Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Dagný óttast dauðann vegna brjóstakrabbameins um þrítugt:,,Fór strax að jarða sjálfa mig í huganum“

Dagný óttast dauðann vegna brjóstakrabbameins um þrítugt:,,Fór strax að jarða sjálfa mig í huganum“

,,Ég fór strax að jarða sjálfa mig í hug­anum um leið og lækn­ir­inn sagði mér að ég væri með krabba­mein. Ég var komin með laga­list­ann fyrir jarð­ar­för­ina og búin að setja kross­inn á leiðið og allt saman,“ segir Dagný Ósk Vestmann, sem greind­ist með brjóstakrabba­mein síðla árs 2017, þá þrí­tug að aldri. 

Golfkúla í brjóstinu

Dagný leit­aði til læknis þegar hún fann fyrir hnút í öðru brjósti sínu en fékk ekki gott við­mót frá þeim lækni. Var hún talin vera móð­ur­sjúk og öllum líkum á brjóstakrabba­meini vísað á bug. ,,Ég fór til læknis í ágúst árið 2017 af því að ég fann fyrir kúlu í brjóst­inu á mér og fannst það skrýtið. Þetta var frekar stór kúla, eins og golf­kúla, en lækn­ir­inn sagð­ist ekki finna þessa kúlu, sama hvað hann þreif­aði. Það hlyti bara að vera að ég væri að fara byrja á blæð­ingum. Þetta væri pott­þétt eitt­hvað horm­óna­tengt, ekk­ert sem ég þyrfti að hafa áhyggjur af.“

Dagný var ekki jafn sann­færð og bað um að fá að kom­ast að hjá ein­hverjum öðrum lækni sem kynni betur að þreifa og skima, og hefði meiri skiln­ing fyrir áhyggjum hennar. Ekki var fall­ist á það. Lækn­ir­inn bauðst þó til þess að hringja í Dagnýju að tveimur vikum loknum til að ganga úr skugga um að hnút­ur­inn hefði hjaðnað og horfið í kjöl­far tíða­hrings­ins. ,,Þegar þessi læknir hringdi þá ákvað ég bara að segja að kúlan væri farin, þó svo að hún væri þarna enþá. Ég nennti ekki að díla við þetta við­mót og þessa móð­ur­sýkis stimplun. Það var mjög heimsku­legt af mér en ég ætl­aði mér bara að fara til ein­hvers ann­ars læknis.“ 

,,Ég fór strax að jarða sjálfa mig í hug­anum um leið og lækn­ir­inn sagði mér að ég væri með krabba­mein. Ég var komin með laga­list­ann fyrir jarð­ar­för­ina og búin að setja kross­inn á leiðið og allt saman.“

Í fyrstu lét Dagný það ógert að kom­ast að hjá öðrum lækni en þegar hún upp­götv­aði að lög­unin á hægra brjósti hennar hefði breyst þá leist henni ekki á blik­una. ,,Brjóstið á mér var orðið inn­fallið á hlið­inni. Þá vissi ég að ekki var allt eins og það átti að vera. Ég sendi mömmu myndir og henni leist ekk­ert á þetta heldur og þró­að­ist það þannig að hún fékk tíma fyrir mig á Leit­ar­stöð­inni,“ segir Dagný. Þó nokkur bið var eftir tím­anum hjá Leit­ar­stöð­inni en þann 12. des­em­ber var Dagnýju loks komið að í skoðun hjá lækni og mynda­töku. ,,Þessi dag­setn­ing, 12.12.17‘ er brenni­merkt í heil­ann á mér,“ segir Dagný og leggur mikla á áherslu á orð sín. „Þegar lækn­ir­inn sá brjóstið á mér í fyrsta sinn þá vissi ég að þetta væri alvar­legt. Ég sá það á svipnum á honum og átt­aði mig strax á því sjálf.“

,,Dóttir mín fékk ekki að vita neitt strax því ég vildi leyfa henni að eiga gleði­leg jól – síð­ustu jólin með mömmu sinni því ég var nátt­úru­lega búin að drepa sjálfa mig í hausnum á mér.“

Dagný seg­ist hafa farið í ákveð­inn hug­ar­hrær­ing á þessum tíma­punkti og í þannig aðstæðum leiti hún oft­ast í húmor­inn. ,,Honum fannst ég ekki fyndin á þess­ari stundu. Hann spurði mig hvort ég væri með síli­kon og ég ákvað að blikka hann með frekar klúrum hætti og svar­aði: Nei, en þakka þér fyrir að spyrja. Þetta var ekki staður og stund fyrir svona grín,“ segir Dagný og hlær. ,,Hann gerði svo ástungu á brjóstið, tók sýni til þess að senda í ræktun og sagði við mig að þetta væri alvar­legt. Ég ætti að hitta skurð­lækni eftir viku og þá myndi ég fá fleiri upp­lýs­ingar,“ segir hún, og tekur fram að biðin eftir tím­anum hjá skurð­lækn­inum hafi verið þung­bær. ,,Ég grenj­aði stans­laust í þessa viku. Ég sá ekk­ert nema dauð­ann fyrir mér. Fann svo til með dóttur minni sem var að fara jarða mömmu sína þarna.“

,,Ég grenj­aði stans­laust í þessa viku. Ég sá ekk­ert nema dauð­ann fyrir mér. Fann svo til með dóttur minni sem var að fara jarða mömmu sína þarna.“

Jól frá helvíti

Dagný grein­ist með þriðja stigs, ill­kynja, horm­óna­já­kvætt krabba­mein sem hafði dreift sér í eitla. Gaf það auga leið að hún þurfti að gang­ast undir aðgerðir og hefja lyfja­með­ferð með hraði. ,,Það er bara korter í jól þarna. Dóttir mín fékk ekki að vita neitt strax því ég vildi leyfa henni að eiga gleði­leg jól – síð­ustu jólin með mömmu sinni því ég var nátt­úru­lega búin að drepa sjálfa mig í hausnum á mér.“ Segir hún það hafa verið óbæri­lega erfitt að halda and­liti fyrir framan Emilíu, dóttur sína, sem þá var átta ára gömul. ,,Ég grét stans­laust öll jólin, lá bara í fóst­ur­stell­ing­unni og grét. Ég reyndi samt eins og ég gat að fela það fyrir henni. Þetta var ógeðs­leg­asti tími lífs míns.“    

,,Ég grét stans­laust öll jólin, lá bara í fóst­ur­stell­ing­unni og grét. Ég reyndi samt eins og ég gat að fela það fyrir henni. Þetta var ógeðs­leg­asti tími lífs míns.“

Þegar Dagnýju var greint frá því hvers kyns krabba­mein væri um að ræða þá var henni sagt að miklar líkur yrðu á ófrjó­semi í kjöl­far lyfja­gjaf­ar­innar. ,,Mér var bara bent á Livio strax. Upp á það að eiga mögu­leika á því að eign­ast fleiri börn. Það eru til dæmi um það að svona lyfja­gjafir geti eyði­lagt eggja­stokk­ana þannig að frjó­semin verður ekk­ert endi­lega til staðar eftir svona lyfja­gjafir.“ 

„Eitthvað hlýt ég að hafa fyrst hann er enn með mér – kannski er ég bara svona góð í rúm… Æ, nei ég ætla ekki segja það!“

Þar sem að krabba­mein Dagnýjar var horm­óna­já­kvætt þá þurfti að gæta ýtr­ustu var­úðar við horm­óna­gjöf­ina. ,,Um leið eftir fyrsta tím­ann hjá Livio byrj­aði ég strax í léttri horm­óna­með­ferð svo að  ég gæti farið í egg­heimtu. En það mátti ekki gefa mér fullan skammt af horm­ón­unum útaf krabba­mein­inu því það hefði getað versnað á þessum stutta tíma áður en ég færi í aðgerð­ina til þess að fjar­lægja brjóstið. Hormónin hefðu getað aukið vöxt á æxl­inu og gert öllum erf­ið­ara fyrir.“

86% líkur á brjóstakrabbameini með ríkjandi BRCA gen

Mánuði eftir grein­ing­una gekkst Dagný undir brjóst­náms­að­gerð á hægra brjósti, ásamt því að hefja geisla- og lyfja­með­ferð. Jólin voru því eini tím­inn sem hún fékk til þess að und­ir­búa sjálfa sig fyrir átökin og segja aðstand­endum sínum frá því sem var í vændum. ,,Í mínu til­felli var ekki nóg að fjar­lægja meinið, það var svo dreift.“ segir hún. ,,Svo kom það í ljós að ég væri með gallað gen, þetta svo­kall­aða BRCA 2 gen. Ég hafði ekki hug­mynd um það,“ segir Dagný. Mikil umræða hefur verið um BRCA genin en mörgum til­fellum ganga þau í erfðir. Stökk­breyt­ing í BRCA genum getur stór­lega aukið áhætt­una á krabba­meini. ,,Þetta gen er komið úr föð­ur­fjöl­skyld­unni minni, ég vissi það ekki þá en veit það núna. Ég fékk svo að vita að væru 86% líkur á því að ég fengi brjóstakrabba­mein ein­hvern tím­ann á ævinni – það eru alveg rosa­lega miklar líkur.“ 

,,Mér fannst ég hræði­leg. Ég þekkti ekki speg­il­mynd mína.“

Ekki nóg með að Dagný hafi greinst með brjóstakrabba­mein sökum BRCA gens­ins, þá eru lík­urnar á því að hún fái krabba­mein í önnur líf­færi ekki á neinu und­an­haldi. ,,Það eru miklar líkur á að ég geti fengið eggja­stokka og eggja­leið­ara krabba­mein líka,“ segir Dagný áhyggju­full á svip. Aðspurð seg­ist Dagný ekki vera hrædd, en að hún hafi verið það í byrjun. ,,Núna er ég að njóta lífs­ins svo mikið að ég hef ekki tíma til þess að vera hrædd. En ég er samt svaka­lega hrædd við dauð­ann. Ég ætla mér ekki að deyja frá ungum börnum mínum. Ég er búin að berj­ast einu sinni og sigra – afhverju ætti ég ekki að geta gert það aftur?“ spyr Dagný sjálfa sig, enda bar­áttu­kona mikil.

,,Núna er ég að njóta lífs­ins svo mikið að ég hef ekki tíma til þess að vera hrædd. En ég er samt svaka­lega hrædd við dauð­ann. Ég ætla mér ekki að deyja frá ungum börnum mínum.“

Þrúgandi þunglyndi og vanlíðan

,,Ster­arnir fóru rosa­lega illa í mig,“ segir Dagný ,,ég var svo leið­in­leg, svo pirruð og reið og orð­ljót. Mér leið bara svo illa. Ég get enn ekki skilið afhverju mað­ur­inn minn fór ekki bara frá mér á þessum tíma. Ég var ekki alltaf ynd­is­leg við hann.“ Dagný segir að Kristinn Bjarki Hjalta­son, maður hennar, hafi umvafið hana kær­leik og staðið þétt við bak hennar í gegnum veik­indin. ,,Hann er svo dýr­mætur þessi maður. Algjör klettur. Ég grét stöðugt, sagði ljóta hluti, leit hræði­lega út og leið hörmu­lega. Ég hefði skilið það svo vel ef hann hefði bara farið, bara labbað út frá mér. En guð almátt­ugur hvað ég er þakk­lát fyrir hann. Eitthvað hlýt ég að hafa fyrst hann er enn með mér – kannski er ég bara svona góð í rúm… Æ, nei ég ætla ekki segja það!“ segir Dagný, og skellir upp úr. 

