Innlent„Ef hún lifir þetta af þá lifir hún af að vera í Hveragerði”24. nóvember 2021 Ruth Phoebe Tchana Wandji rannsakar stress í plöntum, hvernig þær bregðast við aðstæðum í náttúrunni þegar hitinn í jarðveginum hækkar skyndilega. Hennar verkefni snýst um að skoða vaxtarferil plantna og hvernig hann breytist í hlýnandi náttúru, hvernig laufgun á sér stað auk þess sem hún rannsakar lífeðlislega ferla. Hún er fædd í Kamerún en fór þaðan til náms í Frakklandi...