Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

„Ég ætla að finna drenginn minn og fara með hann heim“

Það er úti­lokað að reyna að setja sig spor móður sem gengur um götur fram­andi borgar og leitar að syni sínum. Slíkt er raun sem eng­inn ætti að þurfa að reyna en það er þó hlut­skipti Hönnu Bjarkar Þrast­ar­dóttur sem um þessar mundir leitar sonar síns, Jóns Þrastar Jóns­sonar, með öllum til­tækum ráðum í Dublin, þar sem hann hvarf að morgni hins 9. febr­úar.

Æðru­leysi, ein­urð og ró Hönnu er aðdá­un­ar­verð sem segir af yfir­vegun að hún sé á gangi í vor­blíð­unni í Dublin með von­ina að leið­ar­ljósi að leita sonar síns. „En þetta eru erf­iðir tímar, ég neita því ekki. En við erum saman í þessu fjöl­skyldan og svona barn­mörg kona er rík kona.“

Hann skiptir aldrei skapi, talar aldrei illa um nokkurn mann.

Aðspurð um hvernig barn Jón Þröstur hafi verið þá stendur ekki á svörum hjá Hönnu. „Hann var sér­stak­lega var­kár en líka óskap­lega hlýr og við­kvæmur drengur. Það heyrð­ist aldrei í honum og hann var alltaf svo fyr­ir­ferða­lít­ill og rólegur, alveg sama á hverju gekk.“ Aðspurð um hvort það hafi eitt­hvað breyst þegar Jón Þröstur komst á ung­lings­aldur þver­tekur Hanna fyrir það. „Nei, aldrei. Jón er þannig að honum lyndir við alla og líkar við alla. Hann skiptir aldrei skapi, talar aldrei illa um nokkurn mann en er á sama tíma ákaf­lega félags­lyndur og hefur gaman af því að spjalla við fólk um heima og geima.“

Klár strákur með sterka réttlætiskennd

Hún hefur á orði að Jón Þröstur hafi alltaf haft mikið yndi af því að vera með börn­unum sínum og eins hafi hann frá fyrsta degi tekið börnum unn­ustu sinnar sem sínum eigin. „Það lýsir honum ágæt­lega vegna þess að hann gerir aldrei manna­mun. Hann setur alla undir sama hatt.“

Ef ein­hver þarf á honum að halda þá er hann mættur.

Hanna segir að eitt af því sem ein­kenni Jón sé hversu raun­góður hann reyn­ist ætíð sínu fólki. „Ef ein­hver þarf á honum að halda þá er hann mættur. Hann setur sjálfan sig aldrei í fyrsta sæti og hefur aldrei gert. En hann er líka með báða fætur á jörð­inni, klár strákur með sterka rétt­læt­is­kennd.“

Aðspurð um þann tíma sem nú er fram undan segir Hanna að þau fái mik­inn styrk frá írsku sam­fé­lagi. „Hér er mikil trú, bæn og kær­leikur og það gefur okkur mik­inn styrk sem við þurfum svo sann­ar­lega á að halda. Á svona tímum þarf maður von og frið í hjarta til þess að halda styrknum og ég er þakk­lát fyrir það hvernig sam­fé­lagið hér í Dublin hefur lagst á árarnar með okkur. En ég ætla líka að vera hér þar til ég er búin að finna dreng­inn minn og fara með hann heim.“

Ítarlega er fjallað um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Sjá nýtt við­tal við barns­móður Jóns Þrastar: „Vináttan er okkur mik­ils virði“

Sjá einnig: „Ég veit að bróðir minn hefði gert það sama fyrir mig“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði