Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

16 staðreyndir um mál Ásthildar Lóu

Hvað er staðfest og hvað ekki?

Ásthildur Lóa er ekki lengur ráðherra
Ást­hildur Lóa er ekki lengur ráð­herra Verður áfram þing­maður Mynd: RÚV / Skjáskot

Þótt megin­atriðin hafi verið staðfest í umræðu um samband Ásthildar Lóu Þórs­dóttur, fráfar­andi mennta- og barnamála­ráðherra, eru dæmi um villandi fram­setningu eða vafasamar full­yrðingar sem varða sum lykil­atriðin. Þau eru hvort athæfi Ásthildar Lóu hafi verið hugsanlegt lögbrot eða ekki.

Um annað en stað­reyndir gildir mismun­andi gildismat fólks. Það hvort eða hversu alvarlegt brot á óformlegum reglum samfélagsins samband 22 ára konu er við 16 ára pilt er undirorpið almennu gildis­mati og mati á sérstæðu, flóknu tilfelli.

Eftir­farandi er hins vegar yfirferð yfir helstu rök og sannanlegar stað­reyndir málsins.

1. Hann var ekki barn í skilningi laga

Í fyrstu frétt Ríkis­útvarpsins um málið var vitnað í lög um að „einstaklingar yngri en átján ára teljast börn, í skilningi laganna“. Þessi lög eiga ekki við tilfellið.

Sjálfræðis­aldur var hækkaður úr 16 árum í 18 árið 1997. Barnið fæddist árið 1990.

2. Hann var tæplega 17 ára faðir

Þegar Ásthildur Lóa fæddi son sinn, var barns­faðirinn, Eiríkur Ásmundsson, einum og hálfum mánuði frá því að vera 17 ára gamall. Þá var Ásthildur Lóa 23 ára og sjö mánaða. Aldurs­munur þeirra var tæplega sjö ár.

3. Þetta varðaði ekki fangelsisdóm

Í upphaflegri frétt Ríkis­útvarpsins um málið er ýjað að því að athæfi Ásthildar Lóu hafi verið lögbrot. „Þetta er þó ekki algilt því óheimilt er að hafa samræði við manneskju undir 18 ára ef viðkomandi er til dæmis kennari hennar eða leið­beinandi. Þá er líka óheimilt að hafa samræði við manneskju ef hún er undir 18, er háður viðkomandi fjárhags­lega, í atvinnu sinni, eða sem skjólstæðingur í trúnaðar­sambandi. Þetta getur varðað allt að þriggja ára fangelsi,“ sagði í fréttinni.

Þar sem ósannað er að Ásthildur Lóa hafi verið leið­beinandi, og gengur gegn frásögn fyrr­verandi stjórn­anda trúfélagsins Trú og líf, er að lágmarki vafasamt að tengja hana við lögbrot. Stjórn­andinn hefur þó tekið fram að hann hafi verið hættur í hópnum árið 1990.

Pilturinn var 16 ára gamall þegar getnaður átti sér stað.

Samræðis­aldur var á þessum tíma 14 ár.

4. Tilkynnandinn vildi koma Ásthildi úr embætti

„Ég vil að hún stígi til hliðar og þá mun ég ekki ræða þetta frekar,“ sagði Ólöf Björns­dóttir í póstinum til forsætis­ráðuneytisins föstu­daginn 14. mars kl. 10.56.

Ást­hildur Lóa árið 1994

5. Fjölmiðlar eða barnsfaðirinn eru tvísaga um afstöðu hans

Í frétt Vísis kom fram að umfjöllun og umræða um málið hefði komið barns­föðurnum Eiríki Ásmunds­syni, í opna skjöldu. „Þetta er farið af stað algjör­lega í minni óþökk,“ hafði Vísir eftir honum.

Síðar sama dag sagðist hann í samtali við RÚV ekki hafa verið á móti umræðunni, heldur þakklátur. „Ég er hins vegar þakklátur fyrir það að fyrr­verandi tengda­móðir mín hafi gert það og er alls ekki mótfallinn því að málið sé nú komið í opinbera umræðu.“

6. Áslaug Arna kom ekki að málinu svo vitað sé

Þrátt fyrir að staðfest sé að Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, þingkona Sjálfstæðis­flokksins, hafi fengið tölvupóst frá tilkynnandanum Ólöfu Björns­dóttur, hefur ekki verið staðfest að hún hafi brugðist við með neinum hætti. Sjálf hafnar hún því. Þar með er ekki meira vitað en að hún fékk sendan tölvupóst, sem getur ekki talist ábyrgðar­hluti.

7. Forsætisráðuneytið braut ekki trúnað

Tilkynnandinn sendi tölvupóst á netfang forsætis­ráðuneytisins þess efnis að Ásthildur Lóa mætti einnig sitja fundinn. „Góðan daginn, ég bið um stuttan fund með Kristrúnu Frosta­dóttur en það varðar Ásthildi Lóu Þórs­dóttur, það er í góðu lagi að hún sitji líka fundinn, ef Kristrún vill það. Liggur á,“ sagði Ólöf í pósti sínum 11. mars.

Þessar upplýsingar ganga gegn full­yrðingu í fyrstu frétt Ríkis­útvarpsins, sem birt var skömmu áður en Ásthildur Lóa sagði af sér. Þar sagði: „Forsætis­ráðuneytið virðist hafa rofið trúnað um málið“.

Að auki kveða stjórnsýslulög á um að upplýsingar „um lögbrot eða aðra ámælis­verða háttsemi starfs­manna stjórn­valda“ falla ekki undir þagnar­skyldu hins opinbera. Sjá: 41. grein stjórnsýslu­laga.

Ást­hildur Lóa og Hafþór Ólafsson, eig­in­maður hennar, árið 1992

8. Ásthildur Lóa fór heim til tilkynnanda

Ásthildur Lóa fór að heimili tilkynnandans, Ólafar Björns­dóttur, og reyndi að hringja í hana eftir að hún fékk upplýsingar frá aðstoðar­manni forsætis­ráðherra um nafn hennar.

9. Ásthildur fékk tækifæri til að tjá sig við RÚV

„Ríkis­miðillinn hafði ítrekað samband í von um að fá sjónarmið ÁLÞ,“ segir frétta­kona RÚV í athugasemd við færslu talsmanns Flokks fólksins. Því hefur ekki verið neitað.

10. Faðirinn taldi sig ekki þolanda

Eiríkur Ásmundsson fullyrti, samkvæmt Ríkis­útvarpinu, að hann liti ekki á sig sem þolanda í málinu. „Braustu gegn honum?“ spurði frétta­kona RÚV Ásthildi Lóu í viðtali, vitandi að hann taldi sig þó ekki þolanda. Spurningin byggði á aldri hans og aðstöðumun, sem er umdeildur hvað varðar störf hennar sem leið­beinanda eða ekki.

11. Orðalag RÚV byggði á manninum sem heimild

Grundvallar­atriði í frétt Ríkis­útvarpsins er hvort pilturinn hafi verið „skjólstæðingur“ Ásthildar Lóu eða ekki, enda er vitnað til laga­ákvæða sem varða það. Sú stað­hæfing RÚV að Ásthildur Lóa hafi „leitt unglinga­starf“ í trúfélaginu Trú og líf er hins vegar höfð eftir barns­föðurnum gegn neitun hennar. RÚV velur að trúa barns­föðurnum frekar en Ásthildi Lóu.

„Barns­faðirinn fullyrðir hins vegar að hún hafi leitt unglinga­starf innan félagsins. Hann segir sjálfur að um tálmun hafi verið að ræða og enginn nema þú talar um þvingun. Hvers vegna ætti ekki að trúa honum, rétt eins og ÁLÞ [Ásthildi Lóu Þórs­dóttur]?“ spurði frétta­kona RÚV í svari við færslu talsmanns Flokks fólksins um málið.

12. Fullyrðingar um tálmun eru óljósar

Ríkis­útvarpið hefur eftir barns­föðurnum að umgengni hans við barnið hafi verið tálmuð. Frásögn Ásthildar Lóu er önnur. Í frétt RÚV er fullyrt í milli­fyrirsögn: „Tálmaði umgengni“. Samkvæmt frétt Ríkis­útvarpsins hefur það séð gögn sem varða baráttu barns­föðurins gegn tálmun. Í fyrstu fréttinni kemur fram að „móðirin hafi hafnað honum um umgengni“ en engu að síður vitnað til þess að hann hafi fengið „samþykktar tvær klukku­stundir á mánuði með drengnum“. Því er óljóst hvort vísað er til deilu um umgengni, frekar en tálmun, sem er hindrun á umgengnis­rétti.

Alvarleiki ásökunar um tálmun er undir­strikaðar í frétt RÚV, þar sem segir: „Flokkur fólksins hefur verið afdráttar­laus þegar kemur að tálmunum og kallað eftir því að gera tálmun refsiverða, svo varði allt að fimm ára fangelsi.“

Samkvæmt frásögn barnsins, Þórs Símonar Hafþórs­sonar, nýtti barns­faðirinn ekki takmarkaðan umgengnis­rétt sinn.

13. Sonur Ásthildar Lóu telur hana ekki hafa brotið gegn föðurnum

Í frásögn sonar Ásthildar Lóu Þórs­dóttur og Eiríks Ásmunds­sonar kemur fram að hún hafi „ekki í eitt einasta skipti talað illa um eða niður til blóðföður“ hans. Þar með upplifði hann ekki tryggðar­klemmu. Sömuleiðis segir hann blóðföður sinn ekki hafa nýtt sér umgengnis­réttinn, sem þó var takmarkaður við tvær klukku­stundir í mánuði. Hann segir „vert að spyrja hversu margar af þessum 24 klukku­stundum hann nýtti til samveru með mér? Þau skipti er hægt að telja á fingrum annarar handar.“ Á móti kveðst Ríkis­útvarpið hafa gögn um að blóð­faðirinn hafi sóst eftir meiri umgengnis­rétti.

14. Ásthildur Lóa setur ábyrgðina af sér yfir á hann

Í viðtölum um málið hefur Ásthildur Lóa sett ábyrgðina á piltinn, sem þá var 16 ára. Hún hefur lýst honum sem „elti­hrelli“ í skilningi nútímans og að hún hafi ekki „ráðið við ástandið eins og það var“, þrátt fyrir að hafa verið tæplega sjö árum eldri.

15. RÚV leiðréttir ekki

Enn hefur Ríkis­útvarpið ekki leiðrétt sérstak­lega nein atriði í upphaflegri frétt sinni um málið. Mannlíf hefur sent fyrir­spurn á frétta­stjóra en ekki enn fengið svar. Þó hefur RÚV haldið áfram að fjalla um málið út frá nýjum upplýsingum og skýringum sem berast, meðal annars frá Ásthildi Lóu, Þór Símoni Hafþórs­syni og talsmanni Flokks fólksins.

16. Gildismat fólks er misjafnt

Það hvort fólk telji í lagi, ásættanlegt eða óásættanlegt að 22 ára kona hafi getið barn með 16 ára pilti varðar bæði afstætt siðferði miðað við tímabil og svo sömuleiðis mismun­andi gildismat fólks. Flestir telja líklega í vafasamt að slíkt eigi sér stað í dag, en viðmið samfélagsins hafa breyst á 36 árum. Sömuleiðis er sýn misjöfn á það hvort ráðherra barnamála geti haft slíkan bakgrunn, en í flestum tilfellum byggir það á þeim mörgu atriðum sem umfjöllun um málið hefur tekið til: Hvort Ásthildur Lóa hafi raun­verulega „tálmað umgengni“, mögulega brotið gegn lögum eða brotið á piltinum. Eftir stendur að maðurinn telur sig eingöngu vera þolanda hvað varðar tálmun, sem þó er ekki sönnuð að öðru leyti en að gögn sýna baráttu hans fyrir meiri umgengni, sem móðir og barn segja hann ekki hafa nýtt sér þegar á hólminn var komið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

Umferðartafir á Reykjanesbraut í Hafnarfirði eru miklar á álagstímum, að sögn Árna Rúnars Þorvaldssonar, sem kallar eftir úrbótum.
  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda