
Þóra Jónasdóttir hefur verið skipuð yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og mun stýra farsældarsviði embættisins. Hún er jafnframt fyrsta konan sem gegnir stöðu yfirlögregluþjóns hjá embættinu.
Þóra hefur starfað hjá lögreglunni í áratugi, en hún hóf störf hjá lögreglunni í Reykjavík árið 1986. Hún vann lengi við almenna löggæslu og starfaði einnig sem varðstjóri auk þess að leysa af sem aðalvarðstjóri.
Árið 2015 var hún skipuð aðstoðaryfirlögregluþjónn og tók þá við stjórn lögreglustöðvarinnar í Kópavogi. Þar stýrði hún starfsemi á varðsvæði Kópavogs og Breiðholts til ársins 2024.
Árið 2019 hafði Þóra, ásamt samstarfsfólki sínu á lögreglustöðinni í Kópavogi, frumkvæði að innleiðingu samfélagslöggæslu sem hefur síðan vaxið og fest sig í sessi sem mikilvægur þáttur í starfi embættisins.
Undanfarin misseri hefur hún einnig unnið að verkefnum sem snúa að málefnum barna og ungmenna, auk þess að stýra samfélagslöggæslu, svæðisbundnu samráði og eftirfylgni í heimilisofbeldismálum.
Með skipun sinni verður Þóra hluti af framkvæmdastjórn embættisins. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar henni til hamingju með nýja starfið og segist vænta áfram mikils af störfum hennar, í fréttatilkynningu.

Komment