
Alls hefur starfsmaður orðið fyrir einhvers konar áverkum í 55 skráðum atvikum í grunnskólum Reykjavíkur frá því miðlæg atvikaskráning hófst í febrúar. Þrjú atvik hafa leitt til fjarveru starfsmanna frá vinnu.
Þetta kemur fram í svörum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Vísis. Alls hafa 77 atvik verið skráð á tímabilinu en um 15.500 nemendur stunda nám í grunnskólum borgarinnar.
Samkvæmt sviðinu geta atvik meðal annars komið upp þegar starfsfólk grípur inn í aðstæður þar sem barn eða ungmenni er í miklu uppnámi. Ásetningur er ekki skráður sérstaklega.
Borgin undirbýr jafnframt breytingar á aðgangi að grunnskólum í kjölfar umræðu um öryggi starfsfólks og nemenda. Ekki liggur þó fyrir hvenær ráðist verður í þær framkvæmdir.
