Hreyfihamlaður farþegi varð eftir á César Manrique-flugvellinum á Lanzarote og missti af flugi sínu til Bristol í Bretlandi eftir að séraðstoð, sem hafði verið pöntuð fyrir ferðina, skilaði sér ekki. Atvikið átti sér stað 12. maí í flugstöð 1 á Ryanair-flugi til Bretlands en greint er frá málinu í spænsku fjölmiðlum.
Samkvæmt frásögnum vitna hafði farþeginn bókað aðstoð fyrir einstaklinga með skerta hreyfigetu og beið á tilteknum samkomustað þar sem starfsfólk átti að fylgja henni að brottfararhliði og um borð í vélina. Aðstoðin kom hins vegar aldrei og flugvélin fór af stað án hennar.
Þjónusta við farþega með skerta hreyfigetu á flugvellinum er í höndum fyrirtækisins Mitie, sem starfar sem undirverktaki fyrir flugvallarekandann Aena.
Vegna mistakanna þurfti farþeginn að dvelja eina nótt til viðbótar á Lanzarote og kaupa nýjan flugmiða með Ryanair daginn eftir. Atvikið hafði því í för með sér bæði aukinn kostnað og veruleg óþægindi fyrir viðkomandi.
Heimildir sem þekkja til starfsemi flugvallarins hafa bent á að mikill fjöldi beiðna um séraðstoð geti hafa átt þátt í atvikinu. Starfsfólk glími að sögn við aukið álag vegna vaxandi eftirspurnar eftir þjónustunni og skorts á mannskap.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkt atvik kemur upp. Fyrir um ári síðan voru tveir aldraðir farþegar með skerta hreyfigetu sagðir hafa orðið eftir þegar þeir voru á leið um borð í easyJet-flug til Liverpool.
Aena hefur staðfest að rannsókn sé hafin á málinu. Í yfirlýsingu segir fyrirtækið að gripið verði til viðeigandi ráðstafana í samræmi við gildandi samninga og þær þjónustukröfur sem gerðar eru til fyrirtækisins sem annast aðstoðina.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir