Níu þúsund Íslendingar hafa verið bólusettir með bóluefni AstraZeneca en svo virðist sem tengsl séu milli þess og blóðtappa. Aðallega heilbrigðisfólk hefur fengið þetta bóluefni. Bólusetning með þessu bóluefni hefur verið stöðvuð undir eins hér á landi.
RÚV greinir frá þessu og vitnar í orð Þórólfs á upplýsingafundi Almannavarna. „Í morgun bárust fréttir frá Evrópu um að blóðtappar hafi sést í kjölfar bólusetningu með AstraZeneca-bóluefninu í nokkrum löndum Evrópu, og þar af eitt dauðsfall í Danmörku og eitt í Austurríki. Á þeim grunni hefur bólusetning með efninu verið stöðvuð í Danmörku og hugsanlega í Noregi. Þessar upplýsingar komu rétt fyrir fundinn og í tilkynningu frá Lyfjastofnun Evrópu segir að það virðist ekkert benda til að hér sé um orsakasamhengi að ræða,“ segir Þórólfur.































Athugasemdir