Nokkur hundruð minkar sluppu úr minkabúinu Dalsbúi í Mosfellsdal snemma í morgun eins og fram kom í frétt Mannlífs en lögreglan hefur nú sent fjölmiðlum upplýsingar um að skotvopnum verði beitt við að fanga dýrin síðar í dag.
Lögreglu barst tilkynning um strok minkanna laust eftir klukkan sjö í morgun. Ekki liggur enn fyrir hvernig þeim tókst að komast út og er rannsókn málsins á frumstigi.
Viðeigandi yfirvöld og eftirlitsstofnanir hafa verið upplýst um atvikið og hafa þegar brugðist við.
Vegna aðgerða við að handsama minkana verður skotvopnum beitt í Mosfellsdal í dag. Af þeim sökum má búast við að íbúar og vegfarendur á svæðinu heyri skothvelli.
Lögreglan segir ekki unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir