Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Andrea var hömlulaus ofæta sem fór í magaaðgerð: „Ég var alltaf að hugsa um að verða grönn“

Andrea var hömlulaus ofæta sem fór í magaaðgerð: „Ég var alltaf að hugsa um að verða grönn“
„Ég var með ein­hverja drauma um hvernig lífið yrði ef ég væri grönn. Svo var ég hins vegar algjör­lega hömlu­laus ofæta.“

„Matar­æðið hjá mér hefur aldrei verið sér­stak­lega slæmt en magnið hefur alltaf verið minn akki­les­ar­hæll; hvað ég borða mikið – ég hef engan sans fyrir því hvað er eðli­legur skammtur,“ segir Andrea Ævars­dóttir sem hefur glímt við mat­ar­fíkn í ára­tugi. Þyngst var hún 135 kíló. Hún fór í fyrra í maga­að­gerð og hefur síðan lést um 50 kíló.

Andrea Ævars­dóttir er Ólafs­firð­ingur.

„Ég átti dásam­lega æsku á Ólafs­firði. Ég á frá­bæra fjöl­skyldu sem hefur alltaf stutt mig í öllu sem mér hefur dottið í hug að brasa og alveg ofsa­lega góðar vin­konur sem eru bestu vin­konur mínar enn í dag.“

Andrea seg­ist hafa verið orðin læs fjög­urra ára og að hún hafi verið nörd.

„Ég var rosa­legur lestr­ar­hestur sem krakki og ég var búin að lesa hálft bóka­safnið þegar ég var komin í grunn­skóla. Bóka­safnið var mjög sér­stakt og þar var mikið af gömlum bókum og það mátti engu henda. Mér fannst þetta alltaf vera svo inni­leg stemmn­ing. Ég á mjög auð­velt með að taka upp bók og algjör­lega gleyma stað og stund. Bóka­safnið var í gamla lækn­is­bú­staðnum og það var svo kósí. Það var svo geggjað að geta hreiðrað um sig í ein­hverju horni og vera látin alger­lega í friði. Þar sat ég bara og las og svo tók ég með mér hrúgu af bókum heim. Bóka­safnið heima var opið tvisvar í viku, á þriðju­dögum og fimmtu­dögum, og þá daga sem var opið á sumrin var ég þar frá opnun til lok­unar. Þegar ég var búin að lesa allt sem mér fannst áhuga­vert, sem voru barna- og ung­linga­bæk­urnar, þá fór ég til Villu, sem var yfir bóka­safn­inu, og spurði hvað ég ætti að lesa. Og hún byrj­aði að rétta mér full­orð­ins­bækur; þá var ég kannski 12 eða 13 ára. Það end­aði á því að þegar ég var búin að lesa slatta af full­orð­ins­bókum þá bara byrj­aði ég á A og ég las alla A-hill­una. Svo fór ég í B og las alla B-hill­una.“

Hún hlær.

„Ég var 12 ára þegar ég ákvað að verða bóka­safns­fræð­ingur.“ Og Andrea er bóka­safns- og upp­lýs­inga­fræð­ingur í dag.

Hvað með upp­á­halds­bækur eða upp­á­halds­höf­unda?

„Ég hef alltaf haft rosa­lega gaman af glæpa­sögum. Ég hlæ stundum að sjálfri mér; ef það er eng­inn drep­inn þá hef ég ekk­ert gaman af því.“

Hvað með að skrifa bók sjálf? Að verða rit­höf­undur?

„Það er svo merki­legt að mig hefur aldrei langað til að verða rit­höf­undur. Það var bara ein­hvern veg­inn stemmn­ingin og umhverfið á bóka­safn­inu og að geta sökkt mér í ein­hvern ímynd­aðan heim sem höfð­aði svo mikið til mín.“

Ímynd­aður heimur. Andrea er spurð hvort hún hafi verið að flýja í ein­hvern heim út af ein­hverri ástæðu.

„Það eru rosa­legir fitu­for­dómar í sam­fé­lag­inu.“

„Ég var ekki íþróttakrakki. Ég fór á skíði af því að mér fannst það gaman og svo á sumrin var fót­bolti það eina sem var í boði íþrótta­lega séð. Og mér fannst hann ekki skemmti­legur. Þannig að yfir sum­arið þá var ég svo­lítið mikið í ein­hverjum svona ímynd­uðum heimi. Ég var líka senni­lega frekar ein­rænn krakki. Ég átti alveg vini en ég þurfti í raun og veru ekk­ert svo mik­inn félags­skap og það er þannig enn í dag. Ég á frá­bæran vina­hóp en mér hefur aldrei leiðst einni með sjálfri mér.“

„Á meðan flestir hefðu kannski borðað tvær sneiðar og jafn­vel þrjár þá var ég að borða hálft brauð; áður en ég vissi af var ég kannski búin að borða átta brauð­sneiðar.“

Tók verkjalyf gegn hungri

Andrea seg­ist hafa byrjað að fitna þegar hún var 15 ára.

„Ég byrj­aði að þyngj­ast þegar gelgjan fór að kikka inn. Ég er 1.67 m og ég var um 70 kíló þegar ég var 15 ára. Svo bara hægt og rólega pökk­uð­ust kílóin á mig í gegnum tíð­ina.“

Hún seg­ist ekki hafa verið mikið í sæt­indum og gosi heldur hafi ein­fald­lega borðað of mikið. „Þetta var ekki það að ég lægi í sæl­gæti. Ég var ekk­ert með það mikið af pen­ingum á milli hand­anna að ég hefði efni á því að vera hang­andi í sjopp­unni; kannski aðeins þegar við vorum komin í 10. bekk en þá fórum við oft í löngu frí­mín­út­unum í sjoppu og keyptum okkur franskar. Þá var ég örugg­lega að borða franskar á hverjum ein­asta degi allan þann vetur. Það er ekki megr­andi. Matar­æðið hjá mér hefur aldrei verið sér­stak­lega slæmt en magnið hefur alltaf verið minn akki­les­ar­hæll; hvað ég borða mikið – ég hef enga til­finn­ingu fyrir því hvað er eðli­legur skammtur. Þegar ég kom heim úr skól­anum þegar ég var 15 – 16 ára þá sett­ist ég niður og fékk mér kannski ristað brauð með rabar­bara­sultu. Á meðan flestir hefðu kannski borðað tvær sneiðar og jafn­vel þrjár þá var ég að borða hálft brauð; áður en ég vissi af var ég kannski búin að borða átta brauð­sneiðar.

„Maður var að drekka bjór á hverju ein­asta kvöldi og hann er sjúk­lega fit­andi.“

Ég hef spurt sjálfa mig að því hvort ég hafi verið að reyna að fylla upp í eitt­hvað. Ég var nátt­úr­lega ein­rænt barn. Og þó ég ætti vini þá var ég ein í marga daga að því leyti að hitta ekki aðra krakka. Ég vildi þá vera ein. En samt fann ég fyrir ein­mana­leika. Þannig að ég var kannski að fylla upp í ein­hvern ein­mana­leika með því að borða svona mikið. Svo er mat­ar­fíkn rosa­lega flókið fyr­ir­bæri. Það slökknar á ein­hverjum heila­stöðvum og frum­urnar í mag­anum sem eiga að meta það hvenær við erum orðin södd og senda það upp í heil­ann hætta bara að virka. Þær hætta að vinna vinn­una sína.“

„En svo þegar ég horfi til baka þá sé ég að ég var alltaf í rosa­lega miklu óör­yggi. Ég var rosa mikið í að þókn­ast fólki og hef alltaf verið svona „people ple­a­ser“. Mér leið alls ekki vel.“ Ef þú vilt fylgj­ast með Andreu og árangri hennar þá er húm með aðgang­inn andrea_wins_at_life á Instagram.

Andrea seg­ist ekki muna eftir því að neinn hafi bent henni á þetta fyrr en hún fór í fram­halds­skól­ann á Laugum.

„Ég tók fyrsta árið í fram­halds­skóla heima á Ólafs­firði og fór svo á Laugar þegar ég var 17 ára og þá fór ég eig­in­lega að heyra það í fyrsta skipti að ég væri feit. Þá var ég 83 kíló. Ég myndi ekki flokka það sem ein­elti en það var alveg verið að skjóta á mig. „Í alvör­unni, ætlar þú að borða þetta? „Ætlar þú að borða svona mikið?“ „Finnst þér að þú ættir að klára þetta?“ Svo heyrði maður líka út undan sér og það var verið að tala um þetta en ekki verið að segja þetta beint við mig. Ég frétti að ein­hver hefði til dæmis talað um að ég hefði fitnað síðan ég byrj­aði í skól­anum. Svo heyrði ég að ein­hver hafi talað um að það væri eig­in­lega ekki hægt að hafa mig með í íþróttum af því að ég væri svo lengi að hlaupa. Ég sagði aldrei neitt. Ég reyndi ein­hvern veg­inn að láta þetta allt stökkva af mér eins og vatn af gæs. Þetta særði mig og sett­ist algjör­lega á sál­ina. Þetta varð víta­hringur.

Ég upp­lifði að ég væri ekki að falla inn í eitt­hvað mót sem ætl­ast var til. Ofát er flokkað sem átrösk­un­ar­sjúk­dómur og þarna byrj­aði ég að þróa með mér óheil­brigt sam­band við mat. Ég fór að svelta mig til að þyngj­ast ekki.“

Hún sleppti því stundum að fara í mötu­neytið í skól­anum.

„Þetta er heima­vist­ar­skóli og maður þurfti ekk­ert að skrá sig í mat. Maður bara mætti í mat eða mætti ekki í mat. Og stundum fór ég meira að segja í mat, setti mat á diskinn, hrærði aðeins í honum og sagð­ist svo ekki vera svöng.

„Ég fór að taka verkja­töflur ef ég varð svöng til að finna ekki fyrir hungr­inu. Það er alveg ótrú­legt hvað tvær Paratabs slá á alla hung­ur­til­finn­ingu.“

Eitt af því sem ég tók upp á á þessum tíma er senni­lega það steiktasta sem ég hef gert tengt mat­ar­fíkn­inni minni. Ég fór að taka verkja­töflur ef ég varð svöng til að finna ekki fyrir hungr­inu. Það er alveg ótrú­legt hvað tvær Paratabs slá á alla hung­ur­til­finn­ingu. Stundum komu dagar þar sem ég borð­aði ekk­ert í einn eða tvo daga. Ég drakk þá bara vatn og bruddi Paratabs eins og töfl­urnar væru smartís. Svo nátt­úr­lega gat maður ekki gert það til lengdar þannig að þá sprakk ég á limm­inu og borð­aði þá óheyri­lega mikið í kjöl­farið. Það vissi eng­inn af þessu. Enginn. Ég var rosa klár að fela þetta.“

Andrea er spurð hvar hún hafi fengið Paratabs.

„Það var apó­tek á Laugum. Það var ekk­ert mál að kaupa Paratabs. Ég tók yfir­leitt fjórar til sex töflur á dag. Þetta byrj­aði rétt fyrir jóla­fríið á 2. ári, sem var árið 1994, og stóð alveg fram á vorið. Ég hef greini­lega maga úr stáli af því að töfl­urnar virt­ust ekki hafa haft nein áhrif á mag­ann eða melt­ing­una. Svo voru þetta ekki brjál­æð­is­lega löng tíma­bil. Þetta voru kannski tveir dagar í einu og svo borð­aði ég kannski rosa­lega mikið í 10 daga. Og svo svelti ég mig kannski í tvo daga og bruddi Paratabs á meðan.“

Andrea er spurð um and­lega líðan sína á þessum tíma.

„Ef þú hefðir spurt mig þá þá hefði ég sagt „geggjuð“. „Frábær.“ „Mér líður geð­veikt vel.“ En svo þegar ég horfi til baka þá sé ég að ég var alltaf í rosa­lega miklu óör­yggi. Ég var rosa mikið í að þókn­ast fólki og hef alltaf verið svona „people ple­a­ser“. Mér leið alls ekki vel. Og ég var að gera hluti sem ég segi ekki að ég sjái eftir í dag en ég hefði ekki gert þetta ef sjálfs­myndin hefði verið í lagi. Ég til dæmis svaf hjá strákum sem ég hafði engan áhuga á en ég gerði það af því að þeir höfðu áhuga á mér. Það var rosa sterk birt­ing­ar­mynd. Það myndi senni­lega vera sterkasta birt­ing­ar­myndin.“

„Ég er búin að fá verk­færið sem hjálpar lík­am­anum mínum og ég er búin að vera að fara til sál­fræð­ings af því að ég þarf nátt­úr­lega líka að vera með verk­færi sem stjórnar hausnum mínum.“

Hún er spurð hvað hún hafi hugsað með sér þegar hún var búin að sofa hjá þessum strákum.

„Þá sann­færði ég mig um að ég væri rosa sterk kona sem gæti sofið hjá þeim sem mig lang­aði til og ég þyrfti bara ekki að hafa neinar áhyggjur af þessu. En innra með mér fannst mér ég vera djöf­ull aum að geta ekki bara verið ánægð með sjálfa mig án þess að þurfa að fá við­ur­kenn­ingu ann­ars staðar frá. Og það tók alveg langan tíma að vinna úr því að þurfa ekki utan­að­kom­andi við­ur­kenn­ingu; að fá ekki við­ur­kenn­ingu frá öðrum til að vera sátt í eigin skinni. Það var löng bar­átta. Það var mér rosa­lega mik­il­vægt að fá utan­að­kom­andi við­ur­kenn­ingu. Ég byrj­aði að drekka þegar ég var 18 ára og gerði það í raun og veru til þess að passa inn í hóp­inn og til þess að bústa sjálfs­traustið mitt aðeins.“

Bjór er sjúklega fitandi

Andrea flutti til Englands eftir að hún hætti í fram­halds­skóla árið 1996 og lærði þar ensku og fór í hótel- og veit­inga­skóla.

„Í hvert skipti sem ég bæti á mig 3-400 grömmum þá hef ég áhyggjur af því að ég muni þyngj­ast aftur.“

„Ég grennt­ist tölu­vert úti og náði ein­hvern veg­inn stjórn á mat­ar­fíkn­inni minni á meðan ég bjó þar. Ég vann á hót­elum og kokk­arnir sáu um að elda ofan í okkur og svo fékk ég mat­inn skammt­aðan á disk. Þannig að ég var bæði að borða holl­ari mat sem ég fékk skammt­aðan og svo var ég að vinna eins og skepna. Hótelið var lengst uppi í sveit og það tók um hálf­tíma að ganga í næsta þorp þar sem var ein mat­vöru­verslun. Maður nennti ekki að fara þangað reglu­lega. Ég létt­ist örugg­lega um 10-15 kíló á meðan ég bjó í Englandi. Ég var svo fljót að falla í sama farið eftir að ég flutti aftur til Íslands árið 1997.

Ég flutti svo til Reykja­víkur árið 1999. Þá tók við dálítið djamm­tíma­bil í mínu lífi. Og áfengi er mjög fit­andi. Ég vann í Bónus á dag­inn og svo fór ég að vinna á bar á kvöldin og þegar búið var að loka barnum þá fékk ég mér bjór og ég fékk mér bjór á frí­kvöldum en þá hitt­ust starfs­menn sem voru í fríi það kvöldið á barnum. Maður var að drekka bjór á hverju ein­asta kvöldi og hann er sjúk­lega fit­andi.“

Andrea segir að hún hafi aldrei verið í hættu á að þróa með sér alkó­hól­isma.

„En þetta var samt alveg einn bjór á hverju ein­asta kvöldi og það er fljótt að telja. Svo voru þeir fleiri ef maður var í fríi en ég gat alveg sleppt því að drekka ef mig lang­aði til.“

Hún segir að hún hafi drukkið bjór á hverju kvöldi í um tvö ár.

„Þetta var svo mikið sós­í­alt en ef ég var ekki í vinn­unni og fór ekki á bar­inn sem ég var að vinna á á frí­vöktum þá var ég ekk­ert að drekka. Þetta var svo rosa mikið ein­hvern veg­inn í umhverf­inu mínu og eins og ég sagði áðan þá var ég alltaf að reyna að falla inn í hóp­inn þannig að maður var að fá sér bjór með vinnu­fé­lög­unum af því að allir hinir voru að fá sér bjór eftir vinnu. Vinnu­fé­lag­arnir voru nátt­úr­lega vinir manns. Mér fannst ég ekki drekka of mikið en ef ég horfi til baka – klár­lega. Alveg klár­lega. Kannski að maður hafi að vissu leyti skipt mat­ar­fíkn­inni út fyrir ein­hverja áfeng­is­fíkn. Ég hef hins vegar aldrei haft áhyggjur af drykkj­unni hjá mér af því að það hefur aldrei verið erfitt fyrir mig að hætta að drekka. Ég var líka svo­lítið mikið á djamm­inu á þessum tíma – fór á skemmti­staði að dansa og djamma. Þetta voru um tvö ár. Svo kynnt­ist ég fyrri eig­in­manni mínum árið 2000. Hann var í hljóm­sveit og það var svo­lítið djamm í kringum það en það fór aðeins að draga úr þessu og ástandið að róast á árunum 2002-3003.“

Lamaður skjaldkirtill

Andrea seg­ist hafa blásið út á þessum árum.

„Þegar við skildum árið 2004 þá var ég 135 kíló. Það er mesta þyngd sem ég hef nokkurn tím­ann náð. Það tengd­ist bjórnum og rosa óheil­brigðum lífs­stíl. Maðurinn sem ég var gift var hár og grannur og gat borðað hvað sem var þannig að við borð­uðum mikið rusl­fæði. Skyndi­bita. Og við pældum ekk­ert í heils­unni. Og á meðan hann brenndi öllu þessu rusli þá safn­að­ist þetta allt saman utan á mig.“

Andrea segir að hún hafi þá tekið þá ákvörðun að þetta væri ekki lífið sem hún vildi lifa.

„Næstu tvö ár fóru í mikla vinnu. Ég fór að hitta sál­fræð­ing eftir að við skildum og tók svo­lítið til í hausnum á mér. Ég var samt hvorki búin að átta mig á né við­ur­kenna fyrir sjálfri mér að ég væri mat­ar­fík­ill. Þannig að ég var aðal­lega bara að vinna í sárs­auk­anum sem tengd­ist skiln­að­inum. Svo fór ég að fara í rækt­ina og þá skipti ég svo­lítið út mat­ar­fíkn­inni fyrir rækt­ar­fíkn. Ég fór í rækt­ina áður en ég fór í skól­ann, en ég var þá í bóka­safns-og upp­lýs­inga­fræði við Háskóla Íslands, og eftir að ég var búin í skól­anum. Þannig að ég fór í rækt­ina tvsi­var á dag og tók þetta svo­lítið með trompi. Ég fór úr 135 kílóum niður í 74 kíló á árunum 2004-2007 en það var kannski ekki gert á brjál­æð­is­legan heil­brigðan hátt. Ég fór aftur í það að svo­lítið svelta mig þó ég væri ekki þarna aftur að treysta á verkja­töflur til að finna ekki fyrir hungri. Og ég borð­aði eins lítið og ég komst upp með og fór einmitt í rækt­ina tvisvar á dag sem ég held að sé heldur ekki alveg nógu hollt.“

Andrea kynnt­ist öðrum manni og varð ófrísk snemma árs 2007 og fædd­ist eldri sonur hennar í nóv­em­ber.

„Með­gangan var geggjuð og ég þyngd­ist um 12 kíló á með­göng­unni sem ljós­móð­irin var geð­veikt ánægð með. Ég fékk hins vegar lamaðan skjald­kirtil í kjöl­farið. Það fá þetta margar konur en þetta er oft ekki greint fyrr en seint og um síðir. Samkvæmt banda­rískum sam­tökum inn­kirtla­sér­fræð­inga þá fá 5% kvenna lamaðan skjald­kirtil í kjöl­far með­göngu.

Þetta hafði þau áhrif að ég varð mjög veik. Ég reyndi að vera með strák­inn minn á brjósti í sex vikur og við grenj­uðum bæði í sex vikur, hann af hungri en hann náði fæð­ing­ar­þyngd­inni sinni ekki fyrr en á 4. viku. Hann bara hor­að­ist og hor­að­ist og ég sat með hann í fang­inu og hann grét og ég grét. Þetta var ömur­legt. Skjald­kirtill­inn stýrir brun­anum í lík­am­anum og ef hann virkar ekki þá eru efna­skiptin svo hæg að maður fram­leiðir ekki mjólk. Þannig að ég sat með strák­inn minn og mér fannst ég vera algert „failure“ sem móðir þar sem barnið mitt væri að létt­ast og ég gerði mér nátt­úr­lega enga grein fyrir því að ég var ekki að fram­leiða neina mjólk. Þannig að ég gafst upp á 6. viku. Hann fór að fá þurr­mjólk úr pela og það er til marks um það hvað ég fram­leiddi litla mjólk að ég þurfti aldrei að fá þurrktöflur. Ég bara hætti með hann á brjósti einn dag­inn og that was it. Það var ekki dropi af mjólk í mér.“

„Skjald­kirtill­inn stýrir brun­anum í lík­am­anum og ef hann virkar ekki þá eru efna­skiptin svo hæg að maður fram­leiðir ekki mjólk.“

Andrea fór að þyngj­ast vegna lamaða skjald­kirtils­ins þar sem efna­skiptin í lík­am­anum urðu svo hæg. „Ég gekk á milli lækna frá því í des­em­ber, þegar ég byrj­aði að verða veik, og þangað til í maí 2008. Þetta var orðið það slæmt að ég gat ekki lyft hönd­unum upp til að hengja upp þvott. Og ég gat ekki greitt á mér hárið sjálf og þegar ég var verst þurfti barns­faðir minn að tann­bursta mig af því að ég gat ekki lyft hend­inni til að bursta í mér tenn­urnar.“

Andrea var greind með fæð­ing­ar­þung­lyndi og var sett á þung­lynd­is­lyf. Þau virk­uðu ekki. Þau breyttu engu. Hún talar um slen sem fylgi löm­uðum skjald­kirtli.

„Og ég var líka komin í það að ég var að refsa sjálfri mér fyrir það að hafa borðað eitt­hvað sem var „vondur“ matur með því að borða ekk­ert.“

„Ég var einn dag­inn að lesa texta á banda­rískri mömmu­grúppu og þar sé ég texta: I’m so freak­ing tired. Ég var þar. Ég hélt mér varla upp­réttri. Þetta var í febr­úar 2008. Ég átti erfitt með allt. Ég þurfti að leggja mig oft á dag.“

Andrea segir að á banda­rísku síð­unni hafi verið listi yfir atriði sem tengd­ust löm­uðum skjald­kirtli og sagt frá sam­tökum banda­rískra inn­kirtla­sér­færð­inga. „Það voru 32 atriði á þessum lista yfir fylgi­kvilla. Af þeim sagði ég „já„ við 30. Ég fór til heim­il­is­lækn­is­ins míns sem ég hafði farið oft til. Það var hann sem skrif­aði upp á þung­lynd­is­lyfin og hann hafði sent mig í blóðprufur en það hafði aldrei verið athugað með skjald­kirtil­inn. Ég bað hann um að lesa grein­ina sem hann gerði og þegar hann var búinn að því hringdi hann á Land­spít­al­ann og sagði að ég þyrfti að kom­ast í blóðprufu og hann þyrfti að fá nið­ur­stöð­urnar strax. Það er ótrú­legt hvað kerfið getur unnið hratt þegar þannig liggur við. Það leið sól­ar­hringur frá því ég fór í blóðpruf­una og þangað til ég var byrjuð á réttu lyfj­unum og ég fór að verða sjálfri mér lík þremur dögum síðar. Og þetta eru lyf sem ég mun þurfa að taka alla ævi.“

Andreu fór í kjöl­farið að líða betur and­lega. Hún varð svo aftur ófrísk og fædd­ist yngri sonur hennar í apríl árið 2009.

„Ég hélt mér þokka­lega stöðugri í þyngd á þessum tíma en var samt í kringum 100 kíló þegar hann fædd­ist. Ég var komin með snert af með­göngu­eitrun og svona alls kyns leið­indi en hann fædd­ist full­kom­lega heil­brigður og risa­stór. Það var þetta venju­lega sem fylgir með­göngu­eitrun – hækkun á próteini í þvagi, of hár blóð­þrýst­ingur og minna við­nám við sykri. Þetta var ekki eitt­hvað hræði­legt og ég þufti ekk­ert að vera inniliggj­andi. Ég þurfti bara að fara í fleiri mæðra­skoð­anir út af þessu.“

Andrea segir að hún hafi strögglað við það að vera mamma á þessum tíma.

„Það var allt erfitt. Ég fór með strák­ana í ung­barna­sund og það var krefj­andi. Ég hef reyndar aldrei látið ofþyngd­ina stoppa mig í neinu. Ég hef aldrei verið týpan segi segir „nei, ég ætla ekki að fara í sund, ég er allt of feit“. Ef mig langar að fara í sund þá fer ég í sund. En það verður allt svo miklu erf­ið­ara þegar maður er að burð­ast með svona mörg aukakíló. Allt í líf­inu verður erf­ið­ara. Það verður erf­ið­ara að labba upp stiga og hvað þá með tvö unga­börn í eft­ir­dragi. Það verður allt erfitt eins og að koma sér í skó og þurfa svo að koma börn­unum í skó. Ég var ekki mikið að leika við krakk­ana mína af því að ég hafði bara ekki ork­una í það. Ég fór með þeim út og fylgd­ist með þeim leika sér en ég var ekk­ert endi­lega að leika með þeim af því að ég var of þung á mér.“

Hömlulaus ofæta

Andrea segir að hún hafi rokkað á milli þess að vera um 100 kíló og upp í um 120 kíló næstu 13 árin. Og lífið breytt­ist aftur.

„Ég og barns­faðir minn skildum haustið 2011. Við erum rosa góðir vinir í dag. Hann er frá­bær maður en við vorum eig­in­lega vinir sem eign­uð­umst börn saman og erum að ala strák­ana upp í góðu sam­lyndi. Þeir eru reyndar óheppnir af því að við búum ekki í sama bæj­ar­fé­lagi þannig að þeir geta ekki verið hjá okkur viku og viku en þeir fara til pabba síns aðra hverja helgi. Þeim finnst vera frá­bært að fara þangað og sam­skiptin eru mjög góð.“

Andrea sat oft á æsku­ár­unum í kósí horn­inu á bóka­safn­inu í gamla lækn­is­bú­staðnum á Ólafs­firði og las og jú, 12 ára gömul fór hana að dreyma um að verða bóka­safns­fræð­ingur. Hún lét þann draum ræt­ast og útskrif­að­ist úr bóka­safns- og upp­lýs­inga­fræði við Háskóla Íslands eftir að hún og barns­faðir hennar slitu sam­vistum. Hún hefur síðan árið 2015 unnið á bóka­safn­inu í Grinda­vík.

Andrea segir að and­leg heilsa sín hafi oft verið slæm á þessum tíma.

„Ég held að ég sé alveg þokka­lega sterkur karakter en sjálfs­myndin hefur verið þannig að ég hef stundum ekki einu sinni treyst mér til að fara á tón­leika af því að ég hef bara ekk­ert átt til að vera í sem lét mig ekki líta út fyrir að vera tröllskessa. Ég hef stundum verið spennt fyrir að fara til dæmis í leik­hús, á tón­leika eða í ein­hver partí en svo þegar hefur dregið nær við­burð­inum þá hef ég fundið fyrir kvíða og ekki fund­ist ég eiga neitt til að fara í. Ég er komin með ofnæmi fyrir svörtum fötum og vil helst ekki ganga í svörtu. Ég var meira að segja svo­leiðis þegar ég var 120 kíló en það er erfitt fyrir fólk í ofþyngd að finna eitt­hvað annað en svart. Svo eru föt fyrir fólk í ofþyngd oft illa sniðin og þau eru oft dýr­ari þannig að það er ýmis­legt sem hefur áhrif á þetta svo sem að geta ekki farið út í búð og keypt brjósta­haldraa á 5000 krónur en þurfa að fara í ein­hverja sér­vöru­verslun og kaupa brjósta­hald­ara á 15.000 krónur því að venju­legar búðir eru ekki með mínar stærðir. Það er bara hund­leið­in­legt og hefur oft haft virki­lega slæm áhrif á and­lega líðan. Það liggur við að maður hafi rokkað upp og niður and­lega eftir því hvernig hafi gengið að finna á sig föt.“

Andreu dreymdi alltaf um að verða grönn.

„Mat­ar­fík­ill­inn minn er ennþá þarna. Ég þarf að vinna stans­laust í sjálfri mér til að halda sjálfri mér frá því að detta ekki aftur í gömul mynstur.“

„Ég var alltaf að hugsa um að verða grönn. Missa fimm kíló. Missa 10 kíló. Komast niður fyrir 100 kíló. Ég var alltaf að hugsa um það.“

Samt hélt hún áfram að borða meira en góðu hófi gengdi.

„Já, af því að maður gat ekki stoppað sig. Það vantar höml­urnar. Það vantar mót­tak­ar­ann sem tekur við seddu­horm­ón­inu þannig að maður hættir að finna seddu­til­fin­ingu og manni finnst maður alltaf vera pínu svangur. Svo var ég stans­laust að hugsa að þetta væri auð­veld­ara ef ég væri ekki svona þung. Ég var með ein­hverja drauma um hvernig lífið yrði ef ég væri grönn. Svo var ég hins vegar algjör­lega hömlu­laus ofæta. Þetta er ekki hægt að sam­rýma. Það er ekki hægt að vera hömlu­laus ofæta og grönn.“

Hún tal­aði um kvíða. Segist þó ekki hafa fundið fyrir eig­in­legum kvíða í gegnum tíð­ina heldur hafi hann tengst sjálfs­mynd­inni.

„Kvíðinn minnkar eftir því sem ég minnka. Ég tók til dæmis í tvö ár þátt í Útsvari fyrir hönd Grinda­víkur. Ég var allt of þung og í sjón­varp­inu en lét það ekki stoppa mig. Kvíðinn var þó meiri en ella þar sem ég var í þyngri kant­inum.“

Fimm göt

Að minnka.

„Það eru örugg­lega 10 ár síðan ég hugsað í fyrsta skipti um að fara í maga­að­gerð. Svo hugs­aði ég oft með mér að þetta væri svo auð­veld lausn og ég væri svo mik­ill aum­ingi ef ég tæki ákvörðun um að fara í maga­að­gerð. Mér fannst ég ekki vera nógu dug­leg við að ná tökum á þessu sjálf þannig að ég humm­aði þetta fram af mér í öll þessi ár.

„Þetta var orðið það slæmt að ég gat ekki lyft hönd­unum upp til að hengja upp þvott. Og ég gat ekki greitt á mér hárið sjálf og þegar ég var verst þurfti barns­faðir minn að tann­bursta mig af því að ég gat ekki lyft hend­inni til að bursta í mér tenn­urnar.“

Ég fór í jóga­kenn­ara­nám árið 2019 og þar var meðal ann­ars rætt um lífs­við­horf sem maður er búinn að mynda sér eins og að ég trúi því að feitt fólk sé latt. Ég trúi því að aðrir haldi að feitt fólk sé latt.“

Andrea tók ákvörðun. Hún ákvað að fara í maga­að­gerð í Tallinn í Eist­landi.

„Svona aðgerð kostar hér heima um 1.200.000 krónur en þar um 800.000 krónur. Þetta kost­aði samt ógeðs­lega mik­inn pen­ing þar og ég átti ekk­ert fyrir þessu. Það eru ekki margir sem eiga 800.000 krónur inni á spari­bauknum en ég spar­aði mér 400.000 krónur með því að fara til Tallinn.“

Fjórar konur héldu til Tallinn í byrjun árs 2020 og var hjúkr­un­ar­fræð­ingur með í för.

„Þegar við skildum árið 2004 þá var ég 135 kíló. Það er mesta þyngd sem ég hef nokkurn tím­ann náð. Það tengd­ist bjórnum og rosa óheil­brigðum lífs­stíl.“

„Við fengum fárán­lega góða þjón­ustu. Íslenski hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn hugs­aði um okkur frá a til ö. Ég held ég gæti verið fyr­ir­mynd­ar­dæmi um hvernig svona aðgerð getur heppn­ast vel. Það er rosa nei­kvætt umtal um svona aðgerðir og um hvað hefur farið úrskeiðis.“

Það voru gerð fimm föt. Fimm göt sem breyttu öllu.

Þetta var míní­hjá­veita.

„Þetta var eins og venju­leg hjá­veitu­að­gerð nema að það var tekið minna í burtu af smá­þörm­unum og þetta er ólíkt maga­erminni að því leyt­inu til að með erminni er gerður ban­ani og restin af mag­anum er fjar­lægður. Restin af mag­anum mínum er ennþá inni í mér en hann er bara ekki tengdur við hólfið sem mat­ur­inn fer ofan í. Hann er tengdur við smá­þarmana þannig að hann er að gefa frá sér maga­sýrur. Það er hægt að velja um þrjár mis­mun­andi aðgerðir og í raun og veru er maga­ermin minnsta inn­gripið en hún er óaft­ur­kræf. Míní­hjá­veita og venju­leg hjá­veita eru stærri aðgerðir en það er til dæmis hægt að tengja gamla mag­ann aftur við nýja magnan hjá mér ef þess þyrfti.“

Götin fimm voru saumuð og í rúm­inu lá Andrea Ævars­dóttir steinsof­andi.

