Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Lögreglan telur að minkunum hafi verið sleppt af ásetningi

Óskar eftir vitnum og myndefnum úr bif­reiðum

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu telur að óprútt­inn aðili eða aðilar hafi staðið að því að hleypa hund­ruðum minka úr minka­bú­inu Dalsbúi í Mos­fells­dal snemma í morgun. Nú er leitað vitna og myndefnis sem gæti varpað ljósi á málið.

Í til­kynn­ingu frá lög­reglu kemur fram að rann­sóknin bein­ist að manna­ferðum í Mos­fells­dal frá mið­nætti og þar til til­kynn­ing um strok minkanna barst laust eftir klukkan sjö í morgun.

Lög­reglan telur lík­legt að sá eða þeir sem stóðu að verkn­að­inum hafi verið á ferð á bif­reið og lagt henni ein­hvers staðar á svæð­inu áður en mink­unum var sleppt.

Því er sér­stak­lega óskað eftir því að þeir sem kunna að hafa upp­tökur úr öku­tækja­mynda­vélum eða örygg­is­mynda­vélum á svæð­inu fari yfir myndefni sitt. Lög­reglan nefnir meðal ann­ars Þing­valla­veg, Hlað­gerð­ar­kots­veg, Reykja­hlíð­ar­veg, Æsu­staða­veg, Æsu­staða­land, Hraða­staða­veg, Helga­dals­veg og Dals­búsveg sem svæði sem rann­sóknin nær til.

Þeir sem kunna að búa yfir upp­lýs­ingum eða myndefni eru beðnir um að senda það á net­fangið [email protected], ásamt nafni og síma­núm­eri, eða hafa sam­band við lög­reglu í síma 444-1000.

Fyrr í dag kom fram að nokkur hund­ruð minkar hefðu sloppið úr Dalsbúi og að skot­vopnum yrði beitt við að fanga dýrin. Rannsókn lög­reglu bendir nú til þess að um refsi­verðan verknað kunni að hafa verið að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Gréta María stýrði Prís frá opnun verslunarkeðjunnar í ágúst 2024 en hætti sem framkvæmdastjóri á síðasta ári.
Heimur

Ung­lingar hand­teknir í Póllandi grun­aðir um und­ir­bún­ing hryðju­verka

Pólitík

Ingvar yfir­gefur Viðreisn

Pólitík

„Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

Innlent

Innlent

Íslend­ingar flykkj­ast á bóka­söfnin sem aldrei fyrr

Landsmenn verja nú að meðaltali 64 mínútum á dag í lestur og hlustun á bækur, fimm mínútum meira en í fyrra.
Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Innlent

Verð­munur á bök­un­ar­vörum nær 66 pró­sentum milli versl­ana

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa