
Alls eru átta aðilar vistaðir í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina en alls voru 57 mál skráð í kerfi lögreglunnar frá 17:00 í gær til 05:00 í morgun, samkvæmt dagbók lögreglunnar. Hér má sjá nokkur dæmi um þau útköll sem lögreglan fór í.
Verslun á fjórum stöðum í höfuðborginni var lokað vegna gruns um ólöglega sölu áfengis en lögreglan hafði sérstakt eftirlit með slíkum brotum. Eru forsvarsmenn grunaðir um brot á reglugerð um smásölu og veitingar áfengis.
Lögreglan á Hverfisgötu handtók tvo og vistaði í fangageymslu, grunaða um framleiðslu og sölu fíkniefna, peningaþvætti og vörslu fíkniefna. Málið er í rannsókn.
Þá var einn aðili handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna gruns um líkamsárás, eignaspjöll og vörslu fíkniefna en málið er í rannsókn.
Sömu lögreglu barst tilkynning um hóp einstaklinga sem réðust á einn. Tilkynningunni fylgdi sú lýsing að einn aðilinn væri með skóflu í hendi sem hann hugðist nota til að veitast að þolandanum. Þegar lögreglan kom á vettvang reyndist málið hins vegar minniháttar og var það afgreitt á vettvangi.
Lögreglan sem sinnir útköllum í Hafnarfirði og Garðabæ setti upp ölvunarpóst þar sem nokkur ökutæki voru stöðvuð og ástand ökumanna metið. Einn þeirra er grunaður um akstur unir áhrifum ávana- og fíkniefna og annar er grunaður um að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna auk áfengis. Voru þeir báðir lausir eftir sýnatöku.
Sama lögregla fór í útkall vegna innbrots í gám en þaðan var verkfærum stolið. Málið er í rannsókn.
Kópavogs- og Breiðholts lögreglan var kölluð til vegna yfirstandandi líkamsárásar þar sem tveir veittust að einum. Lá árásarþoli eftir þegar lögreglan mætti á svæðið en hún rannsakar nú málið.
Æsilegur eltingarleikur varð þegar ökumaður stöðvaði ekki bílinn þrátt fyrir stöðvunarmerki lögreglu, sem vildi kanna ástand hans og ökuréttindi. Hóf ökumaðurinn að keyra yfir hámarkshraða talsverða vegalengd og olli með athæfi sínu mikilli hættu. Beita þurfti lögreglubifreiðum til að stöðva ökufantinn og var hann að lokum handtekinn og vistaður í fangaklefa, í þágu rannsóknar málsins. Er hann meðal annars grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur bifreiðar sviptur ökuréttindum, vörslu fíkniefna og fyrir að virða ekki stöðvunarfyrirmæli.
Að lokum segir frá því í dagbók lögreglunnar að lögreglan á Vínlandsleið hafi fengið beiðni um aðstoð vegna slagsmála á ölhúsi.

Komment