Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Kristín sendir út neyðarkall svo sonur hennar geti lifað: „Í heiminn fæddist ljúflingur“

Kristín sendir út neyðarkall svo sonur hennar geti lifað: „Í heiminn fæddist ljúflingur“

Kristín Helga­dóttir reynir í örvænt­ingu að bjarga syni sínum þar sem úrræðin í kerf­inu virð­ast upp urin að hennar mati. Neyð­ar­kallið hefur hún sett út á Facebook og tagg­aði hún þar Dag B. Egg­erts­son borg­ar­stjóra, Ásmund Daða Ein­ars­son félags­mála­ráð­herra, Svandísi Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra og Kára Stef­áns­son, for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar.

Kristín segir son sinn hafa fæðst í heim­inn sem ljúf­lingur sem ekk­ert aumt hafi mátt sjá. Þrátt fyrir gott og ást­ríkt upp­eldi hafi hann síðar leiðst út í fíkni­efna­neyslu og nú sé komið að hann sé varla húsum hæfur vegna neyslu og geð­rænna vanda­mála.

Neyð­ar­kall Krist­ínar er átak­an­leg lesn­ing og má lesa alla frá­sögn hennar hér að neðan:

„ÁKALL Á HJÁLP – Vel­ferð­ar­ráðu­neytið Mamma er ráð­þrota Ég tjái mig sjaldn­ast opin­ber­lega en þessi skrif eru síð­asta hald­reipi mitt og von um að sonur minn eigi mögu­leika á að halda lífi. Ég ætla að skrifa hér nokkur orð um son minn á meðan hann lifir en ekki eftir hans daga. Sonur minn á skilið að ég berj­ist aðeins lengur með honum. Ég hef stundum haft á orði að ég sé vel­ferð­ar­ráðu­neytið Mamma. Þar hef ég starfað síðan mér auðn­að­ist að eign­ast elsta barn mitt sem hér um ræðir. Frá þeirri stundu hefur líf mitt snú­ist um að hlúa að, styrkja og hvetja son minn áfram í líf­inu.

Í heim­inn fædd­ist ljúf­lingur sem ekk­ert aumt mátti sjá, boð­inn og búinn að hjálpa öðrum. Hann var glað­lynt barn, hug­mynda­ríkur sveim­hugi og mörgum gáfum gæddur. Þrátt fyrir að fá gott upp­eldi, búa við ást­ríki og öryggi hefur sonur minn leiðst út í neyslu ávana- og fíkni­efna og neytt þeirra rúm­lega hálfa ævi sína. Eins og margir vita sem þekkja til afleið­inga notk­unar sterkra fíkni­efna, verður neyslan oft harð­ari þegar á líður og geð­veikin kveður dyra. Ofskynj­anir, mik­ill ótti, árátta og þrá­hyggja ásamt lít­illi raun­veru­leika­teng­ingu, er þess vald­andi að sonur minn er ekki húsum hæfur.

Það skal tekið fram að sonur minn er svo lán­samur að eiga tvær ynd­is­legar fjöl­skyldur, föður- og móð­ur­fjöl­skyldur þar sem for­eldrar og systk­ini sakna góðs sonar og bróður, sem þau ná ekki sam­bandi við sökum neyslu hans og áunn­innar geð­veiki. Ekki hefur skort ást­ríki fjöl­skyldn­anna né sam­heldni. Nú er svo komið að vel­ferð­ar­ráðu­neytið Mamma er ekki lengur starf­hæft. Eftir 20 ára stans­lausa vinnu, eru úrræðin á þeim bæ upp urin. Allir verk­ferlar gagns­lausir, gát­listar tæmdir og þó leitað sé til sér­fræð­inga úti í bæ, er komið að tómum kof­unum.

Ástæðan er fyrst og fremst sú að sonur minn vill ekki þiggja hjálp­ina, treystir engum lengur, ótt­inn alls­ráð­andi og geð­veikin ríður röftum. Það er ekki eins og hann eigi ekki hjálp­ina vísa s.s. vist á geð­deild­inni, aðstoð frá Vorteym­inu, skjól og stuðn­ing í Gisti­skýl­inu. Hann er ekki lengur húsum hæfur, hor­aður, vannærður og geð­veikur, á ráfi um stræti Reykja­víkur. Besti tími sonar míns síð­ast­liðið ár er lík­lega vera hans í fang­els­inu á Hólms­heiði, öruggur með húsa­skjól og mat og fíkni­efna­neyslan í lág­marki. Í fang­els­inu afplán­aði sonur minn dóm fyrir að ráð­ast m.a. á heil­brigð­is­starfs­mann á geð­deild­inni, þar sem hann fékk ekki þá þjón­ustu sem hann þráði.

Meðan sonur minn var í fang­els­inu, fengu fjöl­skyld­urnar sem að honum standa, and­rými og hvíld um stund­ar­sakir. Við vorum örugg á meðan, örugg um að hann skað­aði ekki sjálfan sig né aðra í sam­fé­lag­inu og væri á lífi. Við bárum enn von í brjósti um bata og nýja tíma. Þegar sonur minn kom út úr fang­els­inu í vor, leit ég lífið bjart­ari augum, þar sem sonur minn vildi þiggja að kom­ast sem fyrst í stuðn­ings­úr­ræði svo sem á Vog, Krísuvík eða Hlað­gerð­ar­kot svo hann færi ekki beina leið í ruglið aftur. Við tóku 10 dagar þar sem við keyrðum á milli stofn­ana að beið­ast ásjár og stuðn­ings. Í stuttu máli sagt komum við að luktum dyrum og syni mínum hrak­aði dag frá degi, þar sem hann fór mjög fljótt í harða neyslu og að end­ingu í geð­rof með ógn­andi hegðun. Taflið snérist við og sonur minn var ekki lengur á leið í stuðn­ings­úr­ræði. Hann vant­aði bara pen­inga frá okkur til að geta átt fyrir neyslu­skammti dags­ins. Við for­eldr­arnir hringdum í lög­regl­una, síð­asta dag­inn í björg­un­ar­að­gerðum okkar, til að láta vita af ásig­komu­lagi okkar ást­kæra sonar og ótta við að hann myndi skaða ein­hvern sem á vegi hans yrði, sökum geð­rofs­ins og ótt­ans sem var alls ráð­andi hjá honum.

Samtalið við lög­regl­una var gott og styrkj­andi en hún gat ekk­ert aðhafst þar sem sonur okkar hafði ekki ógnað öðrum á þessum tíma­punkti. Nú er svo komið að sonur minn er ekki hæfur til að gista í Gisti­skýl­inu, sökum geð­veiki sinnar og ásig­komu­lags. Hann er aftur orð­inn ógn­andi og geð­veikin magn­ast. Ég hef síð­ast­liðin ár átt ágæt sam­skipti og sam­töl við starfs­fólk Fang­els­is­mála­stofn­unar, félags­þjón­ustu Reykja­vík­ur­borgar, Gisti­skýl­is­ins, geð­deild­anna á LSH og SAk, frú Ragneiði, SÁÁ og starfs­fólks Reykja­vík­ur­borgar sem sinnir geð­heil­brigð­is­þjón­ustu við fíkni­efna­neyt­endur. Það vantar ekki vilj­ann og úrræðin en þar sem sonur minn neitar aðstoð­inni, þar sem hann er ekki lengur raun­veru­leika­tengdur, þar sem hann þekkir ekki lengur mun­inn á já og nei en hefur ríkan rétt til sjálf­ræðis, er ekki eftir neinu að bíða en að hann valdi skaða með ein­hverju móti. Þá og ekki fyrr en þá, eru völdin tekin af honum og hann vistaður í við­eig­andi úrræði.

Þá byrjar aftur sami víta­hring­ur­inn sem endar með betr­un­ar­vist í fang­elsi og neyslu þegar út í sam­fé­lagið er komið aftur. Síð­ast­liðna tvo sól­ar­hringa höfum við for­eldr­arnir mætt með örmagna son okkar á bráða­mót­töku SAk þar sem enga hjálp var að fá fyrir alvar­lega veikan fíkil. Næsta ráð var að fljúga með son­inn suður en flug­fé­lagið treysti sér ekki til að hafa hann ásamt for­eldri um borð þannig að tekið var á það ráð að keyra son­inn suður þrátt fyrir mjög slæmt ástand á honum. Þegar kom að því að mæta á bráða­mót­töku geðsviðs LSH tókst syni okkar að flýja af staðnum þar sem rang­hug­myndir og geð­veiki haml­aði sam­vinnu hans. Þar sem vel­ferð­ar­ráðu­neytið Mamma er úrræða­laust með öllu, fjöl­skyld­urnar ekki lengur í stakk búnar til að styðja elsku­legan son, bróður, mág og frænda, þá biðla ég til heil­brigðis-, vel­ferðar- og félags­mála­ráðu­neyt­is­ins um ásjá og aðstoð. Við getum ekki meira. Elsku vinir mér þætti vænt um ef þið mynduð deila þessum pósti þar sem að úrræði og aðgerðir vantar strax áður en sonur minn veldur skaða í sam­fé­lag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð