Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Neytandi vikunnar: Móðgandi að fá tilboð um myglað grænmeti

Neytandi vikunnar: Móðgandi að fá tilboð um myglað grænmeti

Neytandi vik­unnar er Berglind Berg­hreins­dóttir, 55 ára öryrki. Berglind á tvö upp­komin börn. Hún er á leigu­mark­aði og kveður lítið eftir þegar búið er að standa skil á leigu og öðrum reikn­ingum. Það litla sem eftir er segir Berglind að fari í elds­neyti, mat og þess háttar. Berglind segir að þar sem hún sé öryrki hafi hún tíma sem hún ann­ars hefði ekki. Berglind hefur staðið í þeim sporum að vera aðstand­andi heila­bil­aðs ein­stak­lings. Það veitti henni inn­sýn í þann veru­leika sem þessi sjúk­linga­hópur býr við. Berglind sá margt sem betur mætti fara og vildi leggja sitt af mörkum við að laga það.

Öll sóun er slæm, ekki síst sóun á reynslu

Hún segir að það þurfi að auka fræðslu starfs­fólks um sjúk­dóm­inn og tryggja að nægur mann­skapur sé til staðar til þess að sinna þeim veiku. Vegna fjölda mis­taka og slysa á hjúkr­un­ar­heim­ilum og öðrum við­eig­andi stofn­unum, ákvað Berglind eftir hvatn­ingu fleiri aðila að stofna síð­una Verndum veika og aldr­aða. Það hefur aldeilis sýnt sig segir Berglind að það er gríð­ar­leg þörf. Í dag hafa verið stofnuð sam­tökin Verndum veika og aldr­aða. Stjórn sam­tak­anna leit­ast við að leið­beina, hjálpa og aðstoða aðstand­endur með allt er varðar rétt­indi og leiðir í kerf­inu. Berglind segir að það eigi ekki allir að þurfa að upp­götva sama hjólið. Öll sóun er slæm, ekki síst sóun á reynslu. Berglind segir þetta sína leið til þess að gera erf­iða og óvel­komna reynslu að ein­hverju jákvæðu.

Hve miklu eyðir Berglind í mat á mánuði og hvar verslar hún helst ?

 „Eins og áður sagði er ég öryrki og hef mjög lágar tekjur. Það fara um  60.000 kr í mat og rekstur heim­il­is­ins á mán­uði. Ég reyni að fara vel með en það gengur mis­vel. Ég versla helst í lág­vöru­verðs­versl­unum. Ég versla þar sem ég tel mig gera hag­stæð­ustu inn­kaupin, reyni að velja íslenska fram­leiðslu en get það ekki alltaf. En vegna örorku minnar þarf ég oft að versla það þyngsta og fá sent heim u.þ.b. einu sinni í mán­uði. Ég reyni að gera magninn­kaup og skipta því í heppi­legar ein­ingar. Mér finnst oft út í hött hvað við flytjum mikið inn af vörum sem við getum hæg­lega fram­leitt hér á landi og þá líka skapað atvinnu.“

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju villt þú breyta sem neytandi ?

 „Ég reyni að versla hag­stætt, kaupa og jafn­vel elda ríf­lega og frysta, reyni að nýta mat­inn sem best. Svo er ég með Bokashi fötur (fyrir líf­rænan úrgang) þar sem ég set sem mest af afgöngum sem ekki nýt­ast og fæ von­andi bráðum moltu þaðan sem ég nýti í garð­inn sem ég hef aðgang að. Eitt er alveg hunsað af þeim sem reka versl­an­irnar og það er að veita ríf­legan afslátt ef þú ferð á sjálfs­af­greiðslu­kass­ana ef ætl­ast er til að fólk nýti sér þá. Þá þarf líka að tryggja að kassa starfs­fólkið missi ekki vinn­una, með því að skapa önnur störf.

Ávextir og grænmeti fara og seint á niðursett verð

Ég vil að það verði hægt að kaupa ávexti og græn­meti  í minni pakkn­ingum án þess að það verði óhag­stætt og þar með minni mat­ar­sóun. Og það þarf að passa betur hvað er sett í „minni-mat­ar­só­unar-kass­ana“ því alltof oft sé ég bein­línis „mat“ sem er ekki boð­legur og ætti strax að fara í líf­rænt rusl. Það að bjóða myglaða ávexti /græn­meti  á nið­ur­settu verði er ekki jákvætt heldur finnst mér það móðg­andi og benda til þess að ekki sé nægi­lega vandað til verka, og mat­varan fari of seint í þessa kassa.

Losna sem allra mest við plastumbúðir

Ég vona að maður geti í meiri mæli keypt áfyll­ing­ar­vörur. Ég er sjálf búin að skipta út sumu eins og úr hand­sápum í plast­brúsum í sápu­stykki. Þau eru ekki síðri. Vil losna sem allra mest við plast­um­búðir. En því miður hverfa þær aldrei alveg,en ég reyni að end­ur­nýta þær líka til dæmis í garð­inn.Mér finnst líka alveg út í hött að reyna að stjórna neyslu fólks með því að hækka skatta á til dæmis sykur…miklu betra og mark­viss­ara væri að lækka skatta á holl­ustu­vörur og þannig hvetja til neyslu á þeim.“

Telur þú álagn­ingu versl­ana sann­gjarna og gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu ?

„Nei alls ekki. Allt of há álagn­ing. Ef Bónus getur lækkað verðið þá er það líka hægt hjá Hagkaup sem á Bónus líka. Það var merki­legt hvað fyr­ir­tæki sáu sér allt í einu fært að lækka verðin hjá sér þegar Costco var að opna. Þetta er hægt, það þarf bara vilja til þess. En á meðan fólk verslar hluti á upp­sprengdu verði þá er eng­inn hvati til að lækka verðið. Já, ég reyni að gera kann­anir áður en ég ákveð við hvaða fyr­ir­tæki ég vil skipta.“

 Verð­tryggð lán, óverð­tryggð lán eða engin lán ?

 „Ég er svo heppin að vera ekki með lán.“

 Leggur þú fyrir og ef svo er hvaða leiðir notar þú ?

„Ég get ekk­ert lagt fyrir. Ef það vildi svo ólík­lega til að afgangur yrði einn mán­uð­inn, þá færi hann í þeim næsta.“

 Umhverf­is­vernd, skiptir hún þig máli ?

„Umhverf­is­vernd skiptir mig miklu máli og ég flokka eins og ég get. Í heim­sóknum mínum í Sorpu sveið mig oft að sjá not­hæfum hlutum hent. Það væri vel hægt að nýta marga hluti (jafn­vel í vara­hluti), þótt þeir nýt­ist kannski ekki í upp­runa­legu hlut­verki. Því minni förgun því betra. Fyrir tæpu ári síðan, kynnt­ist ég konu sem heitir Jóna Imsland. Við vorum ósáttar við þá sóun sem við sjáum til dæmis á Sorpu og við ákváðum að stofna hóp á Facebook og köllum hann Heima­end­ur­vinnsla-Nýtum betur.

Í þessum hópi er bannað að selja hluti. Þarna er fólk að gefa frá sér ýmis­legt sem getur nýst næsta manni og á þessu tæpa ári eru næstum 2500 manns komnir í hóp­inn og fjölgar dag­lega. Ég er þakk­lát og stolt af þeim við­tökum sem hóp­ur­inn hefur fengið. En það er nóg pláss og fólk er vel­komið. Til að verja hóp­inn net-árásum eins og við höfum flest orðið vör við (falskir aðgangar og vírusar) þá er ein spurn­ing sem við viljum að fólk svari við inn­gang­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi