Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stúlkurnar sem kærðu lögreglumanninn halda ræðu eftir Druslugönguna

Stúlkurnar sem kærðu lögreglumanninn halda ræðu eftir Druslugönguna
|

Tvær af þremur konum, þær Kiana Sif Limehouse og Helga Elín Her­leifs­dóttir, sem sök­uðu lög­reglu­mann um kyn­ferð­is­brot þegar þær voru barn­ungar halda ræðu eftir að Druslu­gangan hefur verið gengin í dag.

Gangan hefst við Hall­gríms­kirkju klukkan 14.00 í dag, laug­ar­dag­inn 28. júlí. Þaðan fer hún niður Skóla­vörðu­stíg og Banka­stræti og endar á Aust­ur­velli, þar sem verða ræðu­höld og tón­leikar.

Helga Elín prýddi for­síðu Mannlífs fyrir nokkrum vikum ásamt móður sinni, Halldóru Bald­urs­dóttur. Þar sögðu þær frá kyn­ferð­is­broti sem átti að hafa átt sér stað í sum­ar­bú­staða­ferð með fyrr­nefndri Kiönu, þá bestu vin­konu Helgu Elínar, og lög­reglu­mann­inum, sem þá var stjúp­faðir Kiönu. Með í för voru einnig móðir Kiönu og vina­hjón. DV hefur einnig fjallað um mál kvenn­anna þriggja þar sem bæði lög­reglu­mað­ur­inn og vina­hjónin voru nafn­greind. Þá hefur lög­reglu­mað­ur­inn hótað mál­sókn vegna umfjall­anar Stund­ar­innar um málið sökum notk­unar á orð­inu nauðgun.

„Rík­is­lög­reglu­stjóri brást dóttur minni“

Kiana steig svo stuttu síðar fram í for­síðu­við­tali við Mannlíf þar sem hún sagði sína sögu af lög­reglu­mann­inum.

„Ég svaf alltaf uppi í rúmi hjá mömmu þegar hann var að vinna. Þegar hann færði mig á milli rúma man ég eftir að hann byrj­aði að þukla brjóstin á mér. Ég var vak­andi en lét sem ég svæfi. Ég vissi að þetta var ekki rétt en ég sagði ekki neitt. Ég var lítil og hafði ekki vit á því að þetta væri óeðli­legt. Síðan fór þetta að vinda upp á sig. Hann bauð mér að smakka áfengi og ein­hverju síðar man ég eftir honum stand­andi í dyr­unum á her­berg­inu mínu þegar ég var sof­andi. Þá hafði hann verið að drekka og þukl­aði á sjálfum sér. Eitt kvöldið tók hann það skref að koma inn í her­bergið mitt og snerta mig. Hann setti putt­ana inn í pík­una á mér og hélt mér þannig að ég myndi ekki snúa mér við. Þegar ég bað hann um að hætta sagði hann að þetta væri bara leynd­ar­málið okkar. Ég man enn í hvernig buxum hann var þetta skiptið. Ég man enn hvernig rakspír­inn hans lyktaði,“ sagði Kiana í við­tal­inu.

„Kvöldið áður en ég sagði frá mis­not­aði hann mig í sein­asta skiptið“

Helga Elín, Kiana og þriðja stúlkan, Lovísa Sól, kærðu lög­reglu­mann­inn allar fyrir kyn­ferð­is­brot, en málin voru látin niður falla vegna ónægra sann­anna.

Móðir Helgu Elínar kærði rann­sókn máls dóttur sinnar til nefnd með eft­ir­lit með lög­reglu en erindi hennar sem sneri beint að óvand­aðri lög­reglu­rann­sókn var vísað frá.

„Tími þagnar og afvega­leið­inga er lið­inn. Við krefj­umst breyt­inga“

Kæra lögregla…

Auk Helgu Elínar og Kiönu er fram­halds­hópur Stíga­móta með tölu, sem og María Rut Krist­ins­dóttir, fyrr­ver­andi tals­kona Druslu­göng­unnar. Þá verða GDRN, Sykur og DJ Dóra Júlía með tón­list­ar­at­riði.

For­svars­fólk Druslu­göng­unnar hefur einnig sent sér­stök boðskort á lög­reglu­yf­ir­völd þar sem það skorar á þau að taka afstöðu gegn ofbeldi og afstöðu með þolendum.

„Kæra lög­regla. Við vitum að hjá ykkur er margt gott starf unnið, en innan ykkar raða eru ennþá ein­stak­lingar sem bregð­ast okkur og mis­beita valdi sínu. Þið til­heyrið starfs­stétt sem við þurfum að geta treyst á,“ stendur í boðskort­inu. Alþing­is­menn, ráð­herrar og for­seta­hjónin hafa einnig fengið boðskort í göng­una.

Boðskort Druslu­göng­unnar til lög­regl­unnar.

Druslu­gangan er sam­stöðu­ganga með þolendum kyn­ferð­is­legs ofbeldis og var fyrst haldin árið 2011. Megin mark­mið göng­unnar, að því er kemur fram á Facebook-síðu hennar, er að „losa þolendur undan skömminni sem kyn­ferð­is­legt ofbeldi á til að skilja eftir sig og skila henni þangað sem hún á heima, til ger­enda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag