Það styttist í Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum sem sett verður 30. júlí í Herjólfsdal.
Eftir frekar þungt sumar „sunnanlands“ eru margir að spá í hvernig veðrið verði á Þjóðhátíð, sem dregur árlega til sín þúsundir skemmtanaþyrstra gesta.

Ef rýnt er í langtímaveðurspár virðist dæmið líta vel út; Þurrt að kalla verður á fimmtudeginum 29. júlí – en þá fer fram hið „margrómaða“ Húkkaraball en þar sem sjálfur Herra Hnetusmjör mun stíga á stokk ásamt Sturlu Atlas.
Ef allt fer á besta veg varðandi veðrið mun verða skýjað og hitinn á bilinu 12 til 15 gráður. Á laugardeginum mun sólin væntanlega láta sjá sig og áfram hiti með svipuðu móti; hæg austanátt. Á lokadeginum ætti veðrið að vera svipað og hina dagana en ský gætir dregið fyrir sólu.
En við Íslendingar erum vanir miklum veðrabreytingum á skömmum tíma og best að taka með sér allan þann búnað sem gæti virkað gegn óútreiknanlegu íslensku veðri.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






































Athugasemdir