Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Hatur eftir formannskjör: Vill loka kommentakerfum

Grímur í Geðhjálp vill að hat­urs­fulla fólkið fái hjálp.

Grímur Atlason
Grímur Atlason Fram­kvæmda­stjóri Geð­hjálpar fór í gegnum umræðu um for­manns­kjör Pírata. Mynd: Heiða Helgadóttir

Grímur Atlason, fram­kvæmda­stjóri Geð­hjálpar, vekur athygli á hat­urs­bylgju sem birst hefur í ummæla­kerfum Vísis og mbl.is eftir for­manns­kjörið í Pírötum um helg­ina, vegna þess að kvár og trans kona voru í fram­boði, en þau eru vel þekkt fyrir feril sinn í stjórn­málum.

„Tilefnið, sem kall­aði fram þessa froðu­fellandi heift, var kosn­ing á milli tveggja ein­stak­linga í emb­ætti for­manns í stjórn­mála­flokki,“ segir Grímur á Facebook-síðu sinni og birtir mynd af skjá­skotum hroða­legra ummæla um fram­bjóð­end­urna á grund­velli kyn­vit­undar. Þar er talað um stjórn­mála­fólkið sem „fyr­ir­bæri“, Píratar upp­nefndir „öfugugga­flokkur“ og end­ur­tekið notuð röng fornöfn um hana og hán.

Eins og Grímur segir kemur hat­urs­bylgjan í kjöl­far þess að tveir ein­stak­lingar, sem höfðu starfað lengi innan Pírata, voru í fram­boði um for­manns­sætið. Annar fram­bjóð­end­anna, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, er kvár og var kjörið for­maður, en hinn fram­bjóð­and­inn, Alex­andra Briem, er trans kona. Hún hefur verið borg­ar­full­trúi, en Oktavía Hrund vara­borg­ar­full­trúi, fyrir hönd Pírata í Reykja­vik, við góðan orð­s­týr.

„Á þessum drott­ins dýrðar sunnu­degi óska ég þess að kommenta­kerfum „fjöl­miðl­anna“ Vísir og mbl.is verði lokað,“ segir Grímur. Hat­urs­fullu ummælin fóru að flæða inn í gær­kvöldi og virt­ist umræð­unni ekk­ert vera stýrt af fjöl­miðl­unum sem deila frétt­unum.

Grímur óskar þess að aðstand­endur þeirra sem tjá sig svona grípi inn í. „Þangað til að það ger­ist óska ég þess að vinir og vanda­menn þeirra ein­stak­linga, sem hér tjá sig í með­fylgj­andi sýn­is­hornum, fari heim til þeirra og gefi gott knús,“ segir Grímur og ályktar um aðstæður mæl­enda. „Það hlýtur að vera skortur á hlýju og/eða ást sem kallar fram slíka mann­fyr­ir­litn­ingu og illsku eins og hér birt­ist.“

Mikil umræða hefur verið um svo­kallað „vók“ eða „vekni“ í sam­fé­lag­inu. Vókið hefur snú­ist um að sýna öllum hópum virð­ingu og vera vak­andi fyrir því að virkni sam­fé­lags­ins geti unnið gegn fólki kerf­is­bundið en jafn­vel ósýni­lega á grund­velli kyns, kyn­þátta, kyn­hneigðar, kyn­vit­undar eða ann­ars sem hefur ekk­ert með hæfni fólks­ins að gera.

Oktavía hefur rætt með­vit­aða notkun rangra per­sónu­for­nafna, meðal ann­ars í við­tali við Vísi í fyrra.

„Fjöl­breyti­leik­inn felur í sér okkur öll; konur, karla og kvára. Við þurfum ekk­ert að flækja það neitt. Mér finnst við oft flækja þetta um of en satt best að segja finnst mér aldrei vegið að mínu frelsi, nema ég verði vör við að fólk sé að rang­kynja vilj­andi,“ sagði hán.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði