Gamanið fór að kárna meðal þeirra sem horfðu á gosið í Geldingadölum þegar veggur í hraungígnum Gemlingi, sem rís í grennd við Stóra-Hrút, hrundi í gær. Á myndbandi sem má sjá hér að neðan má sjá fólk reyna flýja í geðshræringu og heyra má öskur og neyðaróp
Ein kona öskrar „oh my god“ og sumir hlægja taugaveikluðum hlátri þegar það áttar sig á að það er ekki í lífshættu.
Sem betur fer sluppu allir en myndbandið sýnir vel hve hratt aðstæður geta breyst við gosið. Auðvelt er að ímynda sér stórslys við þessar aðstæður. Svo er það háskinn við að komast á staðinn í misjöfnum veðrum. Varnaðarorð lögreglunnar eru því ekki úr lausu lofti gripin.































Athugasemdir