Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Vændiskonan sem gerðist grunnskólakennari hræðist karla: „Treysti bara píparanum og tannlækninum“

Vændiskonan sem gerðist grunnskólakennari hræðist karla: „Treysti bara píparanum og tannlækninum“

Ég hitti konu rétt ríf­lega yfir fer­tugt yfir kaffi. Hún virkar svo eðli­leg í útlitli að ég gæti senni­lega ekki lýst útliti hennar þótt hún hefði verið á undan mér í röð í mat­vöru­búð. Tæplega mið­aldra, kenn­ari og eins venju­leg hús­móðir og unnt er að ímynda sér.

Þessi ljúfi, opni og barn­góði kenn­ari er fyrr­ver­andi vænd­is­kona en nokkur ár eru liðin frá því hún lagði þann lífs­stíl að baki.

Hún er mjög sátt í starfi sínu, að lang­flestu leyti ham­ingju­söm og rík af börnum og barna­börnum og líður afar vel af að starfa með börnum.

Neyðin rak mig í vændið

En hún á sér for­sögu. Afar átak­an­lega og sorg­lega for­sögu. Þar sem hún á börn og ung barna­börn bað hún Mannlíf að nefna sig ekki á nafn því margir hennar fjöl­skyldu­með­lima vita ekki hvaða hel­víti hún hefur gengið í gegnum. Hún hefur fullan hug á að segja þeim það, bara ekki alveg strax heldur þegar hún telur þau vera reiðu­búin. Við skulum kalla hana Brynju.

Þunglyndi og misnotkun frá barnæsku

En hvernig stóð á því að hún fór þessa leið í líf­inu?

„Fyrst og fremst var það pen­inga­leysi en ég hef einnig barist við mikið þung­lyndi frá barn­æsku. Það gekk mikið á í æsku minni, ég var mis­notuð sem barn og man vel eftir hugs­un­inni um að ég vildi ekki verða gömul heldur yfir­gefa lífið viljug. Mér fannst ekk­ert skipta máli, ég bar enga virð­ingu fyrir eigin lík­ama og var nokkuð sama þótt aðrir gerðu það ekki heldur”.

Brynja segir að hún hafi farið í erfitt sam­band sem lauk með því að hún flutti út, svo að segja eigna­laus og að drukkna í skuldum. Hún vann tvær vinnur 10-12 tíma á dag til að borgar dýra leigu, borga háa upp­hæð í trygg­ingafé, kaupa hús­gögn, greiða reikn­inga og af lánum.

Óþarfi að gera þetta ókeypis

Hún ákvað síðan að prófa stefnu­móta­vef­ina og hitti þar karl­menn sem oft leiddi til sam­fara.

„Þar sem ég hafði enga virð­ingu fyrir sjálfri mér og lík­ama mínum datt mér í hug að fyrst ég væri að sofa hjá mönnum á djamm­inu gæti ég alveg eins fengið greitt fyrir það. Þetta var ekki eitt­hvað sem ég lagði mikla hugsun í, þetta var algjör skyndi­hug­detta. Ég setti inn aug­lýs­ingu á netið, fékk upp­lýs­ingar hjá konu sem stund­aði vændi um hvað ég ætti að rukka og lét vaða.”

Brynja setti inn aug­lýs­ingu á einkamal.is og segir að hún hafi ekki búist við miklum við­brögðum en þegar hún kann­aði við­brögðin tveimur dögum síðar var henni snar­brugðið. Slík var eft­ir­spurnin. „Sumir þeir sem sendu mér skila­boð voru þeir sömu og ég hafði hitt og jafn­vel sofið hjá í skemmt­ana­líf­inu. Fyrir mér mér var þetta ekk­ert stór­mál”

Ýtti frá vanlíðaninni og einbeitti mér að peningunum

,,Ég man vel eftir fyrsta skipt­inu mínu. Það var á hót­eli. Það var mun erf­ið­ara en ég hafði talið mér trú um þrátt fyrir að mað­ur­inn hafi verið mein­leisi­legur og jafn­vel almenni­legur. En ég ýtti van­líð­an­inni frá, lok­aði á hana og ein­beitti mér að pen­ing­unum”

Að sögn Brynju vildi hún í byrjun velja menn en fljót­lega kom í ljós að það var ekki svo auð­velt. „Ég vissi hrein­lega ekk­ert um þessa menn, hafði engar upp­lýs­ingar um þá enda gekk treg­lega að fá þær. Flestir voru menn­irnir ann­að­hvort heldur eldri en ég eða tölu­vert eldri. Þeir elstu voru ríf­lega sex­tugir og langstærsti hóp­ur­inn. Næstum, ef ekki allir þess­ara manna voru giftir“.

Óöryggi, valdleysi og stjórnleysi

Brynja stund­aði vændi í eitt og hálft ár en finnst henni tíma­bilið hafi staðið mun lengur.  „Ég fann stöðugt fyrir óör­yggi, vald­leysi og stjórn­leysi. Mér fannst fólk sjá á mér hversu illa mér leið og hversu illa ég var stödd. Þetta var rússi­ban­areið sem fór afar illar með mig”.

,,Ég bar enga virð­ingu fyrir sjálfri mér á þessum tíma. Hvort sem ég hitti menn á hót­elum, heima hjá þeim eða heima hjá mér, var ég alltaf hrædd því ég vissi aldrei út í hvað ég var að fara. Bílar voru líka vin­sælir, mörgum karl­mönnum fannst það eðli­leg­asta mál að skjót­ast út fyrir bæinn til að fá sér drátt í afur­sæt­inu.”

