Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslenskar vefverslanir okra á neytendum – VERÐKÖNNUN – 5.003 prósenta álagning

Íslenskar vefverslanir okra á neytendum – VERÐKÖNNUN – 5.003 prósenta álagning

Álagning íslenskra vef­versl­ana er þús­und­föld þar sem svínað er á íslenskum neyt­endum hér á landi. Verð­könnun Mannlífs leiddi í ljós ríf­lega 5.000 pró­senta álagn­ingu þar sem hún er mest.

Mannlíf skoð­aði verð­lagn­ingu hjá sjö íslenskum vef­versl­unum, eftir fjöl­margar ábend­ingar frá neyt­endum. í ljós kom meðal ann­ars gríð­ar­leg álagn­ing sem nær ekki nokk­urri átt. Hér er verið að okra á neyt­endum svo ekki sé um villst. Álagn­ingin er á bil­inu 292 upp í 5.003 pró­sent.

Sið­lausir við­skipta­hættir

Það er engin nýlunda að seldar séu vörur af ýmsu tagi, sem keyptar eru  meðal ann­ars frá Kína. Bæði versl­anir og vef­versl­anir á Íslandi stunda slík við­skipti og ekk­ert að því. Vörur eru þá oft fengnar í gegnum síður eins og Ali­ex­press eða heild­versl­un­ina Alibaba, sem getur boðið hag­stæð­ara inn­kaupa­verð. Það sem er hins vegar að er það að álagn­ingin hjá mörgum sölu­að­ilum, er engan veg­inn í takt við inn­kaupa­verð, tolla og flutn­ings­kostnað. Auðvitað verður að leggja á vör­urnar það segir sig sjálft. Seljandi þarf að fá eitt­hvað fyrir sinn snúð, þannig ganga eðli­leg við­skipti fyrir sig. Þegar horft er upp á álagn­ingu eins og sýnt verður fram á hér á eftir, erum við farin að tala um sið­lausa við­skipta­hætti.

Reynt að leyna uppruna

Mannlíf kaf­aði ofan í málið og skoð­aði nokkur þess­arra fyr­ir­tækja, þau eru þó mun fleiri. Tekið skal fram að Mannlíf hefur fengið ótal ábend­ingar um öll fyr­ir­tækin. Líklegur upp­runi var­anna var rak­inn beint af íslensku vef­síð­unum. Það kom strax í ljós að síð­urnar reyndu að gera leit­ina af upp­runa var­anna erf­iða, í flestum til­fellum, til dæmis með því að ekki er hægt að afrita myndir og leita að þeim. Myndir og mynd­bönd af vör­unum eru oft teknar af erlendum vef­síðum sem bjóða upp á sömu vör­urnar. Vörurnar eiga það sam­eig­in­legt að koma upp­runa­lega frá Alibaba eða Ali­ex­press.

Sendingarkostnaður, tollur og önnur gjöld/kostnaður

Í dæm­unum hér að neðan ber að hafa í huga að ekki er reikn­aður inn í dæmið send­ing­ar­kostn­aður né tollur. Ástæðan er ein­fald­lega sú að mjög erfitt er að segja til um þann kostnað því það eru margar leiðir sem hægt er að fara í þeim efnum. Einnig skiptir máli hvaðan er verið að kaupa, hvort verið sé að panta frá heild­versl­un­inni Alibaba eða Ali­ex­press. Magnið skiptir líka alltaf máli og þeir samn­ingar sem við­kom­andi fyr­ir­tæki getur náð að gera við sinn birgja. Það skal þó tekið fram að ekki er um háar upp­hæðir að ræða sem leggj­ast á hvert stykki þegar upp er staðið. Tollur er svo auð­vitað nokkuð sem verður að greiða sem og virð­is­auka­skattur. Sumar versl­an­anna reka jafn­framt verslun sam­hliða vef­versl­un­inni, auð­vitað er þar auka kostn­aður líka.Þó að þessi gjöld og jafn­vel fleiri kostn­að­ar­liðir legg­ist ofan á vör­urnar sem hér verður fjallað um kom­ast þau ekki nálægt því að geta útskýrt álagn­ing­una.

Neytendur þurfa að vera meðvitaðir

Við­skipti sem þessi eru að aukast hér á landi svo ekki verður um villst. Það er því mik­il­vægt að neyt­endur séu með­vit­aðir um hvað ræðir. Sumir eru með­vit­aðir um þess háttar við­skipti, en langt því frá allir. Það eru fáir ef nokkrir, sem vilja borga marg­falt hærra verð ef unnt er að panta vör­una sjálfur að utan. Vefsíður eins og grein þessi fjallar um nýta mjög margar Hópkaup til þess að selja varn­ing sinn. Það skal þó tekið fram að Hópkaup er ein­ungis þjón­ustu­að­ili og teng­ist ekki efni grein­ar­innar á nokkurn hátt.