Dagný við­ur­kennir að hafa týnt and­legu heils­unni sinni í kjöl­far veik­ind­anna, enda sam­spil á milli lík­am­legrar og and­legrar heilsu oft nátengt. ,,Ég var ólík sjálfri mér þarna. Og eins galið og það hljómar þá fannst mér ein­hvern veg­inn eins og Kiddi ætti að kvelj­ast með mér. Við vorum að ganga í gegnum þetta saman og hann átti líka að þjást. Hálf­part­inn beitti ég hann and­legu ofbeldi þarna.“ Hún seg­ist hafa verið með­vituð um þessa and­legu kvilla og talað um þá við áfallteymi. ,,Sál­fræð­ing­arnir sem ég tal­aði við sögðu allir að þetta væru eðli­leg við­brögð og við Kiddi unnum bara úr þessu. Enda bæði með breitt bak. Allt þetta hefur styrkt sam­band okkar svo um munar.“

Fjöl­skyldan hefur staðið þétt saman í gegnum veik­indi Dagnýjar.

Bæði brjóstin farin

,,Mér fannst ég hræði­leg. Ég þekkti ekki speg­il­mynd mína,“ segir Dagný, en seinni brjóst­náms­að­gerð var fram­kvæmd á henni í sept­em­ber 2019. ,,Það líða alveg átta mán­uðir á milli aðgerða en svo byrjar ákveðið upp­bygg­ing­ar­ferli.“ Dagný talar um mik­il­vægi sjálfs­ins. ,,Að vera sköll­ótt, ekki með brjóst, ekki með augn­hár, ekki með auga­brúnir og bjúguð af sterum – ég gat ekki séð mig svona. Mér fannst ég hafa misst allan kven­leik­ann. Það hjálp­aði ekki and­legu hlið­inni að líða svona með sjálfa sig,“ segir hún. ,,Kiddi var alltaf dug­legur að hrósa mér og segja mér hvað honum þótti ég sæt. Og svo hug­hreysti hann mig enda­laust með því að telja mér trú um að þetta væri bara tíma­bil. Ég fór að trúa því líka.“ 

„Þegar lækn­ir­inn sá brjóstið á mér í fyrsta sinn þá vissi ég að þetta væri alvar­legt. Ég sá það á svipnum á honum og átt­aði mig strax á því sjálf.“

Vefja­þenj­urum var komið fyrir í brjóst­holi Dagnýjar ásamt því að teknir voru vöðvar úr baki hennar til þess að hægt væri að end­ur­laga á hana brjóst. ,,Vefja­þenjarar blása upp svæðið og svo er sprautað inn salt­vatni til þess að búa til lög­un­ina. Brjóstin eru samt ekki með neina virkni, ég er ekki með brjóst­vefi, geir­vörtur eða neitt svo­leiðis, og verð aldrei með aftur.“ 

Í maí 2020 fór Dagný í svo­kall­aða skipti­að­gerð. ,,Þá eru vefja­þenjar­arnir teknir. Það er í raun síð­asta aðgerðin í ferl­inu. Og ég lifði af!“ Með öllu réttu hefði Dagný átt að fara í síli­kon fyll­ingu í kjöl­far skipti­að­gerð­ar­innar en heims­far­ald­ur­inn stóð í vegi fyrir því. ,,Það kom Covid og allt frestað­ist. Þegar ég fór svo og hitti lækn­ir­inn minn var ég gjör­sam­lega á steyp­irnum!“

Draumur í dós

Dagný hafði efast allan tím­ann um frjó­semi sína á meðan á veik­ind­unum stóð, en þráði að geta eign­ast annað barn í fram­tíð­inni. ,,Til­hugs­unin um það að mega ekki reyna að eign­ast barn gat gert mig brjál­aða. Ég vil ekki að heil­brigð­is­kerfið stjórni lífi mínu og hvenær ég má eign­ast börn. Kannski lang­sótt að klína þessu á kerfið en ég þarf að vera á and­horm­óna­lyfjum í tíu ár! Ég er 34 ára og er bara að renna út á tíma hérna sko!“ segir Dagný kímin.

,,Að vera sköll­ótt, ekki með brjóst, ekki með augn­hár, ekki með auga­brúnir og bjúguð af sterum – ég gat ekki séð mig svona. Mér fannst ég hafa misst allan kven­leik­ann.“

,,Ég var sett á þessa and­horm­óna­með­ferð þarna í byrjun og var líka á hamlandi eggja­stokka­með­ferð. En ég fékk leyfi í febr­úar fyrra til þess að hætta á lyfj­unum í eitt ár,“ útskýrir Dagný. Þar með var Dagnýju og Kidda gefið tæki­færi á því að reyna að eign­ast barn. ,,Ég tek síð­ustu töfl­urnar 23. febr­úar 2020 og bíð eftir því að byrja á blæð­ingum og vona á meðan að allt kerfið virki, þó svo að ég hafði miklar efa­semdir um það því það er ekki sjálf­gefið.“

Tíminn leið og beið og í júní hafði tíð­ar­hringur Dagnýjar ekki enn haf­ist. ,,Það var bara ekk­ert að ger­ast. Við vorum farin að und­ir­búa okkur í að fara í bank­ann til að setja upp eggin og fjár­magna það ferli,“ segir Dagný og tekur það fram að Covid far­ald­ur­inn hafi dregið það á lang­inn að hún kæm­ist að hjá læknum, hún var orðin  veru­lega óþreyju­full. ,,Þegar ég fæ svo loks­ins tíma hjá Livio þá er ég beðin um að leggj­ast á bekk­inn og er skoðuð í bak fyrir. Hvað kemur í ljós – ÉG ER ÓFRÍSK!“ segir hún hárri röddu og gleðin leynir sér ekki. ,,Ég er bara komin ell­efu vikur á leið og hafði ekki hug­mynd um það. Þetta var mesta gleði­stund lífs míns. Ég grét ham­ingju­tárum allan dag­inn,“ segir hún, og báðar þerrum við tár á hvörmum okkar eftir þessa til­finn­inga­miklu frá­sögn.

„Þetta var frekar stór kúla, eins og golf­kúla, en lækn­ir­inn sagð­ist ekki finna þessa kúlu, sama hvað hann þreif­aði. “

,,Litli krafta­verka­karl­inn okkar hann Krist­ó­fer Hjalti kom svo í heim­inn 5. jan­úar 2021. Svo til­bú­inn. Og við alveg jafn til­búin fyrir hann. Karmað gaf okkur krafta­verk í skiptum fyrir allt erf­iðið,“ segir Dagný sann­fær­andi. Þar sem Dagný er ekki lengur með sín nátt­úru­legu brjóst þarf litli dreng­ur­inn að fá pela­mjólk í stað móð­ur­mjólkur. ,,Það vissu allar ljós­mæður og aðrir á fæð­ing­ar­deild­inni af minni sögu og því fékk hann mjólk að drekka úr sprautu um leið og hann kom úr móð­ur­kviði. Það var ekk­ert mál. Hann er drauma­barn.“  

,Dóttir mín fékk ekki að vita neitt strax því ég vildi leyfa henni að eiga gleði­leg jól – síð­ustu jólin með mömmu sinni því ég var nátt­úru­lega búin að drepa sjálfa mig í hausnum á mér.“

Hvetur konur til að vera samkvæmar sjálfum sér

,,Þreifið, þuklið, þreifið og þuklið elsku konur,“ segir Dagný og bendir á mik­il­vægi þess að konur séu með­vit­aðar um brjóst sín. Dagný segir að allar konur séu í áhættu og að margar þeirra grein­ist ungar að árum. Hún vonar að heil­brigð­is­yf­ir­völd sjái sóma sinn í því að lækka aldur kvenna til þess að vera gjald­gengar í skimanir fyrir brjóstakrabba­meini. ,,Ekki vera hræddar við móð­ur­sýkis mót­lætið. Verið sam­kvæmar ykkur, þið þekkið ykkur best,“ segir sig­ur­veg­ar­inn að lokum.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Innlent

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina