Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Laddi er fyrirmynd dragdrottninga Íslands: „Hent út úr leiguíbúðum fyrir að vera hinsegin“

Laddi er fyrirmynd dragdrottninga Íslands: „Hent út úr leiguíbúðum fyrir að vera hinsegin“

Þrátt fyrir að Ísland hafi orð á sér fyrir að vera afar jákvætt í garð hinsegin fólks þá eru enn til staðar for­dómar, til að mynda hafa ung­lingar þurft að fara á fóst­ur­heim­ili þar sem for­eldrar þeirra vildu ekki eiga hinsegin barn.

Mannlíf ræddi við Gógó Starr, Starínu og Lolu von Heart, sem öll eru þekkt sem dragdrottn­ingar. Hvað hafa þau að segja við þessa ung­linga, sem hafa lít­inn sem eng­ann stuðn­ing?

Starína hvetur þau til að gef­ast ekki upp. „Þú átt eftir blómstra, ham­ingjan kemur ekki utan frá heldur innan frá.“ Og Gógó er sam­mála. „Ég veit að þetta er ótrú­lega klisju­kennt en á meðan maður er í þessum bak­ara­ofni sem skóla­kerfið er virkar allt svo ómögu­legt og erfitt en það er ekki allur heim­ur­inn og um leið og maður finnur sinn ein­stak­lings­bundna drif­kraft lag­ast allt. En þetta er klisja því þetta er satt.“

„Þú ert sólin en fjöl­skyldan getur verið rign­ingin. Og rign­ing og sól mynda saman regn­boga. Það er oft mjög erfitt að slíta sam­böndum og kallar á allan þinn styrk en þegar það tíma­bil er búið sést fal­legi regn­bog­inn.” segir Lóla.

Starína

Að koma út

Gógó kom út í fram­halds­skóla þegar hann var 16 ára en skildi hvorki til­finn­ing­arnar né orða­forð­ann.

„Orð eins og tví­kyn­hneigður og pankyn­hneigður voru hrein­lega ekki til og ég vissi ekki að annað væri til staðar. Ég hef alltaf verið hrifin af að vera í karakter og jafn­vel þegar ég var í leik­skóla fund­ust mér stelpu­hlut­verk alltaf skemmti­legri en stráka­hlut­verk“.

Starína kom út fyrir 19 árum. „Það má taka fram að þrátt fyrir miklu bjart­ari fram­tíð hinsegin fólks, þá var ástandið var mun verra áður en ég kom út.  Þá var enn í lagi að gera grín, lítið úr, ekki virða og beita hins­vegin fólk ofbeldi.  Við vorum 3. flokks fólk. Rétt­indin voru eng­inn miðað við það sem við sjáum í dag“.

„Sumt fólk var af ein­hverjum ástæðum hrætt við hinsegin fólk og fólki var jafn­vel hent út úr leigu­í­búðum fyrir að vera hinsegin“.

Lola kom út við lok fram­hald­s­kóla. Þá bjó hún í Reykja­vík, var í Borg­ar­holts­skóla og eign­að­iðst fyrsta afab-mak­ann („assigned female at birth“)

Elsa Lund fyrirmyndin

Starína segir að að Elsa Lund hans Ladda hafi verð  fyr­ir­myndin sín.

„Mér fannst magnað að sjá Ladda, og reyndar líka Örn Árnason, leika konur. Drag­húmor dró líka úr homma­stimpl­inum, um var að ræða grín enda vildi eng­inn vera stimpl­aður öfuguggi eða perri.”

Gógó fór í fyrsta skipti í drag á öðru ári í fram­halds­skóla og fann bara fyrir jákvæðni frá fjöl­skylduni enda var litið svo á að um væri að ræða meiri leik­list en lífs­stíl.

„Ég bjó á Akueyri og þar var bara ekk­ert að frétta 2011!  Jú, það var hópur sem hitt­ist, fólk sem kannski féll ekki inn í hið hefð­bundna sam­fé­lag. Ég vissi senni­lega innst inni að ég lað­að­ist mjög að dragi en vildi kannski ekki við­ur­kenna það í byrjun. Fyrst var þetta bundið við ösku­dag, hrekkja­vöku en annað slíkt en þegar ég datt, í raun óvart inni dragið, var ekki aftur snúið”.

„Ég flutti til Reykja­víkur og þar var auð­veld­ara að finna fólk í dragsen­unni sem var miklu auð­veld­ara en að finn­ast maður einn úti á landi. Þetta var svo sjúk­lega skemmti­legt að árið 2017 hætti ég alveg í hefð­bund­inni vinnu og fór að vinna alfarið sem dragdrottn­ing. Það hefur nú reyndar eðli­lega dreg­ist saman í Covid en því líkur von­andi bráð­lega!“

Vitum aldrei hvað býr að baki fallegu brosi

Lola segir vera búið að vera magnað að sjá fleiri koma út og þá fyrr á lífs­leið­inni. „Kyn­hneigð er lög­leg á Íslandi en sé litið nánar á stöð­una og hvernig þú skynjar sam­fé­lagið sér maður að það er í raun ekki alveg þannig. Það er aldrei að vita hvaða hugsun er að baki brosi eða fal­legri afmæl­is­gjöf”.

Starína tekur undir með Lolu. „Við heyrum ýmis­legt eins og ekki bjóða þessum með þér, klæddu þig niður, vertu rólegri”.

Starína og Lóla benda á að hinsegin fólk hafi lengi vel verið á flótta. „Fyrst var farið til Dan­merkur en síðan færð­ust flutn­ing­arnir til Reykja­víkur.

Upphaf íslensku dragsenunnar

Gógó segir upp­hafið hafi komið með Páli Óskari, Maríusi og Reyni á stöðum eins og Moulan Rouge, Nellys og Spothlight upp úr 1991. Fyrsta drag­keppni Íslands var haldin 1997 og þá með svip­uðu lagi og hin hefð­bundna feg­urð­ar­sam­keppni, keppt var í hverjum lands­hluta og síðan var aðal­keppnin í lokin.

RuPaul og dragið

Nú hefur RauPaul’s Drag Race verið í sjón­varp­inu í á annan ára­tug. Hefur það ekki hjálpað dragsen­unni, bæði hér og erlendis?

Öll hika þau við að svara. Gógó segir að vissu­lega sé búið að stimpla drag­sam­fé­lagið skemmti­legt en á móti komi að þætt­irnir hafi búið til alþjóð­legar stjörnur á meðan fólk þekki ekki sína svæð­is­bundnu drottn­ingar. En nú sé aftur á móti gullöld drags­ins og aldrei meira gaman að taka þátt.

Þau eru ekki heldur ekki miklir aðdá­endur RuPaul þar sem hann sé afar for­dóma­fullur gagn­vart trans­fólki og hafi ekki farið í laun með það fyrr en meira fór að bera á þvi.  Rupaul sé klár­lega trans­fó­bískur. „Kvenfólk í dragi eru ekki alvöru dragdrottn­ingar að hans mati” segir Lóla.

Homma­leik­húsið Hégómi hóf göngu sína árið 2004. Boðið var upp á mjög frjáls­lega drag­sýn­ingar með frum­sömdu efni og tón­list. ,,Svo héldum við tvö Kylie (Minogue) kvöld sem voru frá­bær. Þetta voru bara ég og mínir vinir og að Björgvin lék Headwig” segir Starína og hlær við end­ur­minn­ing­una.

Lola van Heart

Gógó er með þekkt­ustu dragdrottn­ingum Íslands og er með tit­il­inn. En dragið er ekki bara bund­iði við karl­menn. Konur eru líka í dragi. Kvenkyns dragdrottn­ingar eru einnig oft kall­aðar bio-drottn­ingar (stendur fyrir biological woman), afab-drottn­ingar (stendur fyrir “assigned female at birth”) eða hyper-drottn­ingar (sem vísar til þess að þær ýkja hina kven­legu ímynd).

Það var fyrst 2006 að konur kepptu hér á landi og er Lola von Heart með þeim alþekkt­ustu í fag­inu.

Drag­súgur hefur síðan verið haldin mán­að­ar­lega frá 2016, þó ekki í Covid, við miklar vin­sældir. Öll þrjú taka þau undir að á þessum tíma hafi dragsenan hrein­lega sprungið. Sýnt var í Iðnó og upp­seld með miklum fyr­ir­vara á hverju kvöldi. Eitt vin­sælasta kvöldið var 2019 þegar það var Dis­ney­þema sem sló algjör­lega í gegn.

En hvað eru margir virkir í dag­inu á Íslandi?  Gógó segir það vera 20-25 sem komi reglu­lega fram en helm­ingi fleiri sem komi fram sjaldnar.

Áreitið óþolandi

Lóla seg­ist finna fyrr miku áreiti af hendi karl­manna. ,,Ég á mitt per­sónu­lega speis eins og aðrir en fæ alltof of að heyra setn­ingar eins og ,,þú ert svo heit, mig langar að ríða þér, komdu inn á kló­sett“.  Konur geri þetta líka og þetta sé algjör­lega óþol­andi enda virð­ist vera ein­hvers konar skot­leyfi á hinsegin fólk.  Lóla hefur skrifað mjög áhuga­verða og skemmti­lega bók, Gervið, sem segir frá sjö konum sem hafa haft áhrif á drag­menn­ingu sam­tím­ans, 2015 -2020.

Draumurinn um framtíðina

Lóla seg­ist vilja burtu með for­dóma og ósóma og sjá jafn­rétti fyrir alla því allir eigi rétt á ham­ingju. Gógó segir að hið toxíska feðra­veldi sem ráðið hafi ríkjum þurfi að breyt­ast, það verði ekki aðeins hvítir kallar í jakka­fötum sem skil­greini normið. En þau eru sam­mála um að hlut­irnir séu að þok­ast í rétta átt þótt enn vanti til dæmis alvöru kyn­fræðslu í skól­ana.

Áhrifavaldar innan kvikmynda

Gógó, Starína og Lóló

Starína segir kvik­mynd­ina The Adventures of Priscilla, Queen of the Desert hafa haft mikil áhrif á sig en þar segi frá ólíkum mann­eskjum með eigin for­sögu og drauma, Björgvin Frans hafi líka verið frá­bær í Loft­kast­al­anum.

Lola segir kvik­mynd­ina Kinky Boots vera í miklu upp­á­haldi og Gógó vill meina að í fyrstu ser­íur RuPaul hafi haft mikil áhrif en hann sé mjög hrifin af kab­ar­ett og burlesque.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við