Byrjaði á að losa mig við íbúðina

Með tím­anum eign­að­ist Brynja „fastakúnna” sem voru þol­an­legri og urðu jafn­vel allt að því kunn­ingjar hennar.

„Ég fór heim til margra manna sem mér leið illa með en eins furðu­lega og það hljómar fannst mér ég vera skuld­bundin þeim þar sem þeir voru að borga mér“.

Þar sem Brynja stund­aði vændið heima hjá sér var það hennar fyrsta verk­efni eftir að hún yfir­gaf vændið að losa sig við íbúð­ina. „Hún minnti mig alltaf á þetta tíma­bil og enn í dag hleyp ég út úr versl­unum sem selja rúm sem eru svipuð því sem ég not­aði“.

En hvað rukk­aði Brynja menn­ina? „Ég var með verð­skrá: Tottið var ódýr­ast, kyn­lífið dýr­ara og enda­þarms­mök dýr­ust. Samt var aldrei beðið um þau, en ég held að það hafi breyst mjög að und­an­förnu og „normaliser­ast” og ég er alveg viss um auk­inni klám­væð­ingu sé þar um að kenna“.

Brynja segir að hún hafi að mörgu leiti verið heppin, hún hafi aldrei orðið fyrir lík­am­legu ofbeldi en hver kyn­lífs­sala hafi samt virkað eins og nauðgun. „Eini mun­ur­inn var að ég fékk borgað fyrir að hafa ein­hvern karl ofan á mér en til­finn­ingin var sú sama“.

Fékk taugaáfall

„Ég átta mig á því síðan að ég var að slig­ast og brotn­aði á end­anum saman og fékk tauga­á­fall. Ég gat þetta ekki mín­útu, ekki sek­úndu lengur. Ég hafði ofboðið mér svo óskap­lega að ég íhug­aði sjálfs­víg í fullri alvöru. Sem betur fer gripu vinir mínir mig og hjálp­uðu mér við að fá aðstoð hjá geð­deild Land­spít­ala þar sem ég fékk inni á bráða­mót­töku og fór síðan á göngu­deild í fram­hald­inu“.

Brynja seg­ist hafa leitað til Stíga­móta í kjöl­farið en ekki rætt um það ofbeldi sem hún hafi þurft að þola sem barn né vændið  Hún fór í marga tíma án þess að ræða ofbeldið og vændið.

Ríflega ári eftir að Brynja hætti í vænd­inu var henni nauðgað sem og var enn þannig þenkj­andi að henni fannst það sér að kenna og tók á sig ábyrgð­ina. Fljót­lega eftir það fékk Brynja alvar­legt tauga­á­fall og var lögð inn á geð­deild. „Þarna gat ég ekki burð­ast með þetta lengur og við­ur­kenndi fyrir sjálfri mér að ég yrði að vera full­kom­lega hrein­skilin við Stígamót“.

Kynlíf enn erfitt

„Það reynd­ist mun auð­veld­ara en ég átti von á. Ég við­ur­kenndi fyrir sjálfri mér að ég var með áfallastreituröskun og það hjálp­aði mér mikið. Stígamót héldu fast utan um mig og gáfu mér þau verk­færi og tól til að vinna úr áföll­unum. Stígamót hrein­lega björg­uðu lífi mínu, kenndu mér að bera virð­ingu fyrir sjálfri mér og lík­ama mínum“.

„Þótt að ég hafi komið langa leið í átt til bata eru ákveðnir hlutir sem eru mér erf­iðir. Ég get stundað kyn­líf, nýt þess reyndar, en það vantar ást­ríkið og inni­leik­ann. Ég dett aftur inn í vél­mennið sem var í færi­banda­vinnu í vænd­inu með blá­ó­kunn­ugum mönnum. Þessi gleði var tekin af mér og ég óska engum hinu sama“.

Ekkert latex heldur flíspeysur

Stíga­móta­konur hafa starf­rækt svo­kall­aða Svana­hópa sem eru sér­stak­lega fyrir konur sem hafa verið vændi. Brynja hefur mætt á fund og ætlar á fleiri. „Þetta var allt önnur upp­lifun en ég átti von á. Ég við­ur­kenni að ég mætti með for­dóma en það var  eng­inn í latex galla eða annað slíkt „segir Brynja og hlær. „Við erum allar venju­legar konur í flís­peys­unum okkar“.

Brynja er afar jákvæð og seg­ist líða mjög vel í dag. „Ég neita að sitja uppi með for­tíð­ina og vil koma sögu minni á fram­færi til að aðstoða konur í sömu aðstæðum enda er hjálp í boði. Ég er afar þakk­lát Stíga­mótum og geð­deild Land­spít­al­ans sem veittu mér mikla hjálp. Ég veit að margir er ósáttir með geð­hjálp á Íslandi en það er ekki mín reynsla”.

Óttast enn ákveðnar aðstæður

En Brynja segir vera ákveðnar aðstæður em hún hafi fælni fyrir. „Ég vel til dæmis alltaf kven­kyns lækna, sjúkra­þjálf­ara og nudd­ara þegar ég þarf að leita slíkrar þjón­ustu. Ég er líka mjög hrædd við að vera í sama rými karl­menn um og yfir sex­tugt enda voru þeir sem mest sóttu í mig. Ég fæ hjart­slátta­trufl­anir og finn fyrir miklum van­mætti. Það eru þó und­an­tekn­ingar eins og sam­býl­is­maður minn sem veit af for­tíð minn og er sáttur við hana. Ég treysti líka tann­lækn­inum mínum og pípar­anum, enda þekkt þá lengi” segir Brynja og brosir í lokin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð