1
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

2
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

3
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

4
Innlent

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

5
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

6
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

7
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

8
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

9
Innlent

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið

10
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

Til baka

„Spilling var eins og þjóðaríþrótt“

Orri Björnsson rifjar upp tíma sinn í Búlgaríu og Kenía

Orri Björnsson
Orri BjörnssonOrri er veraldarvanur maður
Mynd: Aðsend

Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum hefur víðtæka reynslu bæði úr bæjarmálum og erlendu atvinnulífi. Hann segir í samtali við Mannlíf tengsl sín við bæinn sterk og metnað sinn skýran.

„Ég er fæddur árið 1971, og hef búið í Hafnarfirði frá því ég var unglingur og kláraði stúdent frá Flensborg. Og hef tekið þátt í bæjarmálum í Hafnarfirði frá 1994 með stuttum hléum, Hugurinn er alla daga bundinn við að gera Hafnarfjörð stærri betri og vænni, með öllum mögulegum ráðum. Ég var í sveit á Syðri-Þverá í vestur Húnavatnssýslu þar sem ég á marga ættingja og fyrir nokkrum árum keypti ég hluta jarðarinnar og er því aftur farinn að vera mikið á Þverá. Lika konan mín er frá Georgíu og vegna þess erum við oft í því áhugaverða landi. Ég starfaði lengi hjá lyfja- og líftæknifyrirtækjum og vegna þess bjó ég í Búlgaríu og síðar í Kenýa. Reynslan af því að búa í löndum sem eru svo ólík Íslandi og norður Evrópu hefur mótað viðhorf mín mikið.“

Flutti til Kenía í hruninu

Í miðju hruninu árið 2008 flaug Orri til Kenía á vit ævintýranna.

„Árið 2001 réði ég mig til starfa hjá Pharmaco sem hafði þá nýlega keypt stóra lyfjaverksmiðju af búlgarska ríkinu. Ég flaug út 2. janúar árið 2002 og var þar í fjögur lærdómsrík ár. Til Kenýa fór ég svo í hruninu, flaug út um miðjan október 2008 og réði mig sem ráðgjafi hjá fyrirtæki á vegum SÞ sem var að hjálpa þarlendum fyrirtækjum við að stækka og verða betri þar var ég í önnur tvö ár og sá tími breytti viðhorfum mínum til Afríku og þróunarlandanna gríðarlega mikið.“

Gjörbreytt Búlgaría

Aðspurður um muninn á löndunum tveimur segir Orri muninn vera mjög mikinn:

„Í stuttu máli má segja að annað tilheyrði þriðja heiminum og er þar enn. Hitt sem er Búlgaría tilheyrði öðrum heiminum í kalda stríðinu, heimi kommúnismans. Þegar járntjaldið féll breyttist lítið í fyrstu, spilling grasseraði og völdin voru í raun enn í höndum lítils hóps eins á tímum kommanna. En engu að síður urðu breytingar á landinu og þær mestu þegar það varð hluti af Evrópusambandinu, aðlögunin að því og síðan inngangan gjörbreyttu Búlgaríu og spilling hefur minnkað og hagur almennings batnað gríðarlega. Ég held enn mjög góðum tengslum við vini mína þar og í hvert skipti sem ég heimsæki þau sér maður framfarir og betra líf. Helsta vandamál Búlgaríu er gríðarleg fólksfækkun sem erfitt verður að finna lausn á, en með batnandi hag má reikna með að einhver af þeim hundruðum þúsunda Búlgara sem búa erlendis flytji heim og efli landið enn frekar.

Scan_20260420 bulga
Mynd: Aðsend

Kenýa hefur verið sjálfstætt land í meira en sextíu ár, en spilling og innbyrðis átök milli ættflokka, sem eru 42 í landinu, kemur í veg fyrir að landið blómstri. Kenýa er engu að síður eitt af þeim löndum sunnan Sahara sem best gengur. Hagkerfið er kapítalískt og virkar á sinn hátt, þrátt fyrir spillingu og sjálftöku valdhafa á hverjum tíma, fjölmiðlar eru nokkuð frjálsir og það eru mikil tækifæri framundan. En ólíkt Búlgaríu má segja að stærsta vandamál Kenýa sé fólksfjölgun, þeim fjölgar um eina milljón á ári og það er landinu ofviða að mennta allan barnafjöldann.“

„Spillinging er algjörlega út úr öllu korti“

Varstu fyrir menningarsjokki í öðru hvoru landinu, nú eða báðum?

„Bæði löndin voru gríðarlega áhugaverð en ég er fljótur að aðlagast og varð fljótlega eins og fiskur í vatni á báðum stöðum. Búlgaría er mikið líkari okkur enda hluti af Evrópu, það tók tíma að eignast vini en þegar það gerðist þá eignaðist ég vini fyrir lífstíð sem hægt er að treysta fyrir lífi sínu.

Scan_20260420 (4a
Mynd: Aðsend

Búlgarir eru stoltir af landinu sínu og menningu líkt og við, og maður á að taka þeim opnum örmum með öllu sem því fylgir. Kenýa var miklu lengra frá okkur og þar var sjokkið meira, misskiptingin og spillingin eru algjörlega út úr öllu korti. Samhyggð og samúð þeirra ríku gagnvart þeim fátæku er mjög takmörkuð, og þar ofaná bætist við spennan milli ættflokka. Í Kenýa var spillingin út um allt og í öllu, nánast eins og þjóðaríþrótt. Lögregla og embættismenn skammast sín ekkert fyrir að heimta mútur. Hjá fyrirtækinu sem ég var að hjálpa var einn liðurinn í rekstraráætlun einfaldlega kallaður mútur. Og sá bókhaldslykill var í mjög virkri notkun.“ En auðvitað er fullt af góðu fólki þar og ég er enn í reglulegu sambandi við suma af gömlu vinnufélögunum þar.“

„Við eigum að hætta að gefa geit og hænu eða mat“

Hver er munurinn á löndunum og hvað er hægt að gera til að hjálpa Keníu?

„Helsti munurinn er sá að Búlgaría er í klárri framför og er orðin að venjulegu Evrópuríki, þó með góðum slatta af Balkanskaga vandamálum og sérstöðu. Þeirra vandamál er fólksfækkunin en ég hef trú á að Búlgarir muni finna lausn á því. Kenía er miklu vanþróaðra og á langt í land með að komast í fyrsta heiminn. Eina leiðin til að hjálpa Kenía og Afríku er að eiga viðskipti við þau. Við eigum að hætta að gefa geit og hænu eða mat. Það hefur ekki reynst vel. En með því að eiga í viðskiptum við þessi mörgu og stóru lönd sem gagnast báðum. Þannig munu þau þróast spilling minnka og lífskjör batna.“

Mislukkað frí í Mombasa

Orri lærði eftir misheppnað helgarfrí í Mombasa að í Kenía verði maður að taka öllu með æðruleysi og hugsa lítið um tímann og plön.

„Ég tók ekki mikið frí í Kenýa en eina helgina ákváðum við að taka langa helgi í Mombasa sem er næststærsta borgin og stendur við Indlandshafið.Við keyptum ferð fram og til baka með næturlest sem var kynnt sem sú flottasta í austur Afríku. Þessa lest lögðu Bretar með indversku vinnuafli fyrir hundrað árum. Hún var komin til ára sinna og fór mjög hægt yfir. Miðinn kostaði ca 30.000 fyrir tvo á fyrsta farrými. Innifalið var sér klefi og fullt fæði. Við lögðum af stað seinnipart fimmtudags og áttum að koma til Mombasa að morgni föstudags. Ferðin gekk að óskum um kvöldið, við vorum kölluð í matarvagninn með gamaldags gongi og þjónustan var skemmtileg, fullt af diskum og hnífapörum og nánast ekkert af því samstætt. Í birtingu þegar ég vaknaði var lestin á leið í gengum þjóðgarð og stór fílahjörð alveg við teinana. Þeir færðu sig hægt og lestin fór enn hægar en vanalega. Það var ótrúlega gaman að sjá þessi risastóru dýr í svo miklu návígi, bara örfá metra frá glugganum. En þegar við vorum að nálgast Mombasa stoppaði lestin og engin vissi hvers vegna, svo spurðist út að brú framundan hefði skemmst og það yrði smá bið. En eftir ca 4 klst kom í ljós að viðgerðin tæki lengri tíma og þá var okkur farþegunum vísað upp á þjóðveginn til að húkka far, en síðustu orð lestarstjórans var að vegna þessara vandræða ættum við að fara á lestarstöðina í Mombasa morguninn eftir til að fá endurgreitt fyrir ferðina. Það gekk furðu vel að fá far, troðfullur Matatu, sem eru vanalega Toyota Hiace bílar, stoppaði og bauð far á nokkrar krónur. Okkur tókst að troðast inn í bílinn og komast í sæti. Ég fór svo að telja og komst upp í 21, á bíl fyrir 11 manns, svo var kroppað í sköflunginn á mér og þá kom í ljós að það voru 5 hænur undir sætinu. Vegna tafanna komum við ekki á hótelið fyrr en um kvöldið og dagurinn alveg tapaður. En morguninn eftir fór ég á lestarstöðina til að fá endurgreitt, það tók óratíma enda allir farþegarnir mættir til að fá peningana sína til baka. Eftir 4 tíma bið kom loks að mér og þá tóku við miklir útreikningar til að sýna hvað ég ætti að fá endurgreitt. Þeir voru á þá leið að heildar ferðalengd lestarinnar fram og til baka vorum um 900 km en þar sem að hún stoppaði 60 km frá Mombasa átti ég rétt á að fá þá kílómetra endurgreidda sem þýddi að ég eyddi öðrum degi af þessu stutta fríi í lestarstúss og hafði 2.000 krónur upp í krafsinu. Langa helgin í Mombasa varða því að stuttum sunnudegi á ströndinni því síðan var lagt af stað til Nairobi kl 17 á sunnudegi. Lexían er sú að það þarf að taka öllu af æðruleysi og jafnaðargeði í Kenýa. Ekki hugsa of mikið um tíma eða plön.“

Oft stoppaður af lögreglunni

Að lokum segir Orri frá því að hann hafi oft neyðst til að múta lögreglunni í höfuðborg Kenía.

„Á tveimur árum í Nairobi var ég margoft stoppaður af lögreglu og færður til yfirheyrslu á lögreglustöð, ef að maður er á ferðinni eftir myrkur er þetta mjög algengt. Maður hlýðir lögreglunni því staðalbúnaðurinn er kalashnikov hríðskotabyssa hjá nánast öllum lögreglumönnum. Í byrjun reifst ég og skammaðist yfirleitt og veifaði skírteini frá SÞ til að reyna að losna en fljótlega gefst maður upp á því og fer einfaldlega að borga fyrir að losna, en auðvitað viðheldur það spillingunni, það þurfa allir að neita að borga til að brjóta niður þetta ömurlega kerfi.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera
Heimur

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera

„Örin hverfa aldrei alveg.“
Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna
Heimur

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu
Myndband
Heimur

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð
Heimur

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé
Heimur

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

Eitt krúttlegasta einbýli landsins komið á sölu
Myndir
Fólk

Eitt krúttlegasta einbýli landsins komið á sölu

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

Þriggja hæða einbýlishús í Eyjum leitar nýrra eigenda
Myndir
Fólk

Þriggja hæða einbýlishús í Eyjum leitar nýrra eigenda

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu
Myndir
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

Tíu nammitegundir sem slá í gegn á hrekkjavöku
Fólk

Tíu nammitegundir sem slá í gegn á hrekkjavöku

Loka auglýsingu