrem árum (Vígsla, Ljóðgæti & Frumefni) og hafa þær hlotið góðar við­tökur. 

Hvað eyðir Engill Bjartur í mat á mánuði og hvar verslar hann helst ?

„Ég eyði umtals­verðu í mat þar sem ég er iðinn vöðva­smiður eða vaxt­ar­rækt­ar­maður. Eins og flestir vita, er það brýn nauð­syn að inn­byrða ógrynni af hita­ein­ingum og pró­tíni til að hámarka vöðva­vöxt­inn. Að öðru heim­il­is­fólki und­an­skildu snæði ég fyrir u.þ.b. 100 þ. kr. á mán­uði. 

 Ég versla ein­göngu í Bónus ein­fald­lega því þar er ódýr­ast. En hnet­urnar og húmmus­inn minn kaupi ég í Costco. Hvað val á versl­unum varðar er verð­lagn­ing lyk­il­at­riði en góð þjón­usta skiptir líka sköpum. Ef afgreiðslu­fólk til­tek­innar versl­unar leggur sig í fram­króka við að veita líf­lega og almenni­lega þjón­ustu, er mun lík­legra að ég skipti við þá verslun. Mér leið­ist þurr þjón­usta og skil ekki að hún skuli þríf­ast á annað borð. Ef þjón­ustu­fólk getur ekki verið kurt­eist við alla við­skipta­vini, ætti það að skipta um starf.“

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi ?

 „Ég held kostn­aði niðri með því að fara sjaldan út að borða. Þar að auki er ég græn­metisæta/fiskæta og slepp því við að eyða pen­ingum í kjöt. Ég myndi vilja fá Costco í heima­bæ­inn minn Mos­fellsbæ til að þvinga Bónus til að vera enn sam­keppn­is­hæf­ari. Ef sama verð­stríð gilti um mat­vöru­versl­anir og gildir um elds­neyti, væri mat­ar­verð lægra á lands­vísu, öllum til bóta.“

Telur þú álagn­ingu versl­ana sann­gjarna og gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu ?

„Að mestu leyti já. Þar sem ég versla sárasjaldan í sjoppum, dýrum búðum og skyndi­bita- og veit­inga­stöðum, verð ég lítið var við háa verð­lagn­ingu en ég er með­vit­aður um hana og þykir hún stundum eiga rétt á sér. Stundum ekki. Ef versl­anir eru opnar allan sól­ar­hring­inn er hærra verð rétt­læt­an­legt. En síðan er hreint og beint okur einnig til sem fyr­ir­bæri og því er ég ekki hlynntur. Gullna reglan er þessi: Ef álagn­ing er mikil á vöru eða þjón­ustu, þarf kúnn­inn að fá fríðnidi í hlut­falli við álagn­ing­una; s.s. fram­úr­skar­andi þjón­ustugæði, lengri opn­un­ar­tíma, betri vöru, heim­send­ingu o.þ.h. Versl­unum ber að hafa þetta hug­fast. Já, ég geri verð­sam­an­burð af natni því spar­aður skild­ingur er græddur skild­ingur.“

Verðtryggð lán, óverðtryggð lán eða engin lán ?

„Ég tek aldrei lán. Þegar ég flyt að heiman er stefnan að geta stað­greitt mína fyrstu íbúð. Ég er mót­fall­inn lánum af öllum toga. Einnig þykir mér kredit­kort versta upp­finn­ing sam­tím­ans. Mun verri en yfir­dráttur. Best er að eiga sinn eig­inn aur og ef maður á hann ekki að safna þá af þol­in­mæði og vera með raun­hæf mark­mið í neyslu, útgjöldum og fjár­fest­ingum.“

Leggur þú fyrir og ef svo er hvaða leiðir notar þú ?

„Ég er séður í fjár­málum og safna af fyr­ir­hyggju. Núna er ég að safna fyrir nýjum bíl. Síðan íbúð. Mín besta leið til að safna er að taka út reiðufé í hrað­banka og fela það á góðum stöðum. Þá sé ég féð ekki í heima­bank­anum og er því ólík­legri til að falla í þá gryfju að eyða því í óþarfa. Þetta er eins og að vera með banka heima hjá sér. Einnig hef ég hug á að koma mér upp per­sónu­legum neyð­ar­sjóði með tíð og tíma sem sam­anstendur 50% af Banda­ríkja­dölum og 50% af gulli – ef ske kynni að efna­hag­ur­inn í núver­andi mynd hrynji.“

Umhverfisvernd, skiptir hún þig máli ?

„Ég er umhverf­is­vernd­ar­sinni og nátt­úru­barn. T.a.m. hata ég að sjá sígar­ettu­stubba á Esjunni og ég kem því ekki heim og saman að sumir hendi rusli á götum úti og hvað þá í íslensku nátt­úr­unni okkar. Hins vegar hall­ast ég að því að gert sé eilítið of mikið úr kolefn­is­mengun af almenn­ings­völdum. Einka­þotur millj­arða­mær­inga eru mun stærra vanda­mál hvað umhverfið varðar en fólks­bíll með­al­manns­ins. Öfgaum­hverf­is­vernd er að mínu mati aðferð gló­balista og auð­manna til að ein­oka auð­lindir jarðar og dreifa athygli jarð­búa frá stærri vanda­málum eins og stjarn­fræði­legum útgjöldum Banda­ríkja­hers og NATÓ sem menga meira en almenn­ingur á einka­bílum. Í þessu sam­bandi þykir mér umræðan um fækkun bíla­stæða í höf­uð­borg­inni ekki lands­mönnum fyrir bestu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð