1
Heimur

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð

2
Heimur

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu

3
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

4
Fólk

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum

5
Heimur

Dómari skipar Trump að afhenda gögn

6
Heimur

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys

7
Heimur

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn

8
Heimur

Karlmenn flykkjast í háreyðingu eftir að stuttbuxur voru leyfðar í vinnunni

9
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

10
Heimur

Kona ákærð fyrir morð á breskri fjögurra barna móður í Frakklandi

Til baka

Bubbi lýsir yfir andláti miðborgarinnar

„Það er búið að eyðileggja miðbæinn.“

BubbiBer
Bubbi MorthensEkki eru allir sammála Bubba
Mynd: Facebook

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir miðbæ Reykjavíkur hafa tapað lífi sínu og telur að þróunin undanfarin ár hafi haft neikvæð áhrif á borgarlífið.

Í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlum lýsir hann upplifun sinni eftir að hafa flutt úr sveit í borgina og síðar sest að á Seltjarnarnes, þar sem hann hefur búið undanfarin fimm ár.

„Mín skoðun er eftir að hafa flutt í borgina úr sveitinni að miðbær Reykjavíkur sé ónítur dauður hvað gerðist hverjum datt í hug að hrekja nánast alla verslun úr Miðborgin vart finnanleg bílastæði jú það má finna túrista,“ skrifar Bubbi.

Hann segir að miðbærinn hafi áður verið lifandi og iðandi af fólki og verslun, en að nú sé annað upp á teningnum. Að hans mati séu heimamenn sjaldséðir í miðborginni.

„En heimamenn sjást varla einu sinni var miðbærin fullur af fólki verslun og lífi,“ segir hann enn fremur.

Bubbi segist fara daglega um borgina og byggja skoðun sína á þeirri reynslu. Hann er ekki í vafa um niðurstöðuna:

„Ég er búin að búa á Seltjarnarnes í 5 ár og fer dagleg um borgina mín skoðun er sú það er búið að Eyðileggja miðbæinn.“

Athugasemdarkerfið logar

Athugasemdakerfið við færslu Bubba fylltist snögglega af nafntoguðum miðbæjarrottum sem flestar eru ósammála söngvaskáldinu.

Þorfinnur Ómarsson fjölmiðlamaður svarar meðal annars athugasemd frá Georg nokkrum, sem kennir Degi B. Eggertssyni, fyrrverandi borgarstjóra um ásýnd miðborgarinnar og segir: „Dagur á hrós skilið fyrir að gera miðbæ Reykjavíkur að spennandi og lifandi miðbæ, nokkuð sem hann var ekki hér áður fyrr. Miðbær Reykjavíkur hefur aldrei verið meira lifandi en einmitt nú.“

Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður tjáir sig einnig um færslu Bubba:

„Ég hef búið í miðbænum í 38 ár. Þar áður átti ég daglega leið um miðbæinn. Mín skoðun er sú að það hafi aldrei - segi og skrifa ALDREI verið jafn mikið líf í miðbænum og einmitt nú, og það eru alls ekki eingöngu túristar. Þetta segi ég ekki af einhverri pólitík, heldur er þetta bara mitt einlægt álit. Ég hef aftur á móti sjaldan séð þig í miðbænum.“

Þessu svarar Bubbi, í mesta bróðerni:

„Kannski vegna þess þú sért ekki vakandi klukkan 9 að kveldi eða við einfaldlega erum ekki á sama tempói og segir ekkert um það sem ég segi hér annað en þú ert mèr ekki sammála.“

Goðsögnin Edda Björgvinsdóttir svarar Illuga einnig og er honum hjartanlega sammála:

„nákvæmlega!!! Í áratugi hef ég fylgst með því hvernig miðborgin verður fegurri og líflegri með hverju árinu. Þegar ég var að fara rúntinn í gamla daga var ekki kjaftur á ferli og mengandi bílar áttu Laugaveginn. Og kæri Bubbi bilastæðin voru miklu miklu færri. Í dag notum við bílastæðahúsin og njótum þess að geta gengið um göturnar.“

Fjölmiðlakonan Lára Zulima Ómarsdóttir, tekur líka upp hanskann fyrir miðborginni í sinni athugasemd við svar Illuga:

„algerlega sammála, td á föstudag var allt krökkt af fólki á Óðinstorgi, allt Íslendingar- Laugavegurinn er iðandi af lífi þar sem göngugatan er, hér er allt til alls - bara í 100 metra radíus frá mér eru 3 bakarí, fjöldi kaffihúsa, íslenskar hönnunarvörubúðir, búsáhaldabúð, fataverslanir, nytjamarkaðir, veitingastaðir og ef ég fer í 350 metra þá bætast við matvöruverslanir, sundlaug og enn fleiri bakarí, kaffihús, veitingastaðir, verslanir og ég veit ekki hvað og hvað. Miðborgin okkar er æði! Bubbi Morthens Áður var td ekki hægt að ganga Laugaveginn með barn vegna mengunar og þar var enginn á ferli nema seint á föstudags- og laugardagskvöldum og þá blindfullur.“

Enn einn fjölmiðlamaðurinn, Egill Helgason tjáir sig í athugasemd við færslu Bubba:

„Ástæðan fyrir þessu er að reist voru verslanahverfi á útjöðrum sem drógu lífsandann úr versluninni. Til dæmis allar búðirnar sem reknar eru í járngrindaskemmum út á Granda og drápu verslun í Miðbænum- og Vesturbænum. Þetta byggist nefnilega allt á ákvörðunum í skipulagsmálum. En á móti kemur að hægt er að velja um ótal veitingastaði af öllu tagi - með mat og drykk frá ýmsum heimshornum - sem var svo sannarlega ekki þegar við vorum ungir.“

Ekki eru þó allir ósammála Bubba en Eyþór Laxdal Arnalds, tónlistarmaður og fyrrverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, en hann er þó hrifinn af veitingastöðunum:

„það er synd að missa verslanir eins og Brynju, herrafataverslun Guðsteins og núna Húrra. Það eru komnir frábærir veitingastaðir en verslunin hefur tapast víða.“

Friðrik Karlsson gítarsnillingur er einnig sammála Bubba:

„Sammàla Bubbi èg hef varla farið í miðbæinn í 10 àr algjörlega búið að rústa honum!!!!!“

Fréttaritarinn Jóhann Hlíðar Harðarsson svarar reyndar Friðriki á skemmtilegan máta:

„Ef þú hefur varla farið í miðbæinn í heilan áratug þá ert þú varla besti dómarinn um það hvernig miðbærinn er.“

Hinn umdeildi athafnamaður Hilmar Leifsson er einnig sammála Bubba og segir:

„Þetta er alveg hárrétt hjá þér Bubbi þetta er allt samfylkingunni og Degi B að kenna þau eru buinn að stórskaða borgina.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Halla Tómasdóttir heimsækir Landsmót skáta
Myndir
Landið

Halla Tómasdóttir heimsækir Landsmót skáta

Nyrsta skátamiðstöð í heimi iðar af lífi
Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio
Pólitík

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu
Myndband
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

Daði og fjölskylda á ferð um landið
Myndband
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi
Landið

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi

Fjórir Palestínumenn og ólöglegur landnemi létust í blóðugum átökum á Vesturbakkanum
Heimur

Fjórir Palestínumenn og ólöglegur landnemi létust í blóðugum átökum á Vesturbakkanum

Íslandsmótið í sjósundi 2026
Myndband
Sport

Íslandsmótið í sjósundi 2026

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu
Heimur

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum
Myndband
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

Fólk

Nýtt upphaf eftir skilnað
Fólk

Nýtt upphaf eftir skilnað

Einvera sögð lykill að sjálfsuppgötvun og auknum lífsgæðum
Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Daði og fjölskylda á ferð um landið
Myndband
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum
Fólk

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum

„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“
Fólk

„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

Loka auglýsingu