„Það var að kvöldi 23. nóvember sem það er bankað á dyrnar hjá mér og sonur minn er sóttur af ákveðnum aðila. Hann fer með hann í 75 mínútna bíltúr þar sem hann verður fyrir frelsissviptingu, ofbeldi og morðhótunum. Honum er síðan skilað með leigubíl. Síðan þá hefur okkar martröð hafist, hún er búin að vera meira og minna linnulaus, með smá pásu á nýju ári. Hún er nú komin af stað af fullum krafti með morðhótunum, eignatjóni og það er búið að brjóta nálgunarbann, brjóta það tvöfalt, bæði gagnvart mér og syni mínum. Hann veigrar sér ekkert við það að fara alla leið.“
Þetta sagði Svala Lind Ægisdóttir í viðtali við Bítið í morgun. Mál hennar hefur vakið nokkra athygli eftir að hún lýsti ástandinu í stöðufærslu á Facebook í gær. Hún segist ráðþrota gagnvart þessum manni en líkt og svo oft áður þá er lítið gagn í lögreglunni. Hún segir rót málsins vera afbrýðisemi vegna stelpu.
„Þessi stúlka er að vinna á sama vinnustað og sonur minn, það þarf ekki meira en það til. Viðkomandi er fyrrverandi kærasti stúlku sem er að vinna með syni mínum. Hann bankar upp á bara eins og hver annar, maður er ekki að gera ráð fyrir því að fá glæpamann inn til sín. Svo ég kalla bara á son minn, sem kemur til dyra og það er bara þegjandi og hljóðalaust labbað út. Ég fæ þessa óþægilegu tilfinningu svo ég fer strax á stað að fylgjast með og hringja linnulaust í son minn meðan hann er í burtu. Ég þekkti ekki þennan aðila,“ sagði Svala.
Þá var hún spurð hvort þetta væru einu tengsl þeirra tveggja. „Þeir eiga þá sögu að þeir hafa æft á sömu líkamsræktarstöð. Þar með er það upptalið. Honum var sem sagt hótað að ef við myndum snúa okkur til lögreglu eða segja einhverjum frá þá myndum við öll láta lífið. Síðan hefjast bara endalaus símtöl, úr leyninúmeri og úr hans eigin síma, skilaboð, jafnvel í gegnum annað fólk, skilaboð í gegnum Instagram. Hótanir. Keyra fyrir utan heima hjá okkur með látum og annarlegu aksturslagi fram og til baka, í rólegu hverfi. Hann áreitir okkur á vinnustað, kemur á vinnustaðinn, þar sem hann sker á dekkin á bílnum mínum. Það var allt tekið upp á myndavél. Við höfum bara mikið af sönnunum um að hann hefur margítrekað brotið nálgunarbann.“
Hún segist hafa farið til lögreglunnar fyrst þann sama dag og martröðin byrjaði. Lögreglan hafi vitað af þessu öll. „Lögreglan er búin að standa sig ótrúlega vel í því að reyna að vernda okkur og passa upp á okkur. Gera það sem hún getur. En löggjafarvaldið gefur henni ekki heimild til að gera mikið meira en hún hefur gert. Ákærusvið lögreglunnar. Við höfum verið með nálgunarbannið í þrjá mánuði og hann er margoft búinn að brjóta það. Hann hefur kannski verið tekinn í tiltal en hann hefur ekkert verið látinn dúsa inni. Hann er ekki settur í síbrotagæslu þrátt fyrir ítrekuð brot.“
Heimir Karlsson þáttastjórnandi var þá hissa og taldi morðhótanirnar eiga að duga til þess að taka hann úr umferð. „Ég er bara svo heiðarlegur borgari að ég hélt að það væri nóg að nema mann á brot og frelsissvipta. Ég hélt að það væri akkúrat það sem þyrfti til þess að fá fólk á bak við lás og slá. Ég er í miklum samskiptum við lögregluna, á tímabili oft á dag,“ sagði Svala Lind.
Nýjasta atvikið var í gærmorgun að hennar sögn. „Þegar ég kem að bílnum mínum með brotnum rúðum,“ sagði Svala en myndir af því má sjá hér fyrir ofan. Viðtalið má heyra í heild sinni hér.































Athugasemdir