Vettvangsrannsókn vegna brunans í gær í Reykjanesbæ er í gangi hjá lögreglunnar á Suðurnesjum og nýtur hún aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en þetta kemur fram í tilkynningu frá lögureglu.
Þegar fyrstu lögreglumenn komu á vettvang í gær mátti sjá mikinn eld koma frá íbúð á fyrstu hæð hússins. Fjölbýlishúsið er á tveimur hæðum með sex íbúðum.
Einn íbúi liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild og er haldið sofandi.
Íbúar fengu áfallahjálp frá Rauða krossinum. Flestir íbúar gátu leitað skjóls hjá ættingjum en Rauði krossinn á Suðurnesjum aðstoðaði aðra með næturgistingu.
Sjö hundar drápust í eldsvoðanum, einn lifði og einn er ófundinn.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa


Komment