Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Tveir heið­ursverðir hnigu niður við hlið Macrons í opin­berri mót­töku

Kaffivagninn opnar aftur í breyttu útliti

Elsti starf­andi veit­inga­staður lands­ins fékk and­lits­lyft­ingu.

Nýtt útlit, sami andi?
Nýtt útlit, sami andi? Margir lands­menn muna eftir ein­kenn­andi útliti gamla Kaffi­vagns­ins. Hér er afurð and­lits­lyft­ing­ar­innar. Mynd: Aðsend

Kaffi­vagn­inn, elsti starf­andi veit­inga­staður á Íslandi, opnar í dag fyrir gesti og gang­andi eftir gagn­gerar end­ur­bætur, end­ur­hönnun og end­ur­sköpun, en þessi rót­gróni veit­inga­staður hefur verið hluti af veit­inga­sögu lands og þjóðar frá opnun árið 1935, eins og lýst er í frétta­til­kynn­ingu.

Að baki opn­un­inni stendur veit­inga­mað­ur­inn Axel Ósk­ars­son, mat­reiðslu­maður og reynslu­bolti í ferða­þjón­ustu, sem hefur síð­ustu ár „sér­hæft sig í heild­ar­upp­lifun kröfu­harðra erlendra ferða­manna“ og sam­hliða rekið veit­inga­húsið Öðling í golf­skál­anum Oddi ásamt eig­in­konu sinni Katrínu Ósk Aldan. Jóhann Jónsson, mat­reiðslu­maður á Laugaási í yfir tvo ára­tugi, stendur jafn­framt vakt­ina úti á Granda með þeim.

Sólveig Andersen, iðn­hönn­uður, er hug­mynda­smiður og hönn­uður stað­ar­ins, en inn­an­dyra hefur allt verið upp­fært og end­ur­nýjað, en þó tryggt að and­inn og sálin í hús­inu yrði áfram til staðar, enda saga stað­ar­ins sam­ofin sögu borg­ar­innar og kyn­slóð­anna.

Kaffi­vagns­fjöl­skyldanAxel Ósk­ars­son mat­reiðslu­maður og eig­in­kona hans, Katrín Ósk, ásamt börnum.

Kaffi­vagn­inn var stofn­aður árið 1935 af Bjarna Krist­jáns­syni og var bók­staf­lega kaffi­vagn sem stað­settur var á horni Póst­hús­strætis og Tryggva­götu. Guðrún Ing­ólfs­dóttir keypti vagn­inn af Bjarna í byrjun sjötta ára­tugar síð­ustu aldar, en hann var þá á Granda­garði og komust mest 15 manns þar inn. Fasta­gestir voru þá helst sjó­menn og hafn­ar­verka­menn sem mættu í bítið, enda var Reykja­vík á þessum tíma ein stærsta ver­stöð lands­ins. Þá kom Guðrun upp fyrsta björg­un­ar­hringnum í tengslum við stað­inn og þar var einnig eini sím­inn á Grand­anum lengi vel og var hann mikið not­aður til ýmissa sam­tala. 1975 komst Kaffi­vagn­inn í núver­andi hús­næði, sem nú hefur verið end­ur­nýjað.

„Hér hafa kyn­slóð­irnar mæst og alist upp hlið við hlið ára­tugum saman og það er mik­ill heiður að fá að taka þátt í að tryggja að svo verði áfram. Við höfum gert stað­inn fal­lega upp, sett upp glæsi­lega og girni­lega mat­seðla fyrir hádegi og kvöld og óvíða er útsýnið skemmti­legra að auki en einmitt héðan. Ég hlakka til að taka á móti gestum á Kaffi­vagn­inum og bjóða þeim í lystauk­andi ferða­lag,“ segir Axel Ósk­ars­son veit­inga­maður í til­kynn­ingu.

„Góður matur og góður andi eru mínar ær og kýr og hér mun ég standa vakt­ina með nýjan og glæsi­lega hádeg­is­mat­seðla, kvöld­mat­seðla og allt þar á milli og geri allt til að tryggja ein­staka og góða upp­lifun á þessum elsta veit­inga­stað lands­ins,“ segir Axel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Menning

Ris og fall Krumma

Einn besti tónlistarmaður landsins á 21. öldinni
Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni