1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

6
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

9
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

10
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

Til baka

Ráðleggur Brynjari Níels að skrifa ekki eftir áfengisdrykkju

„Hann horfi á mig eitt augnablik eins og væri vangefinn“

Brynjar Níelsson
Brynjar Níelsson
Mynd: Facebook/Brynjar Níelsson

Brynjar Níelsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, birtir á samfélagsmiðlum í gær þar sem hann lýsir ferð sinni til London og beinir spjótum sínum meðal annars að skipulagsmálum Reykjavíkurborgar og fyrrverandi borgarstjóra.

Í færslunni segist Brynjar vera staddur í London til að kynna sér skipulagsmál og búsetuúrræði fyrir þá verst settu í samfélaginu. Hann skrifar að honum hafi verið afhent þrjú greiðslukort frá Reykjavíkurborg vegna ferðarinnar; eitt fyrir flug og hótel, annað fyrir mat og drykk og það þriðja fyrir „ófyrirséðan kostnað“, svo sem áfengisneyslu á næturklúbbum fram undir morgun.

Brynjar segist hafa hitt borgarstjóra Lundúna í ráðhúsinu þar sem hann hafi meðal annars rætt um þéttingu byggðar. Hann kveðst hafa bent á að hægt væri að byggja húsnæði fyrir allt að milljón manns á svæðum á borð við Hyde Park og í nágrenni Buckinghamhallar. Samkvæmt frásögn hans hafi borgarstjórinn brugðist furðu lostinn við og spurt hvort hann væri í sama flokki og borgarfulltrúarnir Dóra Björt Guðjónsdóttir og Alexandra Briem. „Hann horfi á mig eitt augnablik eins og væri vangefinn,“ skrifaði borgarfulltrúinn.

Þá segir Brynjar að hann hafi einnig spurt um búsetuúrræði fyrir heimilislausa í London. Í færslunni lýsir hann því að borgaryfirvöld útvegi svefnpoka og pappakassa fyrir þá sem verst eru staddir.

Í lok færslunnar beinir Brynjar síðan orðum sínum að Degi B. Eggertssyni, fyrrverandi borgarstjóra. Hann segir að borgarstjóri Lundúna hafi spurt frétta af Degi og hvort rétt væri að hann vildi taka upp evru og ganga í Evrópusambandið. Brynjar svarar því til að Dagur hafi náð að „sérhæfa sig í upplýsingaóreiðu“, en bætir við í gamansömum tón að hann sé „ekki nógu vel gefinn til að skrifa í Moggann“.

Drekktu tvo og skrifaðu svo

Misvel er tekið í færslu Brynjars en í athugasemdakerfinu ráðleggur Helga Vala Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, Brynjari að hætta skrifa pistla eftir að hann hafi fengið sér áfengi.

„Ég hef tileinkað mér þann sið “drekktu tvo og skrifaðu svo” sem hefur verið þekktur hjá frægum samfylkingarmönnum,“ svarar Brynjar henni.

„Ég hélt að þú vildir helst minnst af þeim læra, en margur er kratinn inni við beinið...“ svarar hún til baka.

„Margt hægt að læra af krötum og almenn óregla er eitt af því,“ skrifar hann svo að lokum til Helgu.

Allt í plati

Brynjar sá sig hins vegar knúinn til að birta að færslu í dag þar sem hann segir að um skáldskap hafi verið að ræða og að ekki sé öllum gefið að greina á milli skáldskapar og sannleikans.

„Ég sendi frá mér hér á fésbókinni í gær smásögu sem Hallgrímar Helgasynir þessa lands brugðust hinir verstu við,“ skrifar hann og bætir við að hann hafi skilning á því að fólki finnist sagan hvorki fyndin né skemmtileg, en að hún hafi engu að síður verið skáldverk en ekki frásögn af raunverulegum atburðum.

Brynjar segir sérstaklega mikilvægt að leiðrétta misskilning sem skapast hafi í kjölfar skrifanna. Hann kveðst hvorki vera í ferð á vegum borgarinnar né hafa fengið greiðslukort frá Reykjavíkurborg til afnota.

„Ég er ekki í ferð á vegum borgarinnar og hef engin greiðslukort til að sukka með nema mín eigin,“ skrifar hann.

Hann segist heldur ekki hafa hitt borgarstjóra London, þrátt fyrir að það hafi komið fram í fyrri pistlinum. Hann hafi þó heimsótt Downingstræti 10 í þeirri von að rekast á Keir Starmer, en þar hafi enginn verið heima nema kötturinn.

Að sögn Brynjars er það eina sem sé satt í upphaflegu smásögunni að hann sé staddur í London. Þar sé hann í ferðalagi með hópi kvenna sem hann lýsir með sínum hætti í færslunni og segir þær meðal annars sækja í verslunarferðir í hinar þekktu stórverslanir borgarinnar, þar á meðal Harrods.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla
Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Fjölmiðlarnir uppljóstruðu um vitneskju forsætisráðherrans um yfirvofandi hryðjuverkaárás Hamas-liða 7. október 2023.
Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Innlent

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

Mágur Toni Braxton lést í nótt
Heimur

Mágur Toni Braxton lést í nótt

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar
Innlent

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles
Heimur

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni
Heimur

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi
Innlent

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura
Heimur

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn
Heimur

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar
Innlent

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar

Sálfræðingur skorar á ráðherra
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

„Þetta eru þeir sem vilja bara skattleggja almúgann - ekki auðmenn“
Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti
Pólitík

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti

Loka auglýsingu