InnlentVopnaburður lögregluLögreglumenn vilja rafbyssur: „Viljum tryggja það að borgararnir séu öruggir“17. febrúar 2022 Lögreglumenn á Íslandi hafa lýst yfir vilja til þess að embættið fái rafbyssur til afnota. Útköllum þar sem skotvopn koma við sögu hefur fjölgað nokkuð á síðustu misserum. Dómsmálaráðherra ætlar að funda með landssambandi lögreglumanna þar sem málið verður tekið fyrir. RÚV greinir frá þessu í dag. Jón Gunnarsson sagði í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun að þróunin væri ógnvænleg...