Það sem neyt­and­inn ætti að hafa í huga áður en slegið er til og keypt af net­síðu er eft­ir­far­andi:

  • Ber varan merki sem hægt er að fletta upp og skoða ?
  • Er upp­runi vör­unnar gef­inn upp ?
  • Eru upp­lýs­ingar um vör­una full­nægj­andi ?
  • Ef um snyrti­vörur eða annað slíkt er að ræða, eru ítar­legar inni­halds­lýs­ingar ?
  • Hve langan tíma tekur að fá vör­una eftir að hún er pöntuð ? Ætti ekki að taka nema fáeina daga.
  • Bretta­sala og forpöntun og er nokkuð sem ber að staldra við og athuga nánar.
  • Er greiðslu­leiðin örugg ?
  • Finndu vör­una ann­ars staðar og sjáðu hvort um eðli­lega álagn­ingu sé að ræða.
  • Réttindi þegar pantað er á net­inu ? Sjá grein um það hér.

Neyt­enda­sam­tökin eru með góðar upp­lýs­ingar um rétt­indi neyt­enda.

Allar upplýsingar í töflu og á myndum

Hér að neðan má sjá þær vef­síður sem skoð­aðar voru. Allar upp­lýs­ingar um verðið á íslensku vef­síð­unum, vör­urnar, vef­síður sem vör­urnar voru raktar til og þeirra verð. Taflan sýnir líka munin á verð­inu í pró­sentum. Hér er ekki í öllum til­fellum miðað við heild­sölu­verð (sem er mun lægra) heldur aðra vef­síðu sem selur nákvæm­lega sama hlut­inn með álagn­ingu. Því eru allar líkur á því að verð­mun­ur­inn sé meiri en fram kemur hér að neðan.

Nýkaup

Álagn­ingin hjá Nykaup.is á þessum vörum: 409%, 818%.

Klikkið á mynd­irnar hér að neðan til þess að sjá þær í fullri stærð.

Upp­runa­leg vef­síða
Upp­runa­leg vef­síða

BLAQ Ísland

Á síðu Blaq.is er meðal ann­ars að finna and­lits­hreinsi­busta sem er eft­ir­lík­ing af mjög vin­sælli hrein­sigræju á Íslandi í dag. Blaq lætur merkja sér vör­urnar, en það er vin­sæl og mjög auð­fengin þjón­usta sem hægt er að fá meðal ann­ars hjá Alibaba. Þannig geta fyr­ir­tæki látið varn­ing sinn líta út fyrir að vera þeirra merki eða hönnun. Þótt þetta sé ekki bannað þá er þetta á mjög gráu svæði.

Selja töflur með afar tak­mörk­uðum upp­lýs­ingum um inni­hald

Blaq býður til sölu mán­að­ar­skammt af kolla­gentöflum. Það stórfurðu­lega er að hvergi er hægt að sjá nákvæmar inni­halds­upp­lýs­ingar. Einungis er gefið upp að það séu kollagen úr fiski, Kalsíum og C vítamín í töfl­unum (ekk­ert um í hvaða magni eða hlut­föllum). Ekki er þetta traust­vekj­andi og í raun víta­vert, að vera að selja töflur/bæti­efni og gefa mjög dap­ur­legar upp­lýs­ingar um inni­halds­efni.

BlaQ hreinsi­burst­inn sem skoð­aður var er á kynn­ing­ar­verði og er reiknað með því verði í töfl­unni. Annars kostar hann 14.900 krónur. Álagning á fullu verði er því 292%.

Álagning Blaq.is á þessum vörum: 292% og 1583%.

Klikkið á mynd­irnar hér að neðan til þess að sjá þær í fullri stærð.

Upp­runa­leg vef­síða
Upp­runa­leg vef­síða

Hledslutaeki.is

Álagning Hledslutaeki.is á þessum vörum: 369% og 895%

Klikkið á mynd­irnar hér að neðan til þess að sjá þær í fullri stærð.

Upp­runa­leg vef­síða
Upp­runa­leg vef­síða

AKO.is

Mikið aug­lýstur lampi á sam­fé­lags­miðlum.

Álagning AKO.is: 284%

Klikkið á mynd­irnar hér að neðan til þess að sjá þær í fullri stærð.

Upp­runa­leg vef­síða

Snilld­ar­vörur

Álagning hjá Snilldar.is: 561%, 613% og 1360%

Klikkið á mynd­irnar hér að neðan til þess að sjá þær í fullri stærð.

Upp­runa­leg vef­síða
Upp­runa­leg vef­síða
Upp­runa­leg vef­síða

Daría

 Álagning hjá Daria.is: 344% og 355%

Klikkið á mynd­irnar hér að neðan til þess að sjá þær í fullri stærð.

Upp­runa­leg vef­síða
Upp­runa­leg vef­síða

Törutrix

Álagning hjá Torutrix.is: 1589% og 5003%

Klikkið á mynd­irnar hér að neðan til þess að sjá þær í fullri stærð.

Upp­runa­leg vef­síða
Upp­runa­leg vef­síða
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi