1
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

2
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

3
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

4
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

5
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

6
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

7
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

8
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

9
Innlent

Toyota innkallar Lexus NX

10
Heimur

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins

Til baka

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

„Ég þoli ekki þegar verið er að klaga upp á mig“

Alþingi óundirbúnar fyrirspurnir - Kristrún Frostadóttir
Kristrún FrostadóttirEr forsætisráðherra Íslands
Mynd: Víkingur

Harðar orðahnippingar urðu milli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins og fyrrum forsætisráðherra, og Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á Alþingi í dag þegar fyrrverandi ráðherraembætti Guðmundar Inga Kristinssonar bar á góma í óundirbúnum fyrirspurnum.

Sigmundur Davíð hóf mál sitt á fyrirhugaðri umræðu um bókun 35 en beindi síðan sjónum sínum að aðdraganda afsagnar Guðmundar Inga sem mennta og barnamálaráðherra. Hann spurði forsætisráðherra hvort formenn stjórnarflokkanna hefðu í raun ákveðið að Guðmundur Ingi skyldi víkja áður en hann tilkynnti sjálfur um afsögn sína.

„Tóku forystumenn ríkisstjórnarinnar, stundum kallaðar valkyrjurnar, ákvörðun um það að fyrrnefndur hv. þingmaður skyldi víkja úr ríkisstjórn sem ráðherra áður en hann fékk skilaboð frá aðstoðarmanni sínum þar um?“ spurði Sigmundur Davíð.

Kristrún staðfestir að formennirnir ræddu málið

Kristrún sagði að hún hefði þegar svarað fyrir málið og áréttaði að Guðmundur Ingi hefði sjálfur ákveðið að segja af sér ráðherraembætti. Hún staðfesti þó að formenn stjórnarflokkanna hefðu rætt stöðuna.

„Það er ekkert óeðlilegt við að mál af þessum toga séu rædd meðal formanna ef það kann að hafa áhrif á ríkisstjórnarskipanina, þannig að við ræddum þessi mál að sjálfsögðu,“ sagði Kristrún.

Hún bætti við: „En í lok dags, eins og ég hef lýst hér yfir, er þetta ákvörðun sem er tekin af hv. þingmanni sjálfum eins og hann hefur lýst yfir.“

Sigmundur Davíð sagðist hins vegar skilja svar forsætisráðherra á annan veg. Hann sagði hana hafa viðurkennt að vilja frekar ræða bókun 35 en málefni ráðherrans og taldi sig hafa skilið orð hennar þannig að formenn stjórnarflokkanna hefðu ákveðið sameiginlega að Guðmundur Ingi skyldi víkja.

„Svo hafi honum verið gert það ljóst að honum væri fyrir bestu að hafa frumkvæði að því sjálfur enda, eins og kom fram í skilaboðum til hans, þá biði hans ella stríð,“ sagði Sigmundur Davíð.

„Ég þoli ekki þegar verið er að klaga upp á mig“

Þessi túlkun fór illa í forsætisráðherra sem svaraði af hörku og sakaði Sigmund Davíð um að leggja henni orð í munn.

„Ég þoli ýmislegt í þessum sal en ég þoli ekki þegar verið er að klaga upp á mig að ég hafi sagt eitthvað sem er ekki satt,“ sagði Kristrún.

Hún lagði áherslu á að hún hefði aðeins sagt að formenn stjórnarflokkanna hefðu rætt stöðuna, en ekki að þeir hefðu ákveðið að Guðmundur Ingi ætti að víkja.

„Ég sagði að formenn hefðu rætt saman en ekki um hvað,“ sagði Kristrún og vísaði til þess að ýmsar aðstæður gætu kallað á samtal milli formanna stjórnarflokka, meðal annars heilsubrestur ráðherra.

„Auðvitað þegar koma upp svona aðstæður á stjórnarheimilinu sest fólk saman og ræðir málin,“ sagði hún.

Segir Guðmund Inga hafa tekið ákvörðunina sjálfur

Forsætisráðherra sagði slíkt samtal eðlilegan hluta stjórnarsamstarfs enda gæti staða ráðherra haft áhrif á stjórnskipan og starf ráðuneyta. Hún ítrekaði síðan að formennirnir hefðu rætt stöðuna og síðar rætt við Guðmund Inga.

„Það breytir því ekki að ég hef sagt frá hér inni, þar sem maður segir satt í þessari pontu og eftir manni er skrifað, að við ræddum saman um stöðu sem upp var komin og ræddum síðar við hv. þingmann um þá stöðu,“ sagði Kristrún.

Hún sagðist ekki hafa nákvæma tímalínu málsins fyrir framan sig en ítrekaði að endanleg ákvörðun hefði verið Guðmundar Inga sjálfs.

„Í kjölfarið, einhverju seinna, ég er ekki með þá tímalínu skrifaða upp á punkt og prik, þá segir viðkomandi af sér á sínum forsendum og hann hefur sjálfur sagt það,“ sagði Kristrún.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Netanyahu vill nota rafmyntir til að komast hjá refsiaðgerðum
Heimur

Netanyahu vill nota rafmyntir til að komast hjá refsiaðgerðum

Seðlabankastjóri Ísraels er á öðru máli.
Skelfilegar ásakanir á hendur föður Meghan Markle rannsakaðar á Filippseyjum
Heimur

Skelfilegar ásakanir á hendur föður Meghan Markle rannsakaðar á Filippseyjum

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?
Skoðun

Dávur í Dali

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan
Heimur

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

„Fram undan er mikil vinna, en hér er líka sterkur vilji til að gera gott samfélag enn betra“
Tekið verði fastar á umhverfisníðingum
Pólitík

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum
Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

Loka auglýsingu