
Ásgeir Guðmundsson, veitingamaður og rekstraraðili Skreiðar, Röntgen og Austurbæjarbíós, hafnar þeirri mynd sem hann segir hafa verið dregna upp í Kveik af samskiptum íslenskra veitingamanna við Ölgerðina. Fyrirtækið sé stærsti birgir hans en hann sé engu að síður frjáls að því að eiga viðskipti við fjölmarga aðra birgja.
Ásgeir fjallar um málið í grein sem birtist á Vísi í morgun. Þar vísar hann til umfjöllunar Kveiks í síðustu viku um viðskiptahætti Ölgerðarinnar og stöðu fyrirtækisins gagnvart veitingamönnum.
Hann tekur fram að hann felli ekki dóm um þau atriði sem Samkeppniseftirlitið hefur til rannsóknar en segist ekki kannast við þá mynd sem Kveikur hafi dregið upp.
„Ég rek Skreið, Röntgen og Austurbæjarbíó og Ölgerðin er minn stærsti birgi. Ég kannast ekki við þessa mynd,“ skrifar Ásgeir.
Hann segir staði sína kaupa vörur af alls 14 drykkjarvörubirgjum og að búnaður frá Ölgerðinni sé einnig notaður undir vörur frá keppinautum fyrirtækisins. Á Röntgen séu meðal annars Peroni og náttúruvín á dælu og ein dæla ávallt frátekin fyrir smábrugghús. Á Skreið sé Estrella á dælu auk þess sem bæði Coca-Cola og Pepsi Max séu í boði.
Ásgeir segir sölufólk Ölgerðarinnar metnaðarfullt og stundum aðgangshart en telur það kost fremur en galla. Starfsmenn fyrirtækisins þrífi meðal annars dælur sem notaðar séu undir vörur keppinauta og sinni viðhaldi á kælum þar sem önnur vörumerki séu einnig geymd.
„Það kalla ég ekki yfirgang, heldur þjónustu,“ segir Ásgeir.
Hann segir vöruúrval og þjónustu Ölgerðarinnar helstu ástæður þess að hann kaupi mest af fyrirtækinu. Þegar það eigi ekki vörurnar sem hann leiti að fari hann einfaldlega annað. Hann segir jafnframt eiga í góðum samskiptum við aðra birgja og telur fjölbreytni á markaðnum styrk íslenskrar veitingamenningar.
Ásgeir leggur áherslu á að veitingamenn verði sjálfir að standa í fæturna gagnvart birgjum. Þótt þeir sýni birgjum tryggð eigi hagsmunir gestanna ávallt að ganga fyrir.
Hann segir Ölgerðina sinna sér vel en að það komi ekki í veg fyrir að hann hafni tilboðum eða vörum fyrirtækisins þegar honum sýnist svo.
„Metnaður sölumanna er ekki glæpur. Og smekkvísi veitingamanna er ekki samningsbundin, mín er hið minnsta ekki föl,“ skrifar Ásgeir.
