Í dag fer fram ársþing Körfuknattleikssambands Íslands. Þá kemur í ljós hvort samþykkt verði að stelpnalið og strákalið í körfubolta fái að spila í sama flokki á Íslandsmóti fram til 14 ára aldurs.
Tillaga þessi kom frá Ungmennafélagi Kjalnesinga, þar sem Brynjar Karl Sigurðsson, hinn margumræddi og umdeildi körfuboltaþjálfari starfar nú.
Brynjar Karl var rekinn frá ÍR, eftir að stúlknalið hans neitaði að taka við verðlaunum eftir sigur á Íslandsmóti, sökum þess að þeim hafði verið meinað að keppa við stráka. Stúlkurnar létu verðlaunapeninga sína falla í gólfið í mótmælaskyni.
Í kjölfar brottrekstursins stofnaði Brynjar körfuknattleiksliðið Aþenu sem leikur undir hatti UMFK.
Einn sigursælasti körfuknattleiksþjálfari landsins, Finnur Freyr Stefánsson tjáir sig um málið á Facebook síðu sinni í dag:
„Fyrir það fyrsta þá fagna ég því að Brynjar Karl, þjálfari UMFK/Aþenu, stígi fram á þessum vettvangi og beri fram þessa tillögu. Þá vona ég að allir þingfulltrúar verði þeirra gæfu aðnjótandi að samþykkja tillöguna.“
Finnur segist ekki sjá neinar neikvæðar afleiðingar þess að leyfa kynjablöndunina. Hann segir jafnframt: „ … og ef einhverjum dettur það nú í hug að það yrði svo niðurlægjandi fyrir stráka að tapa fyrir stelpum – þá vil ég bjóða viðkomandi vinsamlegast að koma sér út úr þeirri forneskjuhugsun að það sé einhver meiri skömm að tapa fyrir stelpum en strákum.“































Athugasemdir