
Fjórir gista fangaklefa á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt dagbók lögreglunnar en frá klukkan 17:00 í gær til 05:00 í morgun voru 68 mál skráð hjá lögreglunni. Hér fyrir neðan má sjá nokkur dæmi um verkefni næturinnar.
Í Múlunum í Reykjavík ók ökumaður bifreið sinni út af veginum og varð töluvert tjón á bifreiðinni en engin slys á fólki. Í sama hverfi var brotist inn í geymslu í fjölbýlishúsi. Ekki fylgdi sögunni hverju var stolið.
Þá voru aðili handtekinn í miðborg Reykjavíkur þar sem hann var að selja fíkniefni og tveir aðrir voru stöðvaðir í bifreið, grunaðir um sama brot. Allir voru vistaðir í fangaklefa.
Í Breiðholtinu féll maður niður tröppur í fjölbýlishúsi og slasaðist. Var hann fluttur á bráðamóttöku með sjúkrabíl. Þá var einnig óskað eftir aðstöð lögreglu í verslun í Breiðholtinu vegna þjófnaðar.
Miðsvæðis í Kópavogi var aðili handtekinn vegna eignaspjalla og hótanna og var hann vistaður í fangaklefa.
Í Árbænum var síðan sótölvuðum aðila komið til aðstoðar og honum ekið heim.

Komment