
Mynd: KinoMasterskaya/Shutterstock
Karlmaður á fertugsaldri sem fluttur var á slysadeild eftir vinnuslys í Korngörðum í Reykjavík í morgun, er látinn. Tveir aðrir voru fluttir á slysadeild en um er að ræða sprengingu. Annar þeirra er alvarlega slasaður.
Tilkynning um málið barst lögreglu rétt fyrir klukkan hálfátta og héldu viðbragðsaðilar strax á staðinn, samkvæmt tilkynningu frá lögrelgunni. Þegar viðbragðsaðila komu á vettvang voru nokkrir aðrir starfsmenn þar en hlúð var að þeim í húsakynnum nærliggjandi fyrirtækis. Reyndust þeir óslasaðir.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment