Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hinrik er sagður eltihrellir og Íslandsmeistari: „Hef alltaf verið svolítið „all in” í öllu“

Hinrik er sagður eltihrellir og Íslandsmeistari: „Hef alltaf verið svolítið „all in” í öllu“

Hinrik Ingi Ósk­ars­son er sagður elti­hrellir Svölu Lindar Ægis­dóttur og fjöl­skyldu hennar. Svo herma heim­ildir Mannlífs. Hann hefur ítrekað ratað í fjöl­miðla en hann var Íslands­meist­ari í Crossfit árið 2016 í stutta stund. Hann var sviptur þeim titli eftir að hann hótað tveimur starfs­mönnum lyfja­eft­ir­lits­ins en þeir hugð­ust taka hann í lyfja­próf. Árið 2019 var hann svo settur í bann eftir að frammi­stöðu­bæt­andi efni, ost­ar­ine og RAD-140, fund­ust í sýni hans eftir Reykja­vík CrossFit Championship.

Svala Lind opn­aði sig fyrst á Facebook um málið en þar sagð­ist hún ráða­laus gagn­vart elti­hrelli sem hefði kvalið hana í nokkra mán­uði. Hún greindi ekki frá nafni hans líkt og lesa má í eft­ir­far­andi texta: „XXXXXX var hér undir morg­unn fyrir UTAN heim­ilið mitt þrátt fyrir nálg­un­ar­bann. Hann framdi brot á nálg­un­ar­banni og eign­ar­spjöll á bílnum mínum. Ég er með upp­tökur af sím­tölum til mín með líf­láts­hót­unum í minn garð sem og minna nán­ustu. Sonur minn er líka búinn að fá líf­láts­hót­anir og ótelj­andi sím­töl frá XXXXXX.“

Svala lýsti svo dag­legu áreit í Bítinu á Bylgj­unni í gær en að hennar sögn hófst það vegna afbrýð­is­semi Hinrik í garð sonar hennar. Hann vinnur með fyrr­ver­andi kær­ustu Hinrik. „Síðan hefj­ast bara enda­laus sím­töl, úr leyni­núm­eri og úr hans eigin síma, skila­boð, jafn­vel í gegnum annað fólk, skila­boð í gegnum Instagram. Hótanir. Keyra fyrir utan heima hjá okkur með látum og ann­ar­legu akst­urs­lagi fram og til baka, í rólegu hverfi. Hann áreitir okkur á vinnu­stað, kemur á vinnu­stað­inn, þar sem hann sker á dekkin á bílnum mínum. Það var allt tekið upp á mynda­vél. Við höfum bara mikið af sönn­unum um að hann hefur marg­ít­rekað brotið nálg­un­ar­bann.“

Mannlíf gerði til­raun til að ná tali af Hinrik án árang­urs. Hinrik var hins vegar í drottn­ing­ar­við­tali hjá Trendnet árið 2016 þar sem hann lýsti sjálfum sér með þessum orðum: „Léttur, ljúfur og kátur!!“. Hann ætti það þó til að vera „all in“ í áhuga­málum sínum. Hann sagð­ist hafa fyrst orðið Íslands­meist­ari þegar hann var rétt ríf­lega tví­tugur:

„Já ég hef verið í íþróttum síðan ég man eftir mér – hef alltaf verið svo­lítið “all in” í öllu sem ég hef áhuga á og vil alltaf ná sem lengst í öllu sem ég tek mér fyrir hendur. Ég stund­aði fót­bolta með Breiða­blik frá 5 ára aldri þangað til ég var 19 ára og stund­aði Motorcross sam­hliða því frá 10 ára aldri og keppti í því í mörg ár og krækti mér í einn íslands­meist­ara titil árið 2011 í þeirri grein!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi