1
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

2
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

3
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

4
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

5
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

6
Peningar

Íslandsbanki stefnir Húsvíkingi vegna láns sem tekið var í appi

7
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

8
Fólk

Þriggja hæða einbýlishús í Eyjum leitar nýrra eigenda

9
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

10
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Til baka

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Viðurkenndi að hafa kallað hann meðal annars apa, fávita og skíthæl

Héraðsdómur Reykjaness
Héraðsdómur Reykjaness sá um málið
Mynd: Víkingur

Ónafngreindur starfsmaður sem lenti í hörðum orðaskiptum við yfirmann sinn og hótaði honum ofbeldi á vinnustað missti rétt sinn til launa síðasta mánuð uppsagnarfrests. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjaness, sem sýknaði fyrirtækið sem maðurinn starfaði hjá af kröfu hans um greiðslu tæplega 700 þúsund króna.

Málið snerist um atvik sem áttu sér stað 31. júlí 2025. Starfsmaðurinn hafði sagt starfi sínu lausu tveimur mánuðum áður og var á þriggja mánaða uppsagnarfresti. Hann hafði unnið í júní og júlí en mætti ekki aftur til vinnu eftir harkalegt rifrildi við framkvæmdastjóra fyrirtækisins en fyrirtækið er ekki nafngreint í dóminum.

Tilefni deilunnar var ágreiningur um skattafrádrátt af launum starfsmannsins. Aðilum bar ekki saman um nákvæmlega hvað gerðist. Starfsmaðurinn hélt því fram að framkvæmdastjórinn hefði reiðst, vísað honum af vinnustaðnum og hótað að kalla til lögreglu.

Fyrirtækið lýsti atvikum með öðrum hætti. Þar var því haldið fram að starfsmaðurinn hefði misst stjórn á skapi sínu, ausið svívirðingum yfir framkvæmdastjórann og hótað honum lífláti og ofbeldi. Fyrirtækið taldi háttsemina svo alvarlega að heimilt hefði verið að rifta ráðningarsambandinu fyrirvaralaust.

Starfsmaðurinn leitaði til VR í kjölfarið og var vinnuframlag hans boðið fram það sem eftir lifði uppsagnarfrestsins. Fyrirtækið hafnaði því og taldi óforsvaranlegt að maðurinn sneri aftur á vinnustaðinn.

Fyrir dómi viðurkenndi starfsmaðurinn að hafa öskrað á yfirmann sinn og kallað hann meðal annars apa, fávita og skíthæl. Hann neitaði hins vegar að hafa hótað honum. Framkvæmdastjórinn sagði manninn aftur á móti hafa hótað sér lífláti og sagðist hafa óttast að hann réðist á sig.

Dómurinn taldi sannað að starfsmaðurinn hefði sagt að hann ætlaði að rífa höfuðið af yfirmanni sínum, eða að minnsta kosti ýjað að því. Einnig þótti sannað að hann hefði hreytt frekari ókvæðisorðum í yfirmanninn.

Að mati dómsins var háttsemin verulega ámælisverð og fól í sér svo gróft brot gegn trúnaðarskyldu starfsmannsins að fyrirtækinu hefði verið heimilt að rifta ráðningarsambandinu fyrirvaralaust og án frekari aðvörunar.

Starfsmaðurinn hafði krafist 690.117 króna auk dráttarvaxta vegna launa fyrir ágúst 2025. Fyrirtækið var sýknað af kröfunni og málskostnaður látinn falla niður.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli
Heimur

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli

Gæti átt yfir höfði sér fjögurra ára fangelsi
Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

Einn látinn og fjórir alvarlega særðir í skotárás nærri París
Heimur

Einn látinn og fjórir alvarlega særðir í skotárás nærri París

Öllum fjórum flugvöllum Moskvu lokað vegna drónaárása
Heimur

Öllum fjórum flugvöllum Moskvu lokað vegna drónaárása

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík
Innlent

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd
Innlent

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd

Kirkjubækur frá 19. öld hjálpuðu til við að upplýsa morð á Tenerife
Heimur

Kirkjubækur frá 19. öld hjálpuðu til við að upplýsa morð á Tenerife

Þrír ítalskir hobbit­ar lögðu upp í ævintýraför til að skila týndum hring
Heimur

Þrír ítalskir hobbit­ar lögðu upp í ævintýraför til að skila týndum hring

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum
Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Viðurkenndi að hafa kallað hann meðal annars apa, fávita og skíthæl
Alvarleg staða hjá Barnavernd Reykjavíkur og lögum ekki alltaf fylgt
Innlent

Alvarleg staða hjá Barnavernd Reykjavíkur og lögum ekki alltaf fylgt

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík
Innlent

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd
Innlent

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd

Loka auglýsingu