Og hún svaf í um sól­ar­hring.

„Það var ekki fræði­legur mögu­leiki að vekja mig eftir aðgerð­ina og það var reglu­lega sprautað í mig blóð­þynn­ing­ar­lyfjum og verkja­lyfjum.

Þegar ég vakn­aði var það fyrsta sem ég hugs­aði „hvað er ég búin að gera?“ Þetta var pínu áfall. Hvað er ég búin að gera við mig? Ég er búin að fara í stóra aðgerð og get ekk­ert borðað. Fuck.

Það var vel hugsað um okkur á spít­al­anum þar sem við vorum í tvo sól­ar­hringa. Svo vorum við á sjúkra­hót­eli í einn sól­ar­hring og fengum við Actimel að drekka; það er svipað og LGG+. Ein slík flaska var hádegsi­mat­ur­inn og maður var pakksaddur. Það var steikt. Maður þurfti að drekka þetta í pínu­litlum sopum. Og ég var pakksödd.“

Hún hlær.

„Svo flugum við heim á degi fjögur og ég var komin í vinnu hálfum mán­uði síðar.“

„Ég held ég gæti verið fyr­ir­mynd­ar­dæmi um hvernig svona aðgerð getur heppn­ast vel.“

Andrea var á fljót­andi fæði í 12 daga eftir aðgerð­ina.

„Svo tóku við um tvær vikur þar sem var meira maukað. Þá var maður að stappa sér fisk og kart­öflur. Það var allt stappað í drasl. Hakk og kart­öflumús. Svo eftir fyrsta mán­uð­inn var ég farin að borða flest allt. Ég get eig­in­lega ekki borðað brauð því það fer ekki vel í mig. En allt annað virð­ist ég geta borðað.“

Skammt­arnir eru litlir og á þessu rúma ári hefur Andrea lést um 50 kíló.

„Mat­ar­fík­ill­inn minn er ennþá þarna. Ég þarf að vinna stans­laust í sjálfri mér til að halda sjálfri mér frá því að detta ekki aftur í gömul mynstur. Ég fór samt ekki í þessa aðgerð til að vera í megrun það sem eftir er ævinnar. Ég fór í þessa aðgerð til að ná stjórn á stjórn­leys­inu. En ég verð samt að vera með­vituð um hvað ég borða. Ég er svo heppin að brauð fer illa í mig þannig að ég er ekki að setj­ast niður og borða átta brauð­sneiðar plús það að þær myndu aldrei kom­ast ofan í mig. Ég hef náð að borða eina ristaða brauð­sneið en mér varð illt í mag­anum af henni.“

XXL – Small

Maginn getur stækkað eftir svona aðgerð og segir Andrea að það sé fullt af fólki sem fitni aftur eftir maga­að­gerðir.

„Ég er búin að fá verk­færið sem hjálpar lík­am­anum mínum og ég er búin að vera að fara til sál­fræð­ings af því að ég þarf nátt­úr­lega líka að vera með verk­færi sem stjórnar hausnum mínum.“

Andrea var í sam­bandi í nokkur ár og skildi í hitti­fyrra og segir hún þennan tíma hafa tekið á.

Hún seg­ist hafa farið til sál­fræð­ings í kjöl­far skiln­að­ar­ins.

„Ég fór fyrst í með­ferð til að vinna úr áföllum en eftir aðgerð­ina var meira farið í að vinna með sjálfs­mat mitt af því að sterkt sjálfs­mat gefur manni meiri vilja­styrk. Við fórum til að mynda að vinna með rang­hug­myndir tengdar mat og erum svo­lítið í þeirri vinnu. Ég er núna á alveg þokka­lega góðum stað varð­andi þessar rang­hug­myndir gagn­vart mat en áður fyrr skipti ég mat svo­lítið í „góðan“ og „vondan“ – „góður“ matur var til dæmis græn­meti og mag­urt kjöt en „vondur“ matur voru til dæmis kart­öflur, hrís­grjón, brauð, sæl­gæti og pasta. Og ég fékk sam­visku­bit ef ég borð­aði „vondan“ mat. Við erum búin að vinna svo­lítið í þessu. Það er allt í lagi að fá sér hrís­grjón með matnum; ég er ekki að gera neitt rangt. Ég er ekki að brjóta af mér þó ég fái mér hrís­grjón með matnum því ég var pínu komin þangað. Og ég var líka komin í það að ég var að refsa sjálfri mér fyrir það að hafa borðað eitt­hvað sem var „vondur“ matur með því að borða ekk­ert.“

„Ég held að ég sé alveg þokka­lega sterkur karakter en sjálfs­myndin hefur verið þannig að ég hef stundum ekki einu sinni treyst mér til að fara á tón­leika af því að ég hef bara ekk­ert átt til að vera í sem lét mig ekki líta út fyrir að vera tröllskessa.“

Þyngdin er alltaf á bak við eyrað.

Og Andrea æfir.

„Ég hleyp, ég lyfti, ég stunda jóga og ég æfi sund – þetta eru allt hlutir sem ég gat eig­in­lega ekki gert fyrir ári síðan, sér­stak­lega ekki að hlaupa. Ég gat ekk­ert hlaupið fyrir ári síðan. Nú er ég búin að hlaupa hálf­mara­þon.“

Hún tekur þetta með trompi.

„Ég fer í rækt­ina þrjá til fimm daga í viku. Það er bara eðli­legt magn.“

Hún hlær.

„Ég fer á sun­dæf­ingar tvisvar í viku og geri jóga þegar mig langar til þess. Ég fer út að hlaupa kannski einu sinni í viku. Og svo reyni ég að lyfta kannski einu sinni í viku. Það eru engar öfgar í dag.“

Hún segir að sér líði ótrú­lega vel and­lega.

„Andleg líðan er stöðug vinna. Ég er sátt og er að gera fullt af góðum og skemmti­legum hlutum. Mér líður vel í eigin skinni.“

Hún hlær.

„Það er fullt af skinni.“

Húð.

„Það er fullt af lausu skinni. Ég geri kannski eitt­hvað við því síðar en ég er ekki með það á heil­anum.“

Sjálfs­traustið er klár­lega komið.

Andrea er í fal­legri, skærgulri peysu sem er merkt ADIDAS. Með stórum, hvítum stöfum.

„Ég elska að vera í litum sem gera mig glaða.“

Hún notar föt númer 12. Small.

„Ég var komin upp í 26. XXL.“

Það munar miklu.

„Ég kaupi ekki oft föt. Ég er ekki fatafrík. Þessi peysa er reyndar ný. Mér finnst hún geggjuð. Svo er ég búin að fara svo hratt á milli stærða síð­asta árið að ég er ennþá pínu nervös að kaupa mér föt ef ég skyldi létt­ast meira.“

Andrea er spurð hvort hún vilji létt­ast meira.

„Ég veit það ekki. Ég er svo­lítið að reyna að vera með­vituð um hvað ég borða. Vera með­vituð um skammta­stærð­irnar og leyfa svo­lítið bara lík­am­anum að stýra þyngd­inni.“

Hún við­ur­kennir að hún hafi áhyggjur af því að þyngj­ast.

„Í hvert skipti sem ég bæti á mig 3-400 grömmum þá hef ég áhyggjur af því að ég muni þyngj­ast aftur. Það er bara svo­leiðis. Þetta er eitt­hvað sem ég held að ég þurfi að vinna í alla ævi eftir svona aðgerð. Ég eyddi ekki 800.000 krónum í það að verða aftur feit. Ég er ekki búin að ganga í gegnum það að fara í aðgerð sem breytir mér að innan til þess að fara aftur í sama farið.“

Fordómar

„Í alvör­unni, ætlar þú að borða þetta? „Ætlar þú að borða svona mikið?“ „Finnst þér að þú ættir að klára þetta?“

Andrea er spurð um for­dóma.

„Það eru rosa­legir fitu­for­dómar í sam­fé­lag­inu.

Þegar ég var 16 ára fór ég inn í tísku­vöru­verslun með vin­konum mínum sem voru allar grannar. Ég var um 80 kíló. Afgreiðslu­konan mældi mig út og sagði svo að þarna feng­ist ekk­ert í minni stærð. Ég var ekki einu sinni búin að spyrja hvort það væri eitt­hvað til á mig og ég var ekki einu sinni að fara að versla. Þetta hafði ömur­leg áhrif á mig og ég hrökkl­að­ist út úr búð­inni og beið eftir því að vin­konur mínar kæmu út. Ég hef ekki síðan farið inn í þessa verslun.

Þegar ég var laus og liðug og áður en ég átti börnin var ég ein­hvern tím­ann á leið­inni heim af djamm­inu með rosa sætum stráki. Vinur hans spurði hvort hann ætl­aði í alvör­unni heim með mér. Hann sagði þetta með svip. Við fórum heim og þetta komment hékk svo­lítið yfir sam­skiptum okkar þetta kvöld. Við áttum síðan eina nótt saman og hann tal­aði aldrei við mig aftur. Ég held að það hefði eitt­hvað getað orðið úr þessu ef vinur hans hefði ekki verið með þetta komment.

Ég var fyrir nokkrum árum að skemmta mér með þáver­andi mann­inum mínum og vin­konu okkar og vini. Við vorum öll með slatta af aukakílóum og vorum að ganga niður stig­ann á skemmti­stað þegar ungur maður, sem var með félögum sínum, spurði hvort það hafi verið Biggest Loser-fundur uppi. Vinur okkar var fljótur að hugsa að sagði að svo hafi verið og að það væri verið að bíða eftir þeim sem spurði og félögum hans.“

Andrea hlær.

„Mér finnst þetta vera frá­bært svar. En þetta er svo­lítið við­horfið sem maður hefur fengið í sam­fé­lag­inu. Svo var ég ein­hvern tím­ann að fara í sund og þá gekk ég fram hjá strákum sem voru kannski 16 ára og þá sagði einn af þeim: „Hva, var þetta jarð­skjálfti?“ Hvað átti ég sem full­orðin mann­eskja að segja við hann? Ég lét sem ég hafi ekki heyrt þetta.

Full­orðnir eru oft­ast nær betri í að fela for­dómana. En ég hef alveg fengið „look“ þegar fólk er að horfa í körf­una mína í Bónus. Það horfir ofan í körf­una og svo á mig. „Hm, það er aug­ljóst af hverju þú ert of feit.“ Svo er líka málið – er fólk að hugsa það eða er mín eigin skömm yfir að vera of feit að búa til að fólk sé að hugsa þetta? Það er líka oft málið að maður hefur svo oft miklar áhyggjur af því að fólk sé að dæma mann að maður er búinn að ákveða að það séu allir að dæma mann. Fólk sem er í yfir­þyngd er sjálfu sér oft verst af því að við erum alltaf að hugsa um að eitt­hvað ger­ist eða hafi gerst af því að við séum of feit. Við búum til skoð­anir fólks á okkur í hausnum á okkur.

Það sem ég hef lært fremst af öllu er að þessir for­dómar sem ég var með gagn­vart sjálfri mér voru svo óþarfir. Ég var alveg góð mann­eskja og ég var dug­leg þó ég væri í yfir­þyngd en upp­lifunin mín var alltaf að ég væri aðeins minna virði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð