Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mæðgur segjast fangar á Foss-hótel: „Og svo streymdu niður tár, tár og tár“

Mæðgur segjast fangar á Foss-hótel: „Og svo streymdu niður tár, tár og tár“

Þórdís Björk Sig­ur­þórs­dóttir, bar­áttu­kona gegn sótt­varn­ar­að­gerðum, birtir á bloggi sínu frá­sögn Brönku Aleksand­ars­dóttir sem er nú í sótt­kví á Foss hótel. Branka segir ástandið skelfi­legt og þær mæðgur séu miður sín. Þær voru að koma úr jarða­för móður Brönku í Serbíu og voru skikk­aðar í sótt­kví við heim­komu.

„Þann 26. mars fór ég til Serbíu með dóttur minni til að jarða móður mína. Ég þurfti að fara, burt séð frá Covid. Ég er eina barnið hennar. Þegar við fórum utan höfðu núver­andi reglur ekki tekið gildi. Allt sem þurfti til að kom­ast til Serbíu var nei­kvætt PCR próf, engar tak­mark­anir, sótt­kví eða ein­angrun. Auðvitað eru ein­hverjar reglur þar líka og útförin fór fram með nán­ustu fjöl­skyldu okkar,“ segir Branka.

Þær mæðgur fóru í gegnum Pólland á leið heim til Íslands. „Eftir fimm erf­iða daga í Serbíu komum við heim til Íslands, eða það héldum við. Við gátum varla beðið eftir að hvíla okkur, bæði and­lega og lík­am­lega. Ég bjóst við sótt­kví heima og var til­búin í það. Heim­ferðin frá Serbíu var í gegnum Pólland. Til að koma til baka þurftum við að fara í annað PCR próf, sem var nei­kvætt. Þegar við lentum á Kefla­vík­ur­flug­velli var fyr­ir­komu­lagið allt annað en vana­legt. Við fórum í annað PCR test og síðan í vega­bréfa­eft­ir­litið, þar sem verð­irnir settu rauðan pappír í vega­bréfið okkar. Eftir stutta yfir­heyrslu og sögðu okkur að sýna lög­regl­unni það. Ég var svo­lítið hissa á því hvað lög­reglan ætti að gera,“ segir Branka.

Branka segir að þær mæðgur hafi báðar verið í áfalli. „Við fórum að útgang­inum og það var sjokk; örvar, rými girt með af með seg­ul­böndum, lög­regla og starfs­menn klæddir Covid – bún­aði. Þeir vís­uðu okkur hvert við ættum að fara, leiðin lá beint að rút­unni. Þegar við fórum út hélt ég að þetta væri rúta sem færi á  BSÍ en það var ekki þannig. Alla leið­ina keyrðu tveir lög­reglu­menn á mót­or­hjólum á undan okkur. Þeir keyrðu okkur að Foss hót­el­inu. Mér leið ekki vel þegar ég sá það. Fyrir framan hót­elið voru held ég hvorki meira né minna en tíu lög­reglu­menn og margir starfs­menn sem fylgdu okkur inn á hót­elið. Bæði dóttir mín og ég vorum í áfalli. Hvað er að ger­ast? Eins og í bíó­mynd, eins og við værum stór­glæpa­menn. Í lyft­unni máttum við ekki ýta sjálfar á hnapp­inn fyrir 9. hæð­ina.  Þeir gerðu það fyrir okkur. Ég var skjálf­andi og trúði þessu ekki. Og dyr­unum að her­berg­inu okkar var lokað um klukkan 2 um nótt­ina,“ lýsir Branka.

Fyrstu við­brögð þeirra voru að þetta hljóti að vera ein­hver mis­tök. „Við stóðum þarna og litum á hvor aðra, lögðum ekki tösk­urnar niður strax. ,,Þetta hljóta að vera ein­hver mis­tök“ hugs­aði ég. Við trúðum þessu ekki. Og svo streymdu niður tár, tár og tár allt til morg­uns. Við fórum á fætur um átta leytið. Okkur var kalt. Við vorum ekki með hlý föt, við fórum til Serbíu með léttan fatnað. Við vorum ekki einu sinni svangar. Við vorum með­vit­aðar um að vera lok­aðar inni.“

Hún segir til­finn­ing­arnar hrann­ast upp á hót­el­inu. „ Við fengum nei­kvæða nið­ur­stöðu úr PCR próf­unum. Ég fann núm­erið hjá Rauða kross­inn á net­inu. Ég hringdi í þá og bað um leyfi til að fara heim. Við búum bara tvær saman heima, ég og dóttir mín og erum þar af leið­andi ekki að setja aðra í hættu. Starfs­maður Rauða Krossins segir mér að hringja í hót­el­starfs­menn­ina. Ég hringdi en svarið var, nei! Eftir smá tíma hringi ég aftur til að spyrja hvort við mættu fara aðeins út til að fá ferskt loft og aftur er svarið, nei!. Okkur líður hræði­lega. Lokaðar inni, eng­inn réttur til að fá að fara heim og eng­inn réttur til að anda að sér fersku lofti. Til­finn­ing­arnar hrann­ast upp, þær til­finn­ingar sem við komum með okkur eftir jarð­ar­för móður okkar og þær sem við erum að upp­lifa núna. Dóttir mín vill ekki borða, ég reyni að vera sterk og ég reyni að sýna henni þann styrk sem hún þar, en ég er mátt­laus.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina