Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hvað felst í vegan-lífsstíl?

Á und­an­förnum árum hefur færst í vöxt að fólk velji græn­met­is­fæði, annað hvort ein­göngu eða að mun stærri hluta matar­æðis síns.

Hvað felst í vegan-lífsstíl?

Algengt er einnig að hluti hóps­ins gangi lengra og kjósi að ger­ast vegan, eins og það er kallað. Í því felst að kjósa að borða ekk­ert sem á rætur að rekja til dýra­rík­is­ins. Nota að auki nota engar vörur sem hafa annað hvort verið fram­leiddar úr afurðum dýra eða þau notuð við próf­anir á gæðum þeirra.

Flestir þeir er kjósa þennan lífs­stíl gera það af hug­sjón. Þeim ofbýður með­ferð manna á skepnum og vilja ekki stuðla að því að haldið sé áfram að kvelja skepnur sem eiga jafn­mik­inn til­veru­rétt og menn á þess­ari jörð.

Rann­sóknir hafa einnig sýnt að nútíma­landa­bún­aður á stóran þátt í að út í and­rúms­loftið streyma eit­ur­efni er stækka gatið í óson­lag­inu og valda lofts­lags­breyt­ingum. Vaxt­ar­hormón og fyr­ir­byggj­andi sýkla­lyfja­gjöf er sömu­leiðis algengur fylgi­fiskur verk­smiðju­bú­skapar og ungt fólk um allan heim hefur áhyggjur af þeirri þróun. Ekki liggur fyrir vit­neskja um hvaða áhrif þetta muni hafa á menn þegar til lengri tíma er litið né heldur vitað hver áhrif ýmissa aukefna sem blandað er í mat­væli eru.

Fjölgun mann­kyns er sömu­leiðis ör og ef við höldum áfram að velja þau mat­væli sem nú eru á borðum flestra munum við ekki geta brauð­fætt heim­inn innan nokk­urra kyn­slóða. Vís­inda­menn hafa þess vegna lengi hvatt menn til að huga að því að auka neyslu á mat úr plöntu­rík­inu en að auki leitað að fleiri æski­legum prótín­gjöfum og skor­dýr reynst þar væn­legur kostur.

Valið auðvelt

Velji fólk vegan-lífs­stíl neytir það ekki eggja, gelat­íns, mjólk­ur­vara og hun­angs. Þótt dýr séu ekki drepin við fram­leiðslu þess­ara mat­væla eru þau haldin á búgörðum við mis­mun­andi aðstæður. Til að mót­mæla því kýs vegan-fólk að nota ekki þessar vörur. Baunir og bauna­af­urðir, eins og tofu og tempeh, eru helstu prótín­gjaf­arnir auk sveppa og hneta. Í raun er fæði þeirra mjög heilsu­sam­legt og ríkt af marg­vís­legum nær­ing­ar­efnum. Talið er að í Banda­ríkj­unum séu um það bil 2,5% íbúa vegan og tala þeirra er aðhyll­ast þessa stefnu fer ört hækk­andi.

Vís­inda­menn hafa þess vegna lengi hvatt menn til að huga að því að auka neyslu á mat úr plöntu­rík­inu en að auki leitað að fleiri æski­legum prótín­gjöfum og skor­dýr reynst þar væn­legur kostur.

Margir þeirra er taka upp þennan lífs­stíl tala um að á óvart hafi komið hversu auð­velt það hafi reynst. Núorðið bjóða flestar mat­vöru­versl­anir upp á gott úrval af því fæði sem vegan-fólk kýs og á mörgum veit­inga­húsum er ávallt val um rétti sem henta því. Þetta er nýlunda því ekki er langt síðan að hér á landi var tæp­ast um annað að velja fyrir græn­kera en salat með nokkrum teg­undum græn­metis og því lítið spenn­andi fyrir þá að fara út að borða með vinum.

Flestir þeir er kjósa þennan lífs­stíl gera það af hug­sjón. Þeim ofbýður með­ferð manna á skepnum og vilja ekki stuðla að því að haldið sé áfram að kvelja skepnur.

Þessi þróun er til marks um hversu hratt þessi lífs­stíll hefur unnið á. Þeir sem kjósa hann þurfa þó að vera með­vit­aðir um hvað þeir borða og gæta þess að fá nóg af kalki, B12-vítamíni, zinki og járni. Á hinn bóg­inn njóta þeir þess að fá mun meira af C- og E-vítamínum, potass­íum, magnesíum og fólín­sýrum en kjöt­ætur og þá skortir aldrei trefjar. Þær eru und­ir­staða heil­brigðs melt­ing­ar­kerfis og margar kjöt­ætur finna oft fyrir hægða­tregðu, ristil­vanda­málum og brjóst­sviða sem vegan-fólk er laust við.

Rann­sóknir hafa einnig sýnt fram á að fæði er byggir að stærstum hluta á afurðum úr plöntu­rík­inu dregur mjög úr líkum á að fólk fái krabba­mein og hjarta- og æða­sjúk­dóma. Græn­kerar hafa einnig almennt mun lægri blóð­þrýst­ing og kól­esteról í blóði.

Rann­sóknir hafa sýnt … að fæði er byggir að stærstum hluta á afurðum úr plöntu­rík­inu dregur úr líkum á krabba­meini og hjarta- og æða­sjúk­dómum.

Auk þess er að ofan var talið hafa rann­sóknir sýnt að þeir sem kjósa að borða fyrst og fremst mat úr plöntu­rík­inu eru almennt grennri en hinir, þjást síður af ofnæmi eða óþoli, halda lið­leika lengur fram eftir ævi og fá síður syk­ur­sýki II. Þeir verða þó að gæta þess vel að neyta nægi­legs magns af kalk- og D-vítamín­ríkri fæðu til að tryggja bein­þéttni.

Í 45. tbl. Vikunnar er að finna ítar­lega úttekt á hvað felst í vegan-lífs­stíl og hver eru heppi­leg fyrstu skref ef menn hafa áhuga á að til­einka sér hann. Hér er brot úr grein­inni en þeir sem vilja lesa meira geta nálg­ast blaðið á næsta sölu­stað.

Höfundur / Stein­gerður Stein­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu