1
Fólk

Eitt krúttlegasta einbýli landsins komið á sölu

2
Innlent

Ákærð fyrir að svíkja hundruð þúsunda af heimilismanni

3
Peningar

Páll Steingríms stofnar fyrirtæki

4
Innlent

Halldór Ingi enn ófundinn

5
Heimur

Grunur um árás á mikilvæga olíuleiðslu Rússa

6
Innlent

Jón Guðni beit mann í geirvörtuna og sparkaði konu í lífbeinið

7
Heimur

Fyrirsætan og sundfatahönnuðurinn Sahara Ray látin

8
Heimur

Sögusagnir um dauða Kim Jong-un ganga um heiminn

9
Innlent

Stefán Einar kennir innflytjendum um en Frakkar segja annað

10
Innlent

„Elliði vinnur þá skítavinnu að venja okkur við rasisma“

Til baka

Fundu níu mismunandi vopn hjá Lárusi

Var einnig með glás af fíkniefnum og lyfjum

Héraðsdómur Reykjaness
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í málinu
Mynd: Víkingur

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Lárus Siggeirsson í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefna-, vopna- og umferðarlagabrot.

Lárus játaði sök fyrir dómi. Refsingin var ákveðin 60 daga fangelsi en fullnustu hennar frestað í tvö ár. Jafnframt var honum gert að greiða 100 þúsund króna sekt til ríkissjóðs og sæta sex mánaða sviptingu ökuréttar.

Samkvæmt ákæru fann lögregla umtalsvert magn fíkniefna og vopna við húsleit á heimili Lárusar, í mars árið 2024. Þar fundust 171,63 grömm af maríhúana auk fjölda lyfja og fíkniefna, þar á meðal 13 töflur af Alprazolam Krka, 40 töflur af Alprazolam Mylan, 60 töflur af Diazepam, 126 töflur af ýmsum læknislyfjum, 89 töflur af Rivotril, 52 töflur af Lexotan, 10 töflur af Metadon Abcur og þrjár Suboxone-töflur.

Við leitina lagði lögregla einnig hald á fjaðurhníf með áföstu hnúajárni, fallhníf, raflostbyssu, tvo piparúðabrúsa og útdraganlega kylfu.

Auk þessa var Lárus sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja í apríl 2024. Lögregla stöðvaði akstur hans á Reykjanesbraut við Álfabakka í Reykjavík. Í blóðsýni mældust meðal annars díazepam, nordíazepam, oxýkódon og temazepam.

Í september sama ár fór lögregla aftur í húsleit á heimili hans. Þá fundust og voru haldlögð tvö stunguvopn, fjaðrahnífur, hnúajárn, skotfæri, piparúði og rafmagnsvopn.

Dómurinn kveður á um upptöku allra fíkniefna og vopna sem fundust við leitir lögreglu. Þar á meðal eru maríhúana, öll framangreind lyf, fjaðurhnífur með áföstu hnúajárni, fallhnífur, raflostbyssa, þrír piparúðabrúsar, útdraganleg kylfa, tvö stunguvopn, fjaðrahnífur, hnúajárn, skotfæri og rafmagnsvopn.

Lárus var jafnframt dæmdur til að greiða alls 467.589 krónur í sakarkostnað, þar af 247.380 krónur í þóknun verjanda síns.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fyrsta ebólutilfellið greint í Nígeríu í nýrri bylgju faraldursins í Afríku
Heimur

Fyrsta ebólutilfellið greint í Nígeríu í nýrri bylgju faraldursins í Afríku

Biðja alþjóðasamfélagið um aðstoð til að glíma við útbreiðsluna.
Sýknaður eftir kynferðisleg Snapchat-samskipti við 14 ára stúlku
Innlent

Sýknaður eftir kynferðisleg Snapchat-samskipti við 14 ára stúlku

Tveir létust þegar kona ók pallbíl inn á knattspyrnuvöll
Heimur

Tveir létust þegar kona ók pallbíl inn á knattspyrnuvöll

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

Eiríkur Rögnvaldsson varð lítið var við óeirðir í París
Innlent

Eiríkur Rögnvaldsson varð lítið var við óeirðir í París

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið
Innlent

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

„Þið verðið að taka mig upp núna, því ég er orðinn 100 ára“
Heimur

„Þið verðið að taka mig upp núna, því ég er orðinn 100 ára“

Ásgeir grípur til varna eftir Kveiksumfjöllun um Ölgerðina
Innlent

Ásgeir grípur til varna eftir Kveiksumfjöllun um Ölgerðina

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið
Innlent

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu
Myndir
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

Krefjast rannsóknar á fyrrverandi ísraelskum herforingja vegna drápsins á Hind litlu
Heimur

Krefjast rannsóknar á fyrrverandi ísraelskum herforingja vegna drápsins á Hind litlu

Tveir brutu reglurnar og enduðu á bráðamóttöku
Innlent

Tveir brutu reglurnar og enduðu á bráðamóttöku

Innlent

Sýknaður eftir kynferðisleg Snapchat-samskipti við 14 ára stúlku
Innlent

Sýknaður eftir kynferðisleg Snapchat-samskipti við 14 ára stúlku

"Kann mjöög vel á snipin, hvenær og hvernig puttarnir fara inn"
Tveir brutu reglurnar og enduðu á bráðamóttöku
Innlent

Tveir brutu reglurnar og enduðu á bráðamóttöku

Eiríkur Rögnvaldsson varð lítið var við óeirðir í París
Innlent

Eiríkur Rögnvaldsson varð lítið var við óeirðir í París

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið
Innlent

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

Ásgeir grípur til varna eftir Kveiksumfjöllun um Ölgerðina
Innlent

Ásgeir grípur til varna eftir Kveiksumfjöllun um Ölgerðina

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið
Innlent

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið

Loka auglýsingu