Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Rándýr lífsstíll og gjaldþrot hjá Gumma kíró

Áhrifa­valdur sem dáir dýra merkja­vöru í þrot með félag. Stjórn­ar­menn breyttu um nafn fyrir þrotið.

Gummi Kíró og Lína Birgitta
Gummi Kíró og Lína Birgitta Engar eignir voru í þrota­búi félags­ins hans en aðrir töldu sig tapa 34,5 millj­ónum króna. Gummi og Lína Birgitta, unnusta hans, voru í stjórn félagasins.

Gummi Kíró, eða Guð­mundur Birkir Pálmason, sem þekktur fyrir áhuga sinn og kaup á dýrri merkja­vöru, skilur eftir sig 34,5 millj­óna króna skuldir við gjald­þrot félags hans.

Gummi beitti þeirri aðferð að breyta nafni félags­ins áður en það fór í gjald­þrot. Til­kynn­ing um breyt­ing­una fór í gegn 1. októ­ber síð­ast­lið­inn. Áður hét það Kíróprakt­or­stöð Reykja­víkur ehf. en nýtt nafn var minna gagn­sætt: GBN-2024 ehf. Undir til­kynn­ing­una rit­uðu Gummi og unnusta hans, Lína Birgitta Sig­urð­ar­dóttir áhrifa­valdur, sem var vara­maður í stjórn félags­ins.

Sjá einnig: Gummi Kíró útskýrir gjald­þrotið: „Það má segja að þetta hafi byrjað í Covid“

Rúmum mán­uði eftir nafna­breyt­ing­una í vetur var félagið tekið til gjald­þrota­skipta. Félagið hafði ekki skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2023.

Náði ekki að greiða skatt

Gummi hefur rekið fyr­ir­tækið, sem er á sviði hnykk­lækn­inga, und­an­farin ár og kynnt það vel. Fram kemur í Lög­birt­inga­blað­inu, eins og Vísir benti á í morgun, að gerðar hefðu verið 34,5 milljón króna kröfur í þrota­búið. Sjálfur greindi hann frá því að hann hefði sam­ein­ast annarri kíróprakt­or­stöð.

Síðasta haust gerði hann upp gjald­þrotið í við­tali við Smartlandið á mbl.is og sagð­ist ekki hafa náð að greiða allan skatt af starf­sem­inni. „Það má segja að þetta hafi byrjað í covid þar sem röð mis­staka gerði það að verk­um að það [söfn­uð­ust] upp skuld­ir hjá fé­lag­inu. Fyr­ir­tæki fengu þann mögu­leika á að frysta greiðslur til skatts­ins eða stað­greiðslu vegna launa greiðsla sem og við nýtt­um okk­ur á sín­um tíma. Laun hjá fyr­ir­tæk­inu voru há og skuld­in hækk­aði hratt. Ég náði að lækka heild­ar­skuld­ir heil­mikið niður en síð­asti hjall­inn var skatt­ur­inn og á end­an­um náði ég ekki að semja við hann,“ ját­aði hann.

Flíkar dýrum merkjum

Gummi hefur vakið athygli síð­ustu ár fyrir frá­sagnir hans af afar dýrum smekk. Hann komst í frétt­irnar fyrir þremur árum þegar hann keypti bíl sem upp­runa­lega kost­aði 13 millj­ónir króna, með einka­núm­erið KÍRÓ, eins og kom fram í umfjöllun Smartlands­ins á þeim tíma. Þetta var árið 2022, eða eftir að fjár­hags­erf­ið­leikar félags­ins hans hófust. Engu að síður var bif­reiðin skráð á félagið, Kíróprakt­or­stöð Reykja­víkur.

Árið 2022 lýsti Gummi rán­dýrum fatasmekk sínum í við­tali við Stöð 2. Þar kom fram að upp­á­halds­merki hans væru Celine, Balenciaga og Balmain. Í gegnum tíð­ina hafi hann einnig verið hrif­inn af Gucci og Louis Vuitton. Hann sýndi í við­tal­inu nýja peysu frá Celine sem kost­aði 120 þús­und krónur.

Þá lýsti hann því hvernig versl­un­ar­stjóri Gucci náði við hann góðum tengslum.

„Mér finnst skemmti­leg­ast að versla í París. En Stokk­hólmur er líka æðis­legur staður til að versla. Ég bjó þar á sínum tíma og það er gaman að segja frá því að þegar ég geng inn í Gucci búð­ina þá kemur sá sem sér um búð­ina alltaf til mín og gefur mér kampa­vín og kaffi og við spjöllum mjög mikið og það er mjög skemmti­legt,“ sagði hann.

„Svarta beltið í að versla“

Verslar í ParísÍ síð­ustu viku birti Gummi Kíró mynd af sér með inn­kaupa­poka í París undir lag­inu „Monní“.

Þrátt fyrir gjald­þrotið og að ekki hafi tek­ist að greiða kröfu­höfum heldur Gummi áfram að versla. Í síð­ustu viku birti hann mynd af sér með inn­kaupa­poka í París, klæddur í peysu frá Celine, með text­anum: „Svarta beltið í því að versla“.

Þá birtir hann af sér myndir í Róm fyrr í vetur, auk þess að birta kynn­ingar á ýmsum vörum.

Gummi Kíró seg­ist hafa sam­ein­ast Líf Kíró ehf. Það er hins vegar að 100% í eigu Vignis Þórs Bolla­sonar kíróprakt­ors. Hann var í frétt­unum í fyrra þegar eig­in­kona hans, hjúkr­un­ar­fræði­nem­inn og feg­urð­ar­drottn­ingin Arna Ýr Jóns­dóttir, sagð­ist hafa eytt 8-9 millj­ónum króna í brúð­kaup þeirra hjóna og að hún sæi ekki eftir því. Brúð­kaupið var haldið í veislu­sal Sjálands í Garðabæ, en þar varð annað en ótengd gjald­þrott upp á 780 millj­ónir króna sem leiddi nýlega af sér ákæru um skatt­svik eig­anda þess.

Sjá einnig: Gummi kíró notar frekar Tom Ford sól­gler­augu en Moxen Eyewe­ar – Kosta um 70 þús­und krónur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Peningar

Peningar

Danskur hag­fræð­ingur segir krón­una hafa verið mis­heppn­aða til­raun í heila öld

Árið 2027 verður öld liðin frá því að Landsbankinn tók við hlutverki seðlabanka. Lars Christensen segir þá sögu ekki vera árangurssögu.
  • Peningar

    „Þetta er nú meiri vikan“

  • Peningar

    Tveir þekktir skyndi­bita­staðir inn­sigl­aðir að beiðni Skatts­ins

  • Peningar

    Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

  • Peningar

    Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

  • Peningar

    